Hjúkrunarfræðingar í tæknigeiranum ætla að leysa vanda heilbrigðiskerfisins
Hjúkkur í tækni­geir­anum Auður Guð­munds­dóttir, Þorbjörg Þór­hildur Snorra­dóttir, Gulla Akerlie, Elfa Ólafs­dóttir og Hanna Rut Sig­ur­jóns­dóttir eru meðal hjúkr­un­ar­fræð­inga sem hafa hætt að vinna á heil­brigð­is­stofn­unum og fært sig yfir í tækni­geir­ann. Þær sjá tæki­færi í að breyta því hvernig heil­brigð­is­þjón­usta er veitt og minnka þannig álag og streitu í heil­brigð­is­kerf­inu. Mynd: Golli

Hjúkrunarfræðingar í tæknigeiranum ætla að leysa vanda heilbrigðiskerfisins

Fimm hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem sögðu skilið við spít­al­ann og heilsu­gæsl­una og skiptu yfir í heil­brigð­is­tækni­geir­ann vilja gera það sem þær geta til að bæta starfs­um­hverfi heil­brigð­is­starfs­fólks og breyta því hvernig heil­brigð­is­þjón­usta er veitt. Þær sakna þess að starfa „á gólf­inu“ en minni streita, sveigj­an­legur vinnu­tími og hærri laun halda þeim í tækni­geir­anum.

Teym­is­stjóri, þjón­ustu­stjóri, vöru­stjóri, verk­efna­stjóri og mark­aðs­stjóri. Allt eru þetta starfstitlar hjúkr­un­ar­fræð­inga sem hafa söðlað um, hætt að ann­ast sjúk­linga og haslað sér völl í tækni­geir­anum, nánar til­tekið heil­brigð­is­tækni­geir­anum. En þær líta fyrst og fremst á sig sem hjúkr­un­ar­fræð­inga. 

„Það er lífs­stíll að vera hjúkr­un­ar­fræð­ingur, maður gefur allt í þetta,“ segir Auður Guð­munds­dóttir, teym­is­stjóri skjá­vers hjá vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar. Blaða­maður sest niður með henni og fjórum öðrum hjúkr­un­ar­fræð­ingum, allt konum, sem hafa fjöl­breytta reynslu úr heil­brigð­is­kerf­inu, allt frá sjúkra­hús­inu á Sauð­ár­króki til bráða­mót­tök­unnar á Land­spít­ala, en hafa nú alfarið fært sig yfir í tækni­geir­ann. Ástæð­urnar eru margs konar en sveigj­an­legur og fjöl­skyldu­vænni vinnu­tími, hærri laun og minna álag eru lyk­il­þættir. 

Því fylgir örygg­is­kennd að vera umkringd hjúkr­un­ar­fræð­ingum en það skýtur örlítið skökku við að vera í fund­ar­her­bergi í höf­uð­stöðvum Helix, vel­ferð­ar­fyr­ir­tækis innan Origo sam­steypunnar, í Borg­ar­túni með útsýni yfir hafið og Esjuna en ekki á bið­stofu eða í skoð­un­ar­her­bergi á heil­brigð­is­stofnun. Þorbjörg …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár