„Hann sagðist ekki geta meir“

„Hann sagðist ekki geta meir“

„Ég gat ekki bjargað barna­barn­inu mínu. En ef það verður til þess að ég geti kannski bjargað ein­hverjum, þó ekki nema einu barni, þá vil ég segja sögu okkar,“ segir Þór­hildur Helga Þor­leifs­dóttir kennslu­ráð­gjafi. Son­ar­sonur hennar, Patrekur Jóhann Kjart­ans­son Eberl, fannst lát­inn mið­viku­dag­inn 12. maí 2021, aðeins fimmtán ára gam­all. Hann hafði svipt sig lífi.

Þór­hildur Helga Þor­leifs­dóttir var heima þegar sím­inn hringdi. Á hinni lín­unni var sonur hennar. Rödd hans var óvenju­djúp og tónn­inn flatur. Hún heyrði strax að erindið var alvar­legt. „Sonur minn sagði að Patrekur hefði fund­ist úti í bíl­skúr og sjúkra­bíll væri kom­inn á stað­inn.“

Hún bað son sinn um að láta sig vita um leið og ljóst yrði hvert yrði farið með Patrek. Í milli­tíð­inni kom mað­ur­inn hennar heim, hún útskýrði stöð­una fyrir honum á meðan þau biðu, til­búin til að stökkva af stað. Síminn hringdi aftur. „Sonur minn sagði okkur að koma heim til þeirra, því þau hefðu ekki farið með sjúkra­bílnum. Þá vissi ég að Patrekur væri dáinn.“

Þar sem Þór­hildur Helga stóð í stof­unni brotn­aði hún saman. Hún hélt enn á sím­anum en lík­ami hennar var allur í keng og sárs­auk­inn nísti inn að beini. En hún varð að kom­ast strax af stað. Svo hún …

Kjósa
122
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Innilegar samúðarkveðjur. Það má mikið læra af þessari grein.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár