Staða Bjarna sterk í Suðvesturkjördæmi

Góð kjör­sókn var í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og sam­kvæmt fyrstu tölum þaðan bætir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn við sig þing­manni.

Staða Bjarna sterk í Suðvesturkjördæmi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist langstærstur í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem Bjarni Bene­dikts­son leiðir lista. Í kjör­dæmi hans flykkt­ist fólk á kjör­stað í dag, en kjör­sókn var mun meiri í ár en þegar gengið var til kosn­inga árið 2021, eða um 62 pró­sent klukkan átta í kvöld.

Það skil­aði sér í því að í Suð­vest­ur­kjör­dæmi bætir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn við sig þing­manni og nær 28,6 pró­senta fylgi í kjör­dæm­inu sam­kvæmt fyrstu tölum þaðan. 

Staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur lengi verið sterk í kjör­dæm­inu, ekki síst í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi. Í síð­ustu kosn­ingum fékk flokk­ur­inn til að mynda flest atkvæða þar, eða 30,2 pró­sent, og fjóra þing­menn af þrettán.

Þau Bjarni, Bryndís Har­alds­dóttir, Jón Gunn­ars­son og Óli Björn Kárason tóku þá sæti á þingi, en tals­verðar breyt­ingar urðu á efstu sætum á list­anum nú í haust.

Athygli vakti þegar vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, gaf kost á sér í annað sætið í kjör­dæm­inu og skor­aði þar með Jón Gunn­ars­son á hólm. Hún skipar annað sætið, Bryndís það þriðja og Rósa Guð­bjarts­dóttir er í fjórða sæti á list­anum. Í fimmta sæti situr hins vegar Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. 

Á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum í Suð­vest­ur­kjör­dæmi kemur Sam­fylk­ingin, með 22,2 pró­senta fylgi. Því næst kemur Viðreisn með 14,3 pró­senta fylgi. 

Þetta er staðan eftir fyrstu tölur. Enn á eftir að koma í ljós hver end­an­leg nið­ur­staða verður. 

Á lands­vísu leiðir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 22,9 pró­senta fylgi, en fast á eftir fylgir Sam­fylk­ingin með 21,6 pró­senta fylgi, nú þegar 20.640 atkvæði hafa verið talin. 

Hér má fylgj­ast með þróun atkvæða á vef Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár