Eurovision í skugga mótmæla – veisluhöld og vígbúnaður í Malmö
Stans­laus mót­mæli Þátttöku Ísrael í Eurovision er reglu­lega mót­mælt í Malmö. Búist er við því að mót­mælin muni aukst til muna þegar nær dregur loka­keppn­inni. Mynd: AFP

Eurovision í skugga mótmæla – veisluhöld og vígbúnaður í Malmö

Það er ekki tekið út með sæld­inni að efna til Eurovision­há­tíðar. Þessu eru íbúar Malmö að átta sig á nú þegar hátíð­ar­höldin eru að hefj­ast. Emil B. Karlsson hefur fylgst með frétta­flutn­ingi sænskra fjöl­miðla af áhyggjum sem fylgja gleði­há­tíð­inni.

Ætla má að þeir borg­ar­full­trúar sem fögn­uðu sem ákaf­ast í Ráð­hús­inu í Malmö þann 7. júlí á síð­asta ári, þegar til­kynnt var að borgin hefði verið valin til að halda Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Eurovision 2024, séu nú farnir að ókyrr­ast. Mótmæli vegna árásar Ísra­els­hers á Palest­ínu­menn veldur þar mestu. Í ofaná­lag er í Svíþjóð hátt við­bún­að­ar­stig vegna hryðju­verkaógnar sem er til­komið vegna opin­berra Kór­an­brenna í Svíþjóð. Strangt örygg­is­eft­ir­lit á því eftir að setja svip sinn á hátíð­ina.  

Liðsauki lögreglu frá Noregi og Danmörku 

Við­bún­að­ar­stig lög­reglu hefur verið aukið. Á meðan að á rúm­lega viku­langri Eurovision­há­tíð stendur verða lög­reglu­menn sýni­legir um alla borg, sumir þung­vopn­aðir, ber­andi sjálf­virk skot­færi. Vegna umfangs­ins hefur sænska lög­reglan samið við lög­reglu­emb­ætti í Danmörku og Noregi um að senda liðs­auka frá þessum nágranna­löndum. Þá verður vopna­leit á gestum algeng þar sem fólk safn­ast saman og í and­dyrum hót­ela. Auk þess verða götu­lok­anir víða um borg­ina. …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Leiðinlegt hvað þetta Gaza-stríð klyfur samfélagið okkar. Það er eins og aldrei áður hafi verið framin mannréttindabrot en allt í einu er fólk að tjá sig herskátt um Gaza sem hefur ekki látið heyra í sér varðandi Myjanmar, Suður-Sudan eða Jemen, en þar eru ekki minni mannréttindabrot framin en núna í Gaza.
    Reyndar er ég að hugsa, hvaða öfl kýnda undir þetta ósætti í okkar samfélagi. Ég meina, að fólk láti sig varða mannréttindi er bara jákvætt, en það er svo mikil heift og skautun núna. Gagnkvæma ofbeldið milli Araba og Israelsmanna er ekki nýtt af nálinni en aldrei áður hef ég upplifað að einhver atburður þarna fyrir botni Miðjarðarhafs hafði slík áhrif á okkar samfélag.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár