Aðskilnaðarstefnu hunda og mannfólks verði hætt

Geirsnef hefur gríð­ar­lega mikla þýð­ingu fyrir hunda­eig­endur sem eitt örfárra lausa­göngu­svæða og því ætti ekki að breyta í borg­ar­garð með afgirtu hunda­gerði, segja hunda­eig­endur.

Aðskilnaðarstefnu hunda og mannfólks verði hætt
Borg­ar­garður? Borg­ar­yf­ir­völd vilja búa til það sem þau kalla borg­ar­garð á Geirsnefi. Það svæði hefur hingað til verið notað fyrir lausa­göngu hunda. Mynd: Reykjavíkurborg

Hunda­eig­endur eru afar ósáttir við áform­aðar breyt­ingar á Geirsnefi sem myndu þýða að þrengt yrði veru­lega að því litla svæði innan borg­ar­markanna þar sem sleppa má hundum lausum. Íbúa­sam­tök Graf­ar­vogs taka undir þessar áhyggjur. Reykja­vík­ur­borg bendir hins vegar á, í skipu­lags­lýs­ingu að svæð­inu sem er nú aug­lýst, að með þétt­ingu íbúa­byggðar í Voga­byggð og við Ártúns­höfða verði Geirsnef sífellt mik­il­væg­ara úti­vist­ar­svæði fyrir íbúa. Leggja borg­ar­yf­ir­völd því til að Geirsnef verði gert að borg­ar­garði, úti­vist­ar­svæði með nátt­úru­legu yfir­bragði. Hunda­eig­andi bendir hins vegar á: „Best væri að fá borg­ar­garð á Geirsnefi þar sem lausa­ganga hunda væri leyfð. Hætta þess­ari aðskiln­að­ar­stefnu hunda og mann­fólks.“

„Fíllinn í stof­unni er að eng­inn mun nota borg­ar­garð á þessum stað“
Félag ábyrgra hunda­eig­enda

Félag ábyrgra hunda­eig­enda seg­ist í umsögn sinni við skipu­lags­lýs­ing­una sjá ýmis­legt athuga­vert við hug­myndir borg­ar­innar að nýju deiliskipu­lagi fyrir Geirsnef. Bent er á að oft sé ekki hlustað á hunda­eig­endur en að von­ast sé eftir að það verði nú gert. „Geirsnef hefur verið griða­staður fyrir hunda­eig­endur síð­ustu ára­tug­ina þar sem við höfum getað leyft hund­unum okkar að hlaupa lausum,“ segir í umsögn­inni. Önnur lausa­göngu­svæði eins og Geld­inga­nes og Hólms­heiði séu fram­tíðar bygg­ing­ar­land og þegar þau detti út í náinni fram­tíð þá verði engin aðgengi­leg lausa­göngu­svæði eftir innan borg­ar­markanna. „Geirsnef hefur því gríð­ar­lega mikla þýð­ingu fyrir hunda­eig­endur í borg­inni.“

Í skipu­lags­lýs­ing­unni er ekki fjallað sér­stak­lega um aðgengi hunda en Félag ábyrgra hunda­eig­enda hefur rýnt í teikn­ing­arnar og segja að svo virð­ist sem fjar­lægja eigi lausa­göngu­svæðið og setja í stað­inn afgirt hunda­gerði. Slík gerði megi þegar finna á nokkrum stöðum í borg­inni en þau komi engan veg­inn í stað­inn fyrir lausa­göngu­svæði.

„Fíllinn í stof­unni er að eng­inn mun nota borg­ar­garð á þessum stað,“ segir í umsögn félags­ins. „Það hefur eng­inn kallað eftir honum og nálægðin við ósnortna nátt­úru Elliða­ár­dals­ins gerir það að verkum að allt fólk sem hefur áhuga á að eyða tíma utandyra mun sækja þangað.“

Íbúa­sam­tök Graf­ar­vogs minna í sinni umsögn á að Geirsnef sé land­fyll­ing gerð úr gömlum ösku­haugum. Svæðið hafi verið nýtt af hunda­eig­endum lengi, þeim til mik­illar ánægju og heilsu­bótar. Vilja sam­tökin að aðgengi að lausa­göngu­svæði hunda á Geirsnefi verði tryggt er Borg­ar­línan komi þar um. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta er vel "hannað" hundagerði af náttúrunnar hendi. og alveg nauðsynlegt að hundaeigendur hafi einhvern stað þar sem þeir geta haft hunda lausa að leika sér. Dalurinn hjá Keldum er dásamlegur útivistarstaður með gömlum trjálundum og þarf að varðveita miðjuna í honum til framtíðarútivista
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Algjörlega glötuð hugmynd. Reynslan sýnir að hundaeigendum er ekki treystandi til að fara eftir reglum. Ganga með hundana lausa og beisli í hendinni til málamynda. Því meiri aðskilnaður milli hunda og íbúa því betra.
    1
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Hundagerði og útivistarsvæði þar sem lausaganga hunda er leyfð eru tveir mjög ólíkir staðir. Hið fyrra er staður þar sem hundar geta örnað sér en hið síðara svæði þar sem hundaeigendur geta stundað útivist með hundunum sínum ótjóðruðum. Það mælir ekkert á móti því að aðrir en hundaeigendur noti svæðin líka.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár