„Var að vinna fyrri atvinnu­grein­ina en ekki ein­staka stjórn­mála­flokka“ Vigdís Häsler sem vann á árum áður fyrir þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sem aðstoð­ar­kona ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins seg­ist aldrei á starfsæv­inni hafa kynnst jafn „ofboðs­legri póli­tík“ og innan Bænda­sam­tak­anna. Mynd: Golli

Grunaði að það ætti að reka hana

Vigdís Häsler var rekin úr starfi fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna eftir að nýr for­maður tók þar við fyrr á árinu. Hún segir kosn­inga­vél Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa verið gang­setta til að koma honum að. Vigdís ræðir brott­rekst­ur­inn og rasísk ummæli sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði um hana. Orðin hafi átt að smætta og brjóta hana niður. Hún seg­ist aldrei munu líta Sigurð Inga Jóhanns­son sömu augum eftir það.

Vigdís Häsler, er sátt við lífið og til­ver­una, sjö mán­uðum eftir að stjórn Bænda­sam­tak­anna til­kynnti henni að krafta hennar væri ekki óskað lengur þar. Hún seg­ist stolt af því sem hún og sam­starfs­fólk hennar komu til leiðar hjá sam­tök­unum. Þau hafi lyft grettistaki í mörgum málum sem hafi legið óbætt hjá garði lengi.

Vigdís greindi frá því á Facebook 8. apríl síð­ast­lið­inn að hún væri að hætta hjá Bænda­sam­tök­unum en hún var ráðin fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna, fyrst kvenna, í byrjun árs 2021.

„Sam­starfs­konur mínar sögðu stundum bæði í gríni og alvöru; jæja, ertu að fara á fund með mönn­unum,“ segir Vigdís en hún gegndi starf­inu í þrjú ár.  Margrét Ágústa Sig­urð­ar­dóttir er nú fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna.

„Stóðu ofboðslega óstyrkum fótum fjárhaglega“

Vigdís mætti til starfa í Bænda­höll­inni við Hagatorg í febr­úar árið 2021. Hún seg­ist hafa hlakkað til að vera tals­kona bænda. Fljót­lega hafi þó komið á dag­inn að það yrði ekki …

Kjósa
136
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IB
    Ingimundur Bergmann skrifaði
    Þið á Heimildinni eigið þakkir skyldar fyrir að kafa ofan í þetta mál. Aðförin að Gunnari var þeim ekki til sóma sem að stóðu, svo ekki sé nú talað um framkomuna við Vigdísi.
    1
  • Haraldur Eiríksson skrifaði
    "Það er mjög miður og afskaplega vont þegar hagsmunasamtök einkennast af pólitík,“ segir Vigdís.
    Mér svelgdist einfaldlega á kaffinu við það að lesa þetta viðtal við fyrrum forsvarsmann Bændasamtakanna. Höfum það alveg á hreinu að pólitíkin var aldrei langt undan þegar hún var þar í forsvari.
    Nærtækt að taka sem dæmi að hún neitaði með öllu að álykta um sjókvíaeldismál, þrátt fyrir að skjólstæðingar hennar ættu mest undir í verndun íslenskra laxastofna, en um 3000 lögbýli í landinu fá arð af veiðirétti. Hún fylgdi einfaldlega þeirri pólitísku línu sem hún átti að fylgja, án þess að hugsa um sína skjólstæðinga.
    Og hvar skyldi Vigdís annars vera komin í vinnu núna?
    Jú mikið rétt - hún var að hefja störf hjá Kleifum laxeldi.
    0
  • GOR
    Gunnar Oddur Rósarsson skrifaði
    Þarna fer kona sem mark er takandi á. Afar góð úttekt. Þessi þráhyggja sumra með húðlit, er afar einkennileg. Það er innihaldið sem skiptir máli. Ekki umbúðirnar. Í tilfelli Vigdísar er hvort tveggja í fínasta lagi, finnst mér.
    0
  • Dalila Ubillus skrifaði
    Eres una mujer muy linda y hermoso tu niño de cuatro patitas
    0
  • Eyþór Dagur skrifaði
    Snillingur þessi lögfræðingur og Íslendingur!!
    1
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Laun heimsins eru vanþakklæti. Það er bara þannig
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár