Möguleikar til að komast af leigumarkaði lítið breyst síðan 2011

Nýleg rannsókn á stöðu leigjenda hér á landi sýnir að mögu­leikar leigjenda til þess að safna fyrir útborgun fyrir eigin húsnæði hafa nánast staðið í stað frá árinu 2011. Niður­stöðurnar þykja sláandi í ljósi þess mikla hagvaxtar og kaupmáttar­aukningar sem hefur átt sér stað á undan­förnum árum. Már Wolfgang Mixa, dósent í viðskipta­fræði og einn höfunda greinarinnar, segir að markaðs­öflin hafi skilað takmörkuðum árangri í að leysa úr húsnæðis­vandanum.

Föst á leigumarkaði
Föst á leigu­mark­aði Rannsókn Más Wolfgangs sýnir fram á að það tæki sjálf­stætt for­eldri með eitt barn tíu ár að safna sér fyrir útborgun á íbúð. Mynd: Golli

Á undan­förnum þrettán árum hafa mögu­leikar fólks til þess að komast af leigu­markaði með því að festa kaup á eigin húsnæði tekið litlum sem engum breytingum.

Sé miðað við 15 prósenta útborgun í húsnæði tæki það um það bil tíu ár fyrir sjálfstætt foreldri í láglauna­starfi að safna fyrir útborgun á húsnæði. Niður­stöðurnar eru sérstak­lega sláandi í ljósi þess að þessi ár einkenndust af örum hagvexti.

Þetta kemur fram í nýlegri grein sem Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Kristín Erla Tryggva­dóttir viðskipta­fræðingur birtu nýlega í erlendu fræði­tímariti.

Rannsaka ðstöðu leigj­enda náið Már Wolfgang Mixa, dós­ent í við­skipta­fræði, hefur und­an­farin miss­eri rann­sakað og skrifað um íslenska leigu­mark­að­inn og hvernig hann hefur þró­ast und­an­farin ár.

Hlutdeildarlánin gera húsnæðiskaup raunhæft markmið

Í greininni var einnig reiknað út hversu langan tíma það tæki …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Er enginn í dag sem kemst í spor Héðins Valdimarssonar
    með byggingu verkamannabústaðanna við Hringbraut?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár