Eitrið í blóðrásinni – esseyja

Jón Karl Helgason las skáld­söguna Sporð­drekar eftir Dag Hjartarson og stiklar á fallegum steinum þegar hann setur hana í bókmennta­legt samhengi.

Rithöfundurinn Dagur Hjartarson
Rit­höf­und­ur­inn Dagur Hjart­ar­son Dagur og nóttin úti á líf­inu.

Sporð­drekar stinga og sömu sögu má segja um fleiri tegundir, þar með talið mannanna börn. „Helstu líkams­einkenni sporð­dreka eru ílangur líkami með hala sem sveigist upp og á enda hans er broddur sem inni­heldur öflugt eitur,“ segir í umfjöllun Vísinda­vefsins um fyrr­nefndu dýra­tegundina. Margir eftir­minnilegustu kaflarnir í nýrri skáldsögu Dags Hjartar­sonar, Sporð­drekum, lýsa nístandi andar­tökum þegar einhver af síðarnefndu tegundinni sveiflar brodd­halanum, oftar en ekki andspænis sínum nánustu. Hvikult sjónar­horn sögunnar, þar sem lesendur eru ýmist settir í spor þess sem leggur til atlögu eða hins sem finnur fyrir eitrinu í blóð­rásinni, gerir frásögnina bæði áhrifa­ríka og spennandi. En líka ónotalega. Því það er lengi von á einum.

Ásta Sig­urð­ar­dóttir Það liggur einna bein­ast við að draga Sporð­dreka í dilk þeirra íslensku skáld­sagna sem bregða upp mynd af ungu fólki „úti á líf­inu“ í miðbæ Reykja­víkur. Þær eiga sér lengri hefð en margir ætla; hún nær …
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár