Dagur B. fær annað sætið í Reykjavík norður

Dagur B. Egg­erts­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, mun skipa annað sætið á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður á eftir for­mann­inum Kristrúnu Frosta­dóttur í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Þórður Snær Júl­í­us­son verður í þriðja sæti í kjör­dæm­inu.

Dagur B. fær annað sætið í Reykjavík norður

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar mun Dagur B. Egg­erts­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur og núver­andi for­maður borg­ar­ráðs, taka annað sætið á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í kom­andi alþing­is­kosn­ingum.

Oddviti kjör­dæm­is­ins verður Kristrún Frosta­dóttir, for­maður flokks­ins. Í þriðja sæti er Þórður Snær Júl­í­us­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, en hann gekk til liðs við flokk­inn nýlega. 

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður verður odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar þing­mað­ur­inn Jóhann Páll Jóhanns­son. Þá mun Ragna Sig­urð­ar­dóttir, læknir og vara­borg­ar­full­trúi, skipa annað sætið. Í því þriðja verður Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands og einn vara­for­seta ASÍ. Hann hafði til­kynnt að hann sækt­ist eftir öðru sæti á lista í Reykja­vík. 

Sam­fylk­ingin mun kynna lista sína fyrir kom­andi kosn­ingar opin­ber­lega klukkan 11 á morgun í Þrótt­ara­heim­il­inu í Laug­ar­dal. 

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár