Hvað kom fyrir Emmu? Fyrsta grein — „Mjög lítið blóð“

Flestir töldu að Bashar al-Assad myndi draga úr kúgun í Sýrlandi og færa stjórn­ar­háttu til nútím­ans. Hin eld­klára kona hans, Asma, eða Emma Akhras, myndi stýra honum í þá átt. En hvernig fór?

Hvað kom fyrir Emmu? Fyrsta grein — „Mjög lítið blóð“

Árið 1973 fluttu ung sýr­lensk hjón frá heima­borg sinni Homs til London. Karl­mað­ur­inn hét Fawaz Akhras og var að ljúka lækna­námi; hann gerð­ist hjarta­læknir og varð mjög vel met­inn sem slíkur. Kona hans, Sahar, hafði ung farið til starfa í sýr­lensku utan­rík­is­þjón­ust­unni og eftir að hún hafði alið Fawaz nokkur mann­væn­leg börn hóf hún að starfa í sendi­ráði Sýrlands í London.

Hjónin komu sér fyrir í úthverf­inu Acton þar sem býr vel stætt fólk en þó ekki for­ríkt. Þau bjuggu í einu þeirra hefð­bundnu rað­húsa sem við þekkjum svo vel úr breskum sjón­varps­þáttum og bíó­myndum. Fyrsta barnið var stúlka, hún kom í heim­inn í ágúst 1975 og var skírð Asma, síðar komu tveir synir ef marka má heim­ildir. Fjöl­skyldan tal­aði arab­ísku á heim­il­inu en börnin gengu í breska einka­skóla og hlutu að flestu leyti hefð­bundið breskt upp­eldi.

Tengsl fjöl­skyld­unnar við Sýrland voru þó sterk. Flest­öllum sum­ar­fr­íum var eytt …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár