Ferðamannaátak og hótel í Kristjaníu

Dönsk stjórn­völd ætla á næstu árum að verja miklu fé til að kynna Danmörku erlendis í því skyni að fá fleiri ferðamenn til landsins. Þrír ráðherrar kynntu áætlunina. Hugmyndir eru uppi um að opna hótel í Pusher Street í Kristjaníu.

Kristjanía
Krist­janía Íbúar Krist­janíu ruddu upp múr­steinum Pusher götu í apríl síð­ast­liðnum þegar göt­unni var lokað. Þó nokkrir tóku stein með sér heim til minn­ingar. Mynd: AFP/Ricardo Ramírez

Í mörgum löndum skipa ferðamenn æ stærri sess varðandi tekjur og störf. Kórónu­veiran setti verulegt strik í þann reikning á árunum 2020 til 22 en síðan sá óboðni gestur hvarf að mestu á braut hefur ferða­þjónustan náð sér á strik á ný. Ferðamála­yfirvöld víða um lönd leggja mikla áherslu á kynningar­starf og verja verulegu fé í því skyni að krækja í skerf af „ferðamanna­kökunni“.

Í Danmörku, líkt og mörgum öðrum löndum, hefur ferða­mönnum fjölgað jafnt og þétt á síðustu áratugum. Það á jafnt við um heimamenn og erlenda ríkis­borgara. Þjóð­verjar, Svíar, Norðmenn og Hollendingar hafa lengi verið fjölmennastir í hópi þeirra sem sækja Danmörku heim. Land­fræðilegar ástæður skipta þar miklu, margir íbúar áður­nefndra landa koma til Danmerkur á eigin bílum, oft svonefndum húsbílum, eða með hjólhýsi í eftir­dragi eða tjaldvagn. Margir leigja líka sumarhús, einkum á Jótlandi, sem um árabil hefur verið eftirlætis­svæði Þjóðverja í þessum efnum.

Ekki fyrsta átakið

Kynningar­átakið, sem ráðherrarnir þrír kynntu fyrir nokkrum dögum, er ekki það fyrsta sem dönsk stjórn­völd hafa ráðist í. Árið 2016 kynnti Troels Lund Poulsen, sem þá var ráðherra atvinnu­mála, áætlun sem ætlað var að ná til ársins 2025, „Danmark i vækst -Den nationale strategi for dansk turisme“. Við það tækifæri sagði ráðherrann að ferða­þjónustan hefði orðið fyrir þungu höggi í kjölfar banka­kreppunnar en væri nú að ná sér á strik, slíkt tæki ætíð einhver ár. Árið 2019 var metár í danskri ferða­þjónustu og öflugt kynningar­starf að skila sér. En þá kom annað högg, kórónu­veiran. Þótt ferða­þjónustan hafi náð sér vel á strik á nýjan leik í Danmörku eins og víðast hvar er öflugt kynningar­starf nauðsynlegt, því samkeppnin um ferðamenn er mikil og margar þjóðir verja miklu fé til kynninga og auglýsinga.

Jafngildi 4 milljarða íslenskra á næstu fjórum árum

Á kynningar­fundi vegna ferðamanna­átaksins kom fram að á næstu fjórum árum verði 200 milljónum danskra króna (fjórum milljörðum íslenskra króna) varið til þessa verkefnis. Þetta er til viðbótar við önnur framlög, sem þegar eru til staðar, til þessa mála­flokks, en verkefnið nefnist „Veje til bæredygtig turismevækst“ eða upp á íslenskuna, leiðir til sjálfbærs vaxtar í ferða­þjónustu. Stór hluti fjár­veitingarinnar er eyrna­merktur kynningum á Danmörku erlendis, sérstök áhersla verður lögð á að kynna Danmörku sem heilsárs­ferðamanna­land eins og einn ráðherranna á kynningar­fundinum komst að orði. Og að Danmörk sé fleira en Kaupmanna­höfn. Mikilvægt sé að kynna þá mörgu möguleika sem ferða­mönnum bjóðast, ekki síst á Jótlandi og Fjóni þar sem er að finna langar sand­strendur, ásamt miklu og fjöl­breyttu fuglalífi.

Í Danmörku eru 98 sveitar­félög og í fimmtungi þessara sveitar­félaga skiptir ferðamanna­bransinn miklu máli hvað varðar atvinnu og tekjur. Mörg önnur sveitar­félög hafa upp á margt að bjóða en skortir fjármagn, og kannski kunnáttu, til að kynna þá möguleika.

Vilja líka kynna Dönum eigið land 

Í könnun sem gerð var á síðasta ári kom í ljós að margir Danir þekkja lítt til eigin lands og vita ekki um fjölmarga áhuga­verða staði sem þeir hafa jafnvel aldrei heyrt nefnda. Hluti fjár­veitinganna sem ráðherrarnir tilkynntu um á fundinum verður eyrna­merktur kynningum ætlaðar Dönum. Á síðasta ári voru gistinætur í Danmörku um 63 milljónir, það er 46 prósenta aukning frá árinu 2013. Þegar vaxtar­verkefnið var kynnt kom fram að stefnt skuli að því að árið 2030 verði gistinæturnar 72 milljónir og árleg velta í ferðamanna­þjónustunni nái þá 200 milljörðum danskra króna, sem jafn­gildir um fjögur þúsund milljörðum íslenskra króna. 

Lokuðu Pusher Street

Í apríl síðastliðnum var endir bundinn á skipulagða sölu á hassi í Pusher Street í Kristjaníu. Slíkt hafði árangurs­laust verið reynt nokkrum sinnum áður en í þetta sinn var gengið mun skipulegar til verks og allir sölubásar fjar­lægðir. Salan á „grasi“, eins og hampurinn er iðulega kallaður, átti sér langa sögu, sögu sem framan af var frið­samleg en á allmörgum undan­förnum árum varð þar breyting á. Skipulögð glæpa­samtök ýttu „smákaupmönnunum“ út og tókust á um markaðinn. Aukin harka fylgdi í kjölfarið, með hótunum, líkams­meiðingum og morðum. Loks var Kristjanittunum nóg boðið og þeir ákváðu, í samvinnu við lögregluna, að bola glæpa­samtökunum burt, með því að stöðva sölu­starfsemina í Pusher Street. En samtímis því að „gras­sölu­mennirnir“ gufuðu upp hvarf líka fleira: heimamenn sem voru vanir því að geta gengið að „grasinu“ í Pusher Street hættu að koma og það veldur Kristjanittunum áhyggjum. Erlendir ferðamenn koma eftir sem áður, og þeir eru mikil­vægir en það er ekki nóg. Í Kristjaníu er margs konar starfsemi, veitinga­staðir, barir og verslanir af ýmsu tagi. Botninn er að hluta dottinn úr þessum viðskiptum að sögn íbúanna. Vegna þess hve stutt er síðan breytingin í Pusher Street átti sér stað er ekki komin mikil reynsla á áhrifin, einungis eitt (rigningar)sumar, en Kristjanittarnir eru uggandi.

Hvað er til ráða?

Íbúar Kristjaníu eru á einu máli um að hverfið eigi sér framtíð, verkefnið fram undan sé að aðlaga sig breytingunum og finna fjölina, eins og einn íbúanna komst að orði í viðtali. Nú hefur verið settur á laggirnar vinnu­hópur (Projektkontoret Pusher Street) sem er ætlað að koma með tillögur sem gætu orðið eins konar leiðar­ljós. Í viðtali við dagblaðið Politiken sögðu Mikkel Chr. Knudsen Holst og Risenga Manghezi, sem stjórna vinnu­hópnum, að mikil vinna færi í hönd. Þessi vinna er nýfarin af stað en Kristjanía er þekkt „vörumerki“ eins og Risenga Manghezi orðaði það, en hann hefur um árabil verið í forystu­hópi íbúanna.

Skautasvell, veitingastaðir, loftbelgir og hótel

Fyrir ári síðan var efnt til hugmynda­samkeppni, meðal íbúa Kristjaníu, um starfsemi sem fengi íbúa Danmerkur, sérstak­lega Kaupmanna­hafnar, til að koma í Kristjaníu. Og það skorti ekki hugmyndir: veitinga­staðir og kaffihús, skauta­svell, leiktækja­svæði, kajak­siglingar um svæðið, göngu­ferðir með leiðsögn (með áherslu á fjöl­breyttan byggingar­stíl og sögu svæðisins), spark­vellir og fleira og fleira var nefnt. Sérstaka athygli vakti hugmynd um að koma upp loftbelgja­ferðum yfir svæðið og nágrenni þess og síðast en ekki síst hugmyndin um að koma upp hóteli í eða við Pusher Street. Að sögn íbúa hefur í gegnum árin verið mikið spurt um gistiaðstöðu í Kristjaníu en slíkt hefur ekki verið til staðar. Vinnu­hópurinn, Projektorkontoret, hefur nú þessar hugmyndir til skoðunar en á að skila tillögum sínum innan árs.

„Við höfum háleitar hugmyndir um framtíð Kristjaníu,“ sögðu forvars­menn vinnu­hópsins, sem kváðust bjartsýnir á framtíð svæðisins.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Það er forvitnilegt að lesa fréttir frá frændþjóðinni Danmörku. Tengslin við Danmörku eru sterk og því áhugavert er því að bera saman blómlega ferðaþjónustu í Danmörku við Ísland.
    Danmörk er öflugt ferðamannaland en kemst þó ekki í hálfkvist við Ísland. Ferðaþjónustan er um 8% af landsframleiðslu (GDP) á Íslandi en einungis um þriðjungur af því í Danmörku. Starfsfólk í ferðaþjónustu á Íslandi erum 35 þúsund, eða um 9% af íbúafjölda en í Danmörku er hlutfallið um 3%.
    OF HRAÐUR VÖXTUR. En það sem er í raun aðal áhyggjuefnið hérlendis er ekki fyrst og fremst stærð ferðaiðnaðarins þó hún hljóti að eiga sér takmörk. Mjög hraður og stjórnlaus vöxtur ferðaþjónustunnar á Íslandi er stóra vandamálið. Hraður vöxtur kallar einnig á mikla fjölgun starfsfólks og þar með fjölgun íbúa og veldur óheyrilegu álagi á marga helstu innviði landsins, álagi sem alls ekki hefur tekist að bregðast við með viðeigandi hætti.
    Í greininni í Heimildinn er vaxandi fjöldi gistinátta nefndur til sögunnar. Á árunum fram að Covid, t.d. frá 2011 til 2019 var góður vöxtur í ferðaþjónustu í Danmörku, 29% fjölgun gistinátta. En á sama tímabili var 204% vöxtur í ferðaþjónustu á Íslandi, um 7 sinnum hraðari vöxtur en í Danmörku.
    Danir hafa sett sér stefnu um fjölgun gistinátta um 9 milljónir frá 2013 til 2030. Þetta samsvarar fjölgun um 1,5 gistinótt per íbúa. Ef höfð er hliðsjón af farþegaspá ISAVIA samkvæmt umhverfismatsskýrslu um stækkun Keflavíkurflugvallar frá júní 2022, þá má lauslega áætla að fjölgun gistinátta frá 2023 til 2030 verði um 11 gistinótt per íbúa eða um 7 sinnum hraðari fjölgun gistinátta en í Danmörku. Þetta er auðvitað alveg galið og með öllu óviðráðanlegt fyrir marga innviði landsins. En jafnvel þrátt fyrir þessa mjög svo varfærnu stefnu Dana í ferðaiðnaðinum, þá heyrast þar áhyggjur af áhrifum ferðaiðnaðarins þar á fasteignamarkaðinn.
    VARFÆRIN STEFNA DANA. Það er líka áhugavert að Danir hafa markað sér stefnu um varfærin vöxt ferðaiðnaðarins. En í samanburði þá er vöxturinn á Íslandi stjórnlaus og gríðarlegur. Hér er engin stefna um varfærin vöxt, einungis er rætt um óljósar spár. Einskonar forlagatrú. Við skulum bara bíða og sjá hvað það birtast margir ferðamenn á næsta ári? Þegar eftirspurnin er mikil í ferðaþjónustu, eins og reyndin hefur verið, þá er fjölda ferðamanna að mestu stjórnað af magni gistirýmis og afkastagetu Keflavíkurflugvallar auk skatta og gjaldtöku af ýmsu tagi. Það er nú alveg komin tími á að stjórnvöld fatti þetta og taki að stjórna fjölda ferðamanna föstum tökum líkt og aðrar þjóðir sem við berum okkur saman við. En við höfum líka séð að hagsmunaaðilar berjast með kjafti og klóm gegn öllum tilraunum til að afnema afslátt af VSK af greininni og gegn flestum öðrum tilraunum til að hafa einhverja stjórn á vexti ferðaþjónustunnar. Er það kannski þannig að hagsmunaaðilar fara í raun með landstjórnina en ekki ríkisstjórnin?
    INNVIÐIR Á HLIÐINA. Afleiðingar af þessum öra vexti ferðaþjónustunnar á flesta innviði hafa verið hrikalegar, t.d. fasteignamarkað, byggingariðnað, vegakerfi, skólakerfi og heilbrigðiskerfi o.fl.
    Ferðaþjónusta hefur vaxið mikið. Aðflutningur vinnuafls í ferðaþjónustu og tengdum greinum, t.d. við byggingu hótela og gistirýmis og margfeldisáhrif þar af, hefur verið stærstur þáttur í um 1000 íbúafjölgun á mánuði mörg undanfarin ár. Íslenskir ríkisborgarar eru bara um tíundi hluti þessarar fjölgunar. Þetta setur spennu á húsnæðismarkaðinn. Og það heldur uppi eftirspurn á fasteignum sem svo heldur uppi verðbólgu í landinu. Og ruðningsáhrif á aðra starfsemi og nýsköpun eru mikil. Ferðaþjónustan dregur til sín vinnuafl, m.a. háskólanema sem eiga erfitt með að framfleyta sér á rýrum námslánum.
    Byggingariðnaðurinn ræður ekki við fólksfjölgunina og erlent láglauna vinnuaflið mun seint ráða við húsnæðiskostnað á Íslandi. Margir erlendir starfsmenn ferðaþjónustu búa því við ömurlegar aðstæður. Börnum þeirra gengur oft mjög illa í skóla, vegna ónægs stuðnings er hlutfallslega mun meira brottfall meðal barna nýbúanna en meðal Íslendinga.
    Vegaumferð á áratug hefur vaxið um 15% í Danmörku en meir en þrefalt meir á Íslandi. Víða er staðan enn verri, t.d. á þjóðveginum á Suðurlandi þar sem umferðin hefur vaxið um 400% á árattug, nær alfarið vegna fjölgunar ferðamanna. Vegurinn ber alls ekki þennan umferðaþunga. Það mun taka áratugi að byggja upp og viðhalda vegakerfinu á Íslandi svo það ráði við þessa umferðaraukningu með viðunandi hætti.
    ATGERVISFLÓTTI. Mjög hár húsnæðiskostnaður veldur því að ungt fólk, sem ekki á efnaða foreldra, á mjög erfitt með að koma þaki yfir höfuðið. Ungt fólk í í framhaldsnámi erlendis á einnig erfitt með að flytja heim að námi loknu, jafnvel hámenntað fólk með góð laun. Ungt fátækt fólk frestar því barneignum og fæðingartíðni snarlækkar, nema auðvitað hjá ungu fólki sem á efnaða foreldra. Áhrif húsnæðiskreppunnar sjást einnig á því að Íslendingum búsettum í Danmörku hefur fjölgað um 24% s.l. áratug á meðan íslenskum ríkisborgurum búsettum á Íslandi hefur einungis fjölgað um 7% á sama tíma. Fjölgun Íslendinga í Danmörku þrefalt meiri en hér heima. Atgervisflótti menntafólks er því mikill. Þetta á m.a. þátt í læknaskorti og löngum biðlistum í heilbrigðiskerfinu.
    JÁKVÆÐAR HLIÐAR FERÐAÞJÓNUSTU. En auðvitað eru líka margar jákvæðar hliðar á ferðaþjónustunni. Ríkissjóður hefur miklar tekjur og gjaldeyri af greininni. Mannlíf hefur auðgast með fjölda veitingastaða og mörgu fleiru. Víða úti á landi, væru enn fleiri túristar kærkomnir til að skjóta fleiri stoðum undir byggð í sveitum.
    EKKI VIÐ STARFSFÓLK FERÐAÞJÓNUSTU AÐ SAKAST ÞÓ INNVIÐIR LÍÐI FYRIR HRAÐAN VÖXT. Þar er við stjórnvöld að sakast sem hafa vanrækt að setja vexti ferðaþjónustunnar varfærna stefnu og fylgja henni eftir. En alvarlegast er þó að ekki hefur verið gætt að því að efla innviði til að þeir gætu tekið við þessum mikla fjölda ferðamanna og íbúafjölgunar sem leiðir af örum vexti greinarinnar. Í reynd þýðir líka þessi mikli vöxtur ferðaþjónustunnar að óeðlilega mikil áhersla er lögð á þessa láglauna atvinnugrein. Afleiðingin til lengri tíma er óhjákvæmilega hærri skattar á almenning og hnignandi velferðarþjóðfélagsins.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár