Litadýrð á sólríkum degi í miðborginni

Er sum­arið komið? Svarið er já, að minnsta kosti á suð­vest­ur­horn­inu akkúrat þessa stund­ina. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar var á vappi um mið­borg­inni í dag og fang­aði mann­lífið.

Litadýrð á sólríkum degi í miðborginni

Mið­borgin iðar af lífi og lita­dýrðin var alls­ráð­andi þegar ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar var á ferð­inni um hádeg­is­bil.

Veð­urguð­irnir verða blíð­astir við íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Sunn­lend­inga um helg­ina en búast má við að gest­kvæmt á Suð­ur­land­inu um helg­ina. 

Fremur hæg norð­læg átt eða haf­gola verður á land­inu á morgun, laug­ar­dag, en hiti gæti farið yfir 20 gráð­urnar í inn­sveitum á Suð­ur­landi. Á Austur- og Norð­ur­landi er ekki alveg sömu sögu að segja þar sem hiti verður á bil­inu fjórar til níu gráður. 

Gæðum sum­ars­ins er mis­skipt, en borg­ar­búar njóta þessa stund­ina eins og sjá má á þessum myndum:

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár