Leið­ar­lok Eftir að Svandís tók við sem for­maður VG sagði hún skýrt að flokk­ur­inn myndi ekki styðja frek­ari breyt­ingar á útlend­inga­málum. Það virð­ist hafa spilað inn í ákvörðun Bjarna um stjórn­ar­slit. Mynd: Golli

Ágreiningurinn um útlendingamálin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Eitt stærsta þrætu­epli þeirrar rík­is­stjórnar sem nú hefur verið leyst upp sner­ist ekki um kjör Íslend­inga heldur útlend­inga. Raunar smáan hluta af þeim útlend­ingum sem eru búsettir hér, útlend­inga sem margir hverjir fara héðan aftur; svo­kall­aða hæl­is­leit­endur. Þó að um þrætu­epli hafi verið að ræða sam­þykkti þing­flokkur Vinstri grænna umdeild útlend­inga­frum­vörp Sjálf­stæð­is­flokks­ins ein­róma, frum­vörp sem hafa haft veru­legar afleið­ingar fyrir lít­inn hóp hæl­is­leit­enda og flótta­fólks. Oft höfðu þessi frum­vörp þó verið til mik­illar umræðu innan rík­is­stjórn­ar­innar og breyst í með­förum hennar og nefnda, áður en þau komu til sam­þykktar.

Umræðan um þennan hóp á hinum póli­tíska vett­vangi hefur farið hækk­andi á síð­ast­liðnum tveimur árum eða svo en hópur þeirra hefur vissu­lega farið stækk­andi á sama tíma, þó að hann hafi dreg­ist saman að nýju í ár. Á blaða­manna­fundi um síð­ast­liðna helgi, þegar Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti stjórn­ar­slit, nefndi hann efna­hags­málin sem mik­il­væg­asta mál rík­is­stjórn­ar­innar og mál­efni hæl­is­leit­enda næst­mik­il­væg­ust. Í …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þađ er sárt til þess ađ vita ađ blađamađur Heimildarinnar skuli éta upp botnlausann áróđur og lygar ,,famsóknarmanna" Íslands, þeirra sem sjá skrattann í öllu erlendu, innflutningi á matvöru sem fólki, sölu á landi sem fyrirtækjum en eru ađ stunda þađ þegar nauđsin krefur og hagnađurinn er nægur.
    0
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Þessi frétt er með ólíkindum. Blaðamaðurinn hlýtur að vita að þetta er alrangt.

    Vinstri græn studdu svo sannanlega ekki útlendingafrumvörp ráðherra Sjálfstæðisflokksins "þangað til rétt í lokin". Allt kjörtímabilið var slagur og togstreita milli VG og Sjálfstæðisflokksins. Þetta var öllum ljóst og margoft rætt í fjölmiðlum.

    Dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins hrökkluðust hvað eftir annað til baka með sín frumvörp. Guðrún Hafsteinsdóttir var æf yfir því að koma ekki í gegnum ríkisstjórnina frumvarpi um lokaðar búðir fyrir innflytjendur. Jón Gunnarsson hefur opinberlega kennt VG um að hann hrökklaðist úr ríkisstjórn án þess að koma í gegn útlendingafrumvarpinu sem hann vildi leggja fram. Hugmyndin um lokaðar búðir fyrir innflytjendur var á döfinni hjá ráðherrum Sjálfstæðisflokksins allt kjörtímabilið en ekki eingöngu í lokin. Þetta veit alþjóð.

    Hvers vegna fer Ragnhildur Þrastardóttir vísvitandi með rangt mál? Verður ekki að gera þá kröfu til blaðamanna að þeir hafi einföld sannindi á hreinu? Eru blaðamenn Heimildarinnar pólitískir áróðursmenn en ekki fréttamenn?
    3
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Ofangreind athugasemd varð til þess að blaðamaður breytti fyrirsögn og inngangi greinarinnar. Áður var fyrirsögnin:

      „Vinstri græn studdu útlendingafrumvörp Sjálfstæðismanna þangað til rétt í lokin“

      og inngangurinn eftir því.
      0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Fasisminn riður víða röftum á Íslandi
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Hafa ekki fengið lendingarleyfi: „Bíðum enn með tilbúnar ferðatöskur”
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Hafa ekki fengið lend­ing­ar­leyfi: „Bíðum enn með til­búnar ferða­töskur”

Flugvél sem átti að flytja venes­ú­elska hæl­is­leit­endur úr landi í lok febr­úar er enn ekki farin af stað. Sumir hæl­is­leit­end­anna voru þegar búnir að pakka í töskur og til­búnir að yfir­gefa landið þegar í ljós kom að Útlend­inga­stofnun hefði ekki fengið lend­ing­ar­leyfi. Þeir lifa nú í bið­stöðu en í Venes­ú­ela gæti beðið þeirra sól­ar­hrings varð­hald.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár