Tón­list­ar­menn Hugsuðir hátíð­ar­innar: Bjarni Frímann Bjarna­son, Sverrir Páll Sverr­is­son og Magnús Jóhann Ragn­ars­son. Á mynd­ina vantar Berg Þórisson. Mynd: Golli

Sjúkir í barokk geta líka mætt

„Hljómar tón­list öðru­vísi þegar hún er sett í nýtt sam­hengi?“ spyrja aðstand­endur tón­list­ar­há­tíð­ar­innar State of Art – Hátíðin fer fram hér og þar í Reykja­vík dag­ana 8.–13. októ­ber og meg­in­stef hennar er sam­tím­inn.

H

átíðin State of Art skartar óvenju skap­andi dag­skrá, mögn­uðu tón­list­ar­fólki og leik sem sprúðlar.

Á hátíð­inni mun Bjarni Frímann Bjarna­son flytja flygil inn á bif­reiða­verk­stæðið Highland Trucks á Smiðju­vegi 4a og spila þar ein­leiks­konsert fyrir píanó. Hann hefur verið stað­ar­hljóm­sveit­ar­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, tón­list­ar­stjóri Íslensku óper­unnar og væfl­ast um ver­öld­ina með Björk sem hljóm­sveit­ar­stjóri en er nú list­rænn stjórn­andi hjá Bit20 hljóm­sveit­inni í Bergen.

Stofnaði bara hátíð með strákunum

Eitthvað við þennan stráks­lega píanó­leik­ara tendrar hug­hrif við bók­ar­titil Charles Bukowski: Play the piano drunk like a percussion instru­ment until the fingers begin to bleed a bit.

Raunar á það við um hina aðstand­endur hátíð­ar­innar líka og hátíð­ina sem slíka. Þeir tala eins og ólg­andi djass­spuni spurðir um hátíð­ina og Bjarni segir: „Við vorum upp­haf­lega að tala um að skipu­leggja einn eða tvo tón­leika í litlum sal. Vorum með hug­myndir um [hljóð­gervil] sem …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár