Senuþjófurinn Eleonore Niemand – esseyja

Jón Karl Helgason sá sig knúinn til að fletta Eleonore Niemand upp eftir að hafa lesið heimspeki­lega skáldsögu Geirs Sigurðs­sonar: Óljós: Saga af ástum. Jón Karl vildi vera viss. Og hann yddaði blýantinn fyrir hugleiðingu um bókina – sem bóka­útgáfan Sæmundur gefur út, nú árið 2024.

Geir Sigurðsson rithöfundur og prófessor í kínverskum fræðum og þvermenningarlegri heimspeki
Geir Sig­urðs­son rit­höf­undur og pró­fessor í kín­verskum fræðum og þver­menn­ing­ar­legri heim­speki Mynd: HÍ/Kristinn Ingvarsson

Það sem telst merkilegt í samfélaginu er það ekki á endanum og það sem ekki telst merkilegt í samfélaginu er alveg jafn ekki-merkilegt á endanum. Hvort tveggja lendir í sama flokki þegar öllu er á botninn hvolft.“ (Eleonore Niemand)

Eleonore Niemand leikur svolítið auka­hlutverk í skáld­sögunni Óljós eftir Geir Sigurðsson, svo lítið raunar að ég ímynda mér að þótt nafn hennar væri strikað út gæti sögu­þráðurinn staðið óhaggaður. Og samt er hún stöðugt að skjóta upp kollinum, allt frá tileinkuninni í upphafi, þar sem brot úr textum eftir hana birtist á þýsku, til símtalsins við Branko í sögulok (meira um hann síðar). Þar á milli er vitnað alloft til birtra og óbirtra skrifa hennar, ýmist á frum­málinu eða í íslenskri þýðingu. Þessi sýnishorn eru svo sann­færandi að þótt ég væri framan af viss um að Niemand væri skálduð persóna (full­kunnugt um að niemand merkir engin) fann ég mig knúinn …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár