Pönkið lifir í settlegri Pírötum

Pönkið lifir í Pírötum, segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, en hreyf­ingin er þó orðin sett­legri. Lýð­ræð­isum­bætur eru lyk­il­mál í hennar huga og leita þarf í auknum mæli til þjóð­ar­innar. Hún segir spill­ingu vanda­mál á Íslandi og að hlúa þurfi að fólk­inu sem beri uppi heil­brigð­is­kerfið.

Hlustaðu · brot1:06:05 · Formannaviðtöl

Í fyrsta sinn síðan flokk­ur­inn náði á þing virð­ast Píratar berj­ast fyrir lífi sínu. Flokk­ur­inn mælist ítrekað undir fimm pró­senta atkvæða­þrösk­uld­inum í skoð­ana­könn­unum í aðdrag­anda þeirra óvæntu kosn­inga sem fram fara í lok nóv­em­ber. Flokk­ur­inn bauð fyrst fram árið 2013 og komst þá inn með þrjá þing­menn og var það ár annar tveggja nýrra stjórn­mála­flokka sem náðu kjöri, eftir veru­lega gerjun í íslenskri póli­tík í kjöl­far hruns­ins. Í dag er það Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona og mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur, sem er tals­maður flokks­ins og hefur form­legt umboð flokks­fé­laga til að leiða Pírata í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. 

En hvert er erindið? Hver eru brýn­ustu verk­efnin sem Píratar vilja ráð­ast í í dag? 

„Þegar kemur að þessum stóru kerfum okkar sem skipta allan almenn­ing máli – þá er ég að tala líka um lýð­ræðið og rétt­ar­ríkið – þá þarf virki­lega að bæta úr,“ segir hún spurð um hvað í íslensku sam­fé­lagi kalli á breyt­ingar. …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Formannaviðtöl

Tími jaðranna er ekki núna
ViðtalFormannaviðtöl

Tími jaðr­anna er ekki núna

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er sá stjórn­mála­maður sem miðað við fylg­is­mæl­ingar og legu flokks­ins á hinum póli­tíska ás gæti helst lent í lyk­il­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að loknum þing­kosn­ingum. Þor­gerður boðar fækkun ráðu­neyta, frek­ari sölu á Íslands­banka og sterkara geð­heil­brigð­is­kerfi. Hún vill koma að rík­is­stjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar reyni að koma sér saman um stjórn lands­ins.
Allir verða sósíalistar fyrir kosningar
ViðtalFormannaviðtöl

Allir verða sós­í­alistar fyrir kosn­ingar

Hug­mynda­fræði sós­í­al­ism­ans hefur ekki beðið skip­brot heldur virð­ast allir flokkar verða sós­íal­ísk­ari fyrir kosn­ingar. Þetta segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drif­kraftur hennar og boðar rétt­lát­ara skatt­kerfi og stefnu­breyt­ingu í hús­næð­is­upp­bygg­ingu. Þar eigi hið opin­bera að stíga inn og fjár­magna upp­bygg­ingu á félags­legum grunni.
„Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“
ViðtalFormannaviðtöl

„Kven­frels­is­mál eru líka heil­brigð­is­mál“

Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á bratt­ann að sækja en segir mik­inn þrótt og kraft í flokks­fólki. Hún sakar Bjarna Bene­dikts­son um trún­að­ar­brest í aðdrag­anda stjórn­ar­slita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfs­stjórn. Það sé full­gild spurn­ing hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár