„Erfitt að finna réttu lausnina“

Laun þingmanna hafa verið gríðar­lega umdeild í gegnum árin, sérstak­lega eftir hækkanir Kjararáðs árið 2016 þegar laun þingmanna hækkuðu heil 44,3 pró­­­­­­­­­­­sent. Þrátt fyrir laga­setningu þremur árum síðar þá hefur ekki náðst sátt um laun þingmanna. Forseti Alþingis telur að lögin þarfnist endur­skoðunar.

Laun forseta Alþingis miðast við ráðherralaun
Laun for­seta Alþingis mið­ast við ráð­herra­laun Birgir vill að tryggt sé að þing­menn hald­ist á pari við þá í launum sem gegna sam­bæri­legum störfum. Mynd: Bára Huld Beck

Meðal­tekjur þingmanna og ráðherra á mánuði sem sátu á Alþingi í fyrra voru 1,7 milljónir króna og meðal­heildar­tekjur með fjármagns­tekjum tæpar 21 milljón.

17.925.600 kr.Ráðherrar ríkis­stjórnarinnar og forseti Alþingis eru með hærri laun en hinn óbreytti þingmaður. Meðal­tekjur ráðherra árið 2023 á mánuði voru rúmar 2,3 milljónir króna og meðal­heildar­tekjur tæpar 30,5 milljónir. 

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, var næst­tekjuhæsti fulltrúinn á Alþingi árið 2023 með meðal­tekjur á mánuði upp á 2,7 milljónir, á eftir Katrínu Jakobs­dóttur. Jón var með tæpar 500 þúsund í fjármagns­tekjur en heildar­tekjur hans voru 33,3 milljónir. 

Mismunandi greiðslur til þingmanna

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og forseti Alþingis, var þriðji tekju­hæsti á þingmanna­listanum með tæpar 2,4 milljónir króna í meðal­tekjur á mánuði og heildar­tekjur upp á 29,8 milljónir. Fjármagns­tekjur Birgis voru tæpar 1,2 milljónir en í samtali við Heimildina segir hann að þær fjármagns­tekjur skýrist af því að hann …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Þegar laun á almenna-vinnumarkaðnum hafa verið samþykkt, þá eiga þjóðkjörnir að fá sömu launahækkanir að fráteknum hlunnindagreiðslum sem eru umfram það sem þekkist á almenna-vinnumarkaðnum, launamunur verkafólks og þjóðkjörinna verði aldrei meiri en þrefaldur, engu skiptir hvort það eru gerðir krónutölu-samningar eða prósentu-samningar, málið dautt.
    0
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Þeir hafa þá efni á því að detta í það!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár