Sund í köldu vatni bætir líðan á breytingaskeiði

Verulega dregur úr nei­kvæðum ein­kennum breyt­inga­skeiðs, bæði and­legum og lík­am­legum, hjá konum sem synda reglu­lega í köldu vatni. Þetta segja konur sem tóku þátt í rann­sókn breskra vís­inda­manna.

Sund í köldu vatni bætir líðan á breytingaskeiði
Sjósund Mikil sjó­sundsvakn­ing hefur orðið á Íslandi síð­ustu ár og fjöld­inn allur af konum stundar slíkt sund, m.a. út frá Naut­hóls­vík. Mynd: Golli

Konur sem synda reglu­lega í köldu vatni segj­ast finna mik­inn mun til hins betra á bæði lík­am­legum og and­legum ein­kennum breyt­inga­skeiðs, að því er rann­sókn sem vís­inda­menn við Uni­versity College í London gerðu og birt var í vís­inda­tíma­rit­inu Post Repruductive Health í upp­hafi árs. 1.114 konur tóku þátt í rann­sókn­inni og 785 þeirra voru á breyt­inga­skeiði. Til­gangur rann­sókn­ar­innar var að kanna áhrif þess að synda í köldu vatni á heilsu kvenna og lífs­gæði.

„Kalt vatn er und­ur­sam­legt. Það hefur bjargað lífi mínu“
57 ára sjó­sunds­kona

Þær konur sem voru á breyt­inga­skeiði sögð­ust finna minna fyrir kvíða (46,9%), sveiflum í líðan (34,5%) og hita­kófum (30,3%) við það að synda í köldu vatni. Meiri­hluti kvenn­anna sagð­ist raunar synda við þessar aðstæður til þess einmitt að draga úr nei­kvæðum ein­kennum breyt­inga­skeiðs en þau geta verið fjöl­mörg og haft mikil áhrif á lífs­gæði. Sumar kvenn­anna sögðu að kalda vatnið drægi þegar í stað úr streitu og kvíða og sögðu sundið hafa græð­andi áhrif á þær.

Ein kona, 57 ára, sagði: „Kalt vatn er und­ur­sam­legt. Það hefur bjargað lífi mínu. Í vatn­inu, þá get ég gert hvað sem er. Öll ein­kenni, lík­am­leg og and­leg, hverfa og mér líður eins vel og hugs­ast getur.“

Joyce Harper, pró­fessor og sér­fræð­ingur í kven­heilsu, er aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar. Hún bendir á að því hafi lengi verið haldið fram að það að synda í köldu vatn geti haft jákvæð áhrif á skap fólks og dregið úr streitu. Þá nefnir hún enn­fremur að köld böð hafi lengi verið notuð við end­ur­heimt hjá íþrótta­fólki.   

„Rannsókn okkar styður við þessar full­yrð­ingar,“ segir hún. Nið­ur­stöð­urnar sýni að konur geti notað sund í köldu vatni til að létta á ein­kennum breyt­inga­skeiðs, m.a. hita­kófum og verkjum. „Það þurfa að fara fram frek­ari rann­sóknir,“ bætir hún þó við, sér­stak­lega þegar komi að því hversu oft, hversu lengi og þar fram eftir göt­unum þurfi að vera í köldu vatni til að ná fram þeim ávinn­ingi sem þátt­tak­endur í rann­sókn­inni lýstu. „Engu að síður þá vonum við að nið­ur­stöður okkar geti gefið konum val­kost, konum sem eiga erfitt á breyt­inga­skeiði og hvatt þær til að stunda hreyf­ingu.“

Joyce HarperAðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar er sér­fræð­ingur í kven­helsu.

Harper segir að kon­urnar hafi flestar synt í köldu vatni til að létta á kvíða, skap­sveiflum og hita­kófum. Þær sögð­ust hafa fundið að slíkt sund hjálp­aði frekar en sund í heit­ara vatni. Sundið sjálft væri ekki eini ávinn­ing­ur­inn því það að vera úti í nátt­úr­unni og í félags­skap ann­arra, til­heyra sam­fé­lagi sem sam­ein­ast um áhuga­mál, hefði einnig góð áhrif.

Vís­inda­menn­irnir vilja þó minna á að ákveðin áhætta fylgi því að synda í köldu vatni og ekki mælt með því að stinga sér til sunds hvar sem er og við hvaða aðstæður sem er. Mengun vegna skolps í ám og sjó eru meðal þess sem varað er við í Bret­landi til dæmis. Þá þurfi að venja lík­amann við kuld­ann smám saman áður en synt er af stað.

Rann­sóknin er birt með ákveðnum fyr­ir­vara. Um er að ræða rann­sókn sem aug­lýst var á sam­fé­lags­miðlum á tveggja mán­aða tíma­bili. Einhver skekkja er sögð kunna að vera í nið­ur­stöð­unum þar sem rann­sóknin var byggð á svörum kvenna sem þegar synda reglu­lega í köldu vatni. Þá er enn­fremur lík­legra konur sem hafa upp­lifað tengsl milli þess að synda í kvöldu vatni og ein­kenna breyt­inga­skeiðs­ins hafi svarað könn­un­inni.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár