Ferðamannaátak og hótel í Kristjaníu

Dönsk stjórn­völd ætla á næstu árum að verja miklu fé til að kynna Danmörku erlendis í því skyni að fá fleiri ferða­menn til lands­ins. Þrír ráð­herrar kynntu áætl­un­ina. Hug­myndir eru uppi um að opna hótel í Pusher Street í Krist­janíu.

Ferðamannaátak og hótel í Kristjaníu
Krist­janía Íbúar Krist­janíu ruddu upp múr­steinum Pusher götu í apríl síð­ast­liðnum þegar göt­unni var lokað. Þó nokkrir tóku stein með sér heim til minn­ingar. Mynd: AFP/Ricardo Ramírez

Í mörgum löndum skipa ferða­menn æ stærri sess varð­andi tekjur og störf. Kór­ónu­veiran setti veru­legt strik í þann reikn­ing á árunum 2020 til 22 en síðan sá óboðni gestur hvarf að mestu á braut hefur ferða­þjón­ustan náð sér á strik á ný. Ferða­mála­yf­ir­völd víða um lönd leggja mikla áherslu á kynn­ing­ar­starf og verja veru­legu fé í því skyni að krækja í skerf af „ferða­manna­kök­unni“.

Í Danmörku, líkt og mörgum öðrum löndum, hefur ferða­mönnum fjölgað jafnt og þétt á síð­ustu ára­tugum. Það á jafnt við um heima­menn og erlenda rík­is­borg­ara. Þjóð­verjar, Svíar, Norðmenn og Hol­lend­ingar hafa lengi verið fjöl­menn­astir í hópi þeirra sem sækja Danmörku heim. Land­fræði­legar ástæður skipta þar miklu, margir íbúar áður­nefndra landa koma til Dan­merkur á eigin bílum, oft svo­nefndum hús­bílum, eða með hjól­hýsi í eft­ir­dragi eða tjald­vagn. Margir leigja líka sum­ar­hús, einkum á Jótlandi, sem um ára­bil hefur verið eft­ir­læt­is­svæði Þjóð­verja í þessum efnum.

Ekki fyrsta átakið

Kynn­ing­ar­átakið, sem ráð­herr­arnir þrír kynntu fyrir nokkrum dögum, er ekki það fyrsta sem dönsk stjórn­völd hafa ráð­ist í. Árið 2016 kynnti Troels Lund Poulsen, sem þá var ráð­herra atvinnu­mála, áætlun sem ætlað var að ná til árs­ins 2025, „Danmark i vækst -Den nationale stra­tegi for dansk turisme“. Við það tæki­færi sagði ráð­herr­ann að ferða­þjón­ustan hefði orðið fyrir þungu höggi í kjöl­far banka­krepp­unnar en væri nú að ná sér á strik, slíkt tæki ætíð ein­hver ár. Árið 2019 var metár í danskri ferða­þjón­ustu og öfl­ugt kynn­ing­ar­starf að skila sér. En þá kom annað högg, kór­ónu­veiran. Þótt ferða­þjón­ustan hafi náð sér vel á strik á nýjan leik í Danmörku eins og víð­ast hvar er öfl­ugt kynn­ing­ar­starf nauð­syn­legt, því sam­keppnin um ferða­menn er mikil og margar þjóðir verja miklu fé til kynn­inga og aug­lýs­inga.

Jafngildi 4 milljarða íslenskra á næstu fjórum árum

Á kynn­ing­ar­fundi vegna ferða­manna­átaks­ins kom fram að á næstu fjórum árum verði 200 millj­ónum danskra króna (fjórum millj­örðum íslenskra króna) varið til þessa verk­efnis. Þetta er til við­bótar við önnur fram­lög, sem þegar eru til staðar, til þessa mála­flokks, en verk­efnið nefn­ist „Veje til bæredygtig turis­mevækst“ eða upp á íslensk­una, leiðir til sjálf­bærs vaxtar í ferða­þjón­ustu. Stór hluti fjár­veit­ing­ar­innar er eyrna­merktur kynn­ingum á Danmörku erlendis, sér­stök áhersla verður lögð á að kynna Danmörku sem heils­árs­ferða­manna­land eins og einn ráð­herr­anna á kynn­ing­ar­fund­inum komst að orði. Og að Danmörk sé fleira en Kaup­manna­höfn. Mik­il­vægt sé að kynna þá mörgu mögu­leika sem ferða­mönnum bjóð­ast, ekki síst á Jótlandi og Fjóni þar sem er að finna langar sand­strendur, ásamt miklu og fjöl­breyttu fugla­lífi.

Í Danmörku eru 98 sveit­ar­fé­lög og í fimmt­ungi þess­ara sveit­ar­fé­laga skiptir ferða­manna­brans­inn miklu máli hvað varðar atvinnu og tekjur. Mörg önnur sveit­ar­fé­lög hafa upp á margt að bjóða en skortir fjár­magn, og kannski kunn­áttu, til að kynna þá mögu­leika.

Vilja líka kynna Dönum eigið land 

Í könnun sem gerð var á síð­asta ári kom í ljós að margir Danir þekkja lítt til eigin lands og vita ekki um fjöl­marga áhuga­verða staði sem þeir hafa jafn­vel aldrei heyrt nefnda. Hluti fjár­veit­ing­anna sem ráð­herr­arnir til­kynntu um á fund­inum verður eyrna­merktur kynn­ingum ætl­aðar Dönum. Á síð­asta ári voru gistinætur í Danmörku um 63 millj­ónir, það er 46 pró­senta aukn­ing frá árinu 2013. Þegar vaxt­ar­verk­efnið var kynnt kom fram að stefnt skuli að því að árið 2030 verði gistinæt­urnar 72 millj­ónir og árleg velta í ferða­manna­þjón­ust­unni nái þá 200 millj­örðum danskra króna, sem jafn­gildir um fjögur þús­und millj­örðum íslenskra króna. 

Lokuðu Pusher Street

Í apríl síð­ast­liðnum var endir bund­inn á skipu­lagða sölu á hassi í Pusher Street í Krist­janíu. Slíkt hafði árang­urs­laust verið reynt nokkrum sinnum áður en í þetta sinn var gengið mun skipu­legar til verks og allir sölu­básar fjar­lægðir. Salan á „grasi“, eins og hamp­ur­inn er iðu­lega kall­aður, átti sér langa sögu, sögu sem framan af var frið­sam­leg en á all­mörgum und­an­förnum árum varð þar breyt­ing á. Skipu­lögð glæpa­sam­tök ýttu „smá­kaup­mönn­unum“ út og tók­ust á um mark­að­inn. Aukin harka fylgdi í kjöl­farið, með hót­unum, lík­ams­meið­ingum og morðum. Loks var Krist­janitt­unum nóg boðið og þeir ákváðu, í sam­vinnu við lög­regl­una, að bola glæpa­sam­tök­unum burt, með því að stöðva sölu­starf­sem­ina í Pusher Street. En sam­tímis því að „grassölu­menn­irnir“ guf­uðu upp hvarf líka fleira: heima­menn sem voru vanir því að geta gengið að „gras­inu“ í Pusher Street hættu að koma og það veldur Krist­janitt­unum áhyggjum. Erlendir ferða­menn koma eftir sem áður, og þeir eru mik­il­vægir en það er ekki nóg. Í Krist­janíu er margs konar starf­semi, veit­inga­staðir, barir og versl­anir af ýmsu tagi. Botninn er að hluta dott­inn úr þessum við­skiptum að sögn íbú­anna. Vegna þess hve stutt er síðan breyt­ingin í Pusher Street átti sér stað er ekki komin mikil reynsla á áhrifin, ein­ungis eitt (rign­ingar)sumar, en Krist­janitt­arnir eru ugg­andi.

Hvað er til ráða?

Íbúar Krist­janíu eru á einu máli um að hverfið eigi sér fram­tíð, verk­efnið fram undan sé að aðlaga sig breyt­ing­unum og finna fjöl­ina, eins og einn íbú­anna komst að orði í við­tali. Nú hefur verið settur á lagg­irnar vinnu­hópur (Projekt­kontoret Pusher Street) sem er ætlað að koma með til­lögur sem gætu orðið eins konar leið­ar­ljós. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken sögðu Mikkel Chr. Knudsen Holst og Risenga Manghezi, sem stjórna vinnu­hópnum, að mikil vinna færi í hönd. Þessi vinna er nýfarin af stað en Krist­janía er þekkt „vöru­merki“ eins og Risenga Manghezi orð­aði það, en hann hefur um ára­bil verið í for­ystu­hópi íbú­anna.

Skautasvell, veitingastaðir, loftbelgir og hótel

Fyrir ári síðan var efnt til hug­mynda­sam­keppni, meðal íbúa Krist­janíu, um starf­semi sem fengi íbúa Dan­merkur, sér­stak­lega Kaup­manna­hafnar, til að koma í Krist­janíu. Og það skorti ekki hug­myndir: veit­inga­staðir og kaffi­hús, skauta­svell, leik­tækja­svæði, kajak­sigl­ingar um svæðið, göngu­ferðir með leið­sögn (með áherslu á fjöl­breyttan bygg­ing­ar­stíl og sögu svæð­is­ins), sparkvellir og fleira og fleira var nefnt. Sérstaka athygli vakti hug­mynd um að koma upp loft­belgja­ferðum yfir svæðið og nágrenni þess og síð­ast en ekki síst hug­myndin um að koma upp hót­eli í eða við Pusher Street. Að sögn íbúa hefur í gegnum árin verið mikið spurt um gisti­að­stöðu í Krist­janíu en slíkt hefur ekki verið til staðar. Vinnu­hóp­ur­inn, Projekt­or­kontoret, hefur nú þessar hug­myndir til skoð­unar en á að skila til­lögum sínum innan árs.

„Við höfum háleitar hug­myndir um fram­tíð Krist­janíu,“ sögðu for­vars­menn vinnu­hóps­ins, sem kváð­ust bjart­sýnir á fram­tíð svæð­is­ins.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Það er forvitnilegt að lesa fréttir frá frændþjóðinni Danmörku. Tengslin við Danmörku eru sterk og því áhugavert er því að bera saman blómlega ferðaþjónustu í Danmörku við Ísland.
    Danmörk er öflugt ferðamannaland en kemst þó ekki í hálfkvist við Ísland. Ferðaþjónustan er um 8% af landsframleiðslu (GDP) á Íslandi en einungis um þriðjungur af því í Danmörku. Starfsfólk í ferðaþjónustu á Íslandi erum 35 þúsund, eða um 9% af íbúafjölda en í Danmörku er hlutfallið um 3%.
    OF HRAÐUR VÖXTUR. En það sem er í raun aðal áhyggjuefnið hérlendis er ekki fyrst og fremst stærð ferðaiðnaðarins þó hún hljóti að eiga sér takmörk. Mjög hraður og stjórnlaus vöxtur ferðaþjónustunnar á Íslandi er stóra vandamálið. Hraður vöxtur kallar einnig á mikla fjölgun starfsfólks og þar með fjölgun íbúa og veldur óheyrilegu álagi á marga helstu innviði landsins, álagi sem alls ekki hefur tekist að bregðast við með viðeigandi hætti.
    Í greininni í Heimildinn er vaxandi fjöldi gistinátta nefndur til sögunnar. Á árunum fram að Covid, t.d. frá 2011 til 2019 var góður vöxtur í ferðaþjónustu í Danmörku, 29% fjölgun gistinátta. En á sama tímabili var 204% vöxtur í ferðaþjónustu á Íslandi, um 7 sinnum hraðari vöxtur en í Danmörku.
    Danir hafa sett sér stefnu um fjölgun gistinátta um 9 milljónir frá 2013 til 2030. Þetta samsvarar fjölgun um 1,5 gistinótt per íbúa. Ef höfð er hliðsjón af farþegaspá ISAVIA samkvæmt umhverfismatsskýrslu um stækkun Keflavíkurflugvallar frá júní 2022, þá má lauslega áætla að fjölgun gistinátta frá 2023 til 2030 verði um 11 gistinótt per íbúa eða um 7 sinnum hraðari fjölgun gistinátta en í Danmörku. Þetta er auðvitað alveg galið og með öllu óviðráðanlegt fyrir marga innviði landsins. En jafnvel þrátt fyrir þessa mjög svo varfærnu stefnu Dana í ferðaiðnaðinum, þá heyrast þar áhyggjur af áhrifum ferðaiðnaðarins þar á fasteignamarkaðinn.
    VARFÆRIN STEFNA DANA. Það er líka áhugavert að Danir hafa markað sér stefnu um varfærin vöxt ferðaiðnaðarins. En í samanburði þá er vöxturinn á Íslandi stjórnlaus og gríðarlegur. Hér er engin stefna um varfærin vöxt, einungis er rætt um óljósar spár. Einskonar forlagatrú. Við skulum bara bíða og sjá hvað það birtast margir ferðamenn á næsta ári? Þegar eftirspurnin er mikil í ferðaþjónustu, eins og reyndin hefur verið, þá er fjölda ferðamanna að mestu stjórnað af magni gistirýmis og afkastagetu Keflavíkurflugvallar auk skatta og gjaldtöku af ýmsu tagi. Það er nú alveg komin tími á að stjórnvöld fatti þetta og taki að stjórna fjölda ferðamanna föstum tökum líkt og aðrar þjóðir sem við berum okkur saman við. En við höfum líka séð að hagsmunaaðilar berjast með kjafti og klóm gegn öllum tilraunum til að afnema afslátt af VSK af greininni og gegn flestum öðrum tilraunum til að hafa einhverja stjórn á vexti ferðaþjónustunnar. Er það kannski þannig að hagsmunaaðilar fara í raun með landstjórnina en ekki ríkisstjórnin?
    INNVIÐIR Á HLIÐINA. Afleiðingar af þessum öra vexti ferðaþjónustunnar á flesta innviði hafa verið hrikalegar, t.d. fasteignamarkað, byggingariðnað, vegakerfi, skólakerfi og heilbrigðiskerfi o.fl.
    Ferðaþjónusta hefur vaxið mikið. Aðflutningur vinnuafls í ferðaþjónustu og tengdum greinum, t.d. við byggingu hótela og gistirýmis og margfeldisáhrif þar af, hefur verið stærstur þáttur í um 1000 íbúafjölgun á mánuði mörg undanfarin ár. Íslenskir ríkisborgarar eru bara um tíundi hluti þessarar fjölgunar. Þetta setur spennu á húsnæðismarkaðinn. Og það heldur uppi eftirspurn á fasteignum sem svo heldur uppi verðbólgu í landinu. Og ruðningsáhrif á aðra starfsemi og nýsköpun eru mikil. Ferðaþjónustan dregur til sín vinnuafl, m.a. háskólanema sem eiga erfitt með að framfleyta sér á rýrum námslánum.
    Byggingariðnaðurinn ræður ekki við fólksfjölgunina og erlent láglauna vinnuaflið mun seint ráða við húsnæðiskostnað á Íslandi. Margir erlendir starfsmenn ferðaþjónustu búa því við ömurlegar aðstæður. Börnum þeirra gengur oft mjög illa í skóla, vegna ónægs stuðnings er hlutfallslega mun meira brottfall meðal barna nýbúanna en meðal Íslendinga.
    Vegaumferð á áratug hefur vaxið um 15% í Danmörku en meir en þrefalt meir á Íslandi. Víða er staðan enn verri, t.d. á þjóðveginum á Suðurlandi þar sem umferðin hefur vaxið um 400% á árattug, nær alfarið vegna fjölgunar ferðamanna. Vegurinn ber alls ekki þennan umferðaþunga. Það mun taka áratugi að byggja upp og viðhalda vegakerfinu á Íslandi svo það ráði við þessa umferðaraukningu með viðunandi hætti.
    ATGERVISFLÓTTI. Mjög hár húsnæðiskostnaður veldur því að ungt fólk, sem ekki á efnaða foreldra, á mjög erfitt með að koma þaki yfir höfuðið. Ungt fólk í í framhaldsnámi erlendis á einnig erfitt með að flytja heim að námi loknu, jafnvel hámenntað fólk með góð laun. Ungt fátækt fólk frestar því barneignum og fæðingartíðni snarlækkar, nema auðvitað hjá ungu fólki sem á efnaða foreldra. Áhrif húsnæðiskreppunnar sjást einnig á því að Íslendingum búsettum í Danmörku hefur fjölgað um 24% s.l. áratug á meðan íslenskum ríkisborgurum búsettum á Íslandi hefur einungis fjölgað um 7% á sama tíma. Fjölgun Íslendinga í Danmörku þrefalt meiri en hér heima. Atgervisflótti menntafólks er því mikill. Þetta á m.a. þátt í læknaskorti og löngum biðlistum í heilbrigðiskerfinu.
    JÁKVÆÐAR HLIÐAR FERÐAÞJÓNUSTU. En auðvitað eru líka margar jákvæðar hliðar á ferðaþjónustunni. Ríkissjóður hefur miklar tekjur og gjaldeyri af greininni. Mannlíf hefur auðgast með fjölda veitingastaða og mörgu fleiru. Víða úti á landi, væru enn fleiri túristar kærkomnir til að skjóta fleiri stoðum undir byggð í sveitum.
    EKKI VIÐ STARFSFÓLK FERÐAÞJÓNUSTU AÐ SAKAST ÞÓ INNVIÐIR LÍÐI FYRIR HRAÐAN VÖXT. Þar er við stjórnvöld að sakast sem hafa vanrækt að setja vexti ferðaþjónustunnar varfærna stefnu og fylgja henni eftir. En alvarlegast er þó að ekki hefur verið gætt að því að efla innviði til að þeir gætu tekið við þessum mikla fjölda ferðamanna og íbúafjölgunar sem leiðir af örum vexti greinarinnar. Í reynd þýðir líka þessi mikli vöxtur ferðaþjónustunnar að óeðlilega mikil áhersla er lögð á þessa láglauna atvinnugrein. Afleiðingin til lengri tíma er óhjákvæmilega hærri skattar á almenning og hnignandi velferðarþjóðfélagsins.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár