Sigurður Ingi: Mun bíða í alla nótt eftir að tölurnar verði betri

„Við erum í stjórn­málum til að hafa áhrif.“

Kosninga­vaka Framsóknar­flokksins fer fram í Iðnó. Þar þakkaði Sigurður Ingi Jóhannsson sínu stuðnings­fólki fyrir kosninga­baráttuna. „Ég er gríðar­lega stoltur af öllu okkar fólki,“ sagði hann. Kosninga­baráttan hefði verið snörp, en þetta hefði verið „skemmtilegt, glatt, uppbyggilegt, upplýsandi og lausna­miðað. Nú erum við bara komin hingað.“

Samkvæmt fyrstu tölum nær formaður Framsóknar­flokksins ekki inn á þing, en eftir að er að telja atkvæði í Suður- og Norð-Austur­kjördæmi er Framsókn með 11,3 prósenta fylgi. 

Sigðurður Ingi sagðist vonast eftir góðum tölum. „Við munum bíða hér í alla nótt eftir því að þær verði betri og betri, af því að við erum í stjórn­málum til að hafa áhrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár