Árið í myndum: Jarðhræringar á Reykjanesskaga

Eldsum­brot á Reykja­nesskaga voru án efa eitt stærsta frétta­mál árs­ins. Áskor­an­irnar sem nátt­úru­ham­far­irnar færðu Íslend­ingum í hendur voru margar og erf­iðar. Nákvæmt mat á umfangi þess­ara atburða bíður seinni tíma og mörg stór og flókin verk­efni standa frammi fyrir íbúum og stjórn­völdum á nýju ári enda þessu skeiði í jarð­sögu lands­ins ekki lokið.

Árið í myndum: Jarðhræringar á Reykjanesskaga
Sex gos á einu ári Jarð­hrær­ing­arnar á Reykja­nesskaga ein­kenndu árið sem fer senn að líða. Mynd: Golli

Eldsum­brot á Reykja­nesskaga ein­kenndu árið sem nú fer brátt að líða. Það gaus sex sinnum á árinu en alls hafa eld­gosin sem kennd hafa verið við Sundhnúk verið sjö tals­ins. Fyrsta gosið í gíga­röð­inni hófst 18. des­em­ber 2023 og stóð yfir í þrjá daga. Rúmum mán­uði áður hafði Grind­vík­ur­bær verið rýmdur eftir að í ljós kom að kviku­gangur mynd­að­ist undir bænum. Ekki leið að löngu þar til það gaus aftur á því svæði.

Gosið hófst laust fyrir klukkan átta að morgni dags þann 14. jan­úar þegar 850 metra löng sprunga opn­að­ist rétt norðan við Hagafell, skammt frá Grinda­vík. Skömmu eftir hádegi sama dag opn­að­ist önnur smærri sprunga í um 50 metra fjar­lægð frá bænum. Hraun úr þeirri sprungu flæddi inn í byggð­ina í göt­una Efrahóp sem er nyrst í bænum. Þrjú hús fóru undir hraun.

Eldgos árs­ins stóðu yfir mis­lengi og kraftur gos­anna var sömu­leiðis mis­mun­andi. Sum gos …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Einhver mesta snilld Heimildarinnar var aað fá GOLLA til liðs við sig. Gleðilegt ár.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
ErlentUppgjör ársins 2024

Erlendur ann­áll: Kosn­ingar og ófriður lit­uðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár