Kínverjar sagðir niðurgreiða útfluttar vörur til að selja ódýrt

Á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins jókst útflutn­ingur Kínverja langtum meira en spáð hafði verið. Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin gruna Kínverja um að beita óeðli­legum aðferðum til að halda uppi fram­leiðsl­unni og selja varn­ing á und­ir­verði til ann­arra landa.

„Látið Kína sofa, því þegar Kína vaknar mun heim­ur­inn skjálfa“, eru ummæli sem stundum hafa verið eignuð Napoleon Bonap­arte.

Hvort sem keis­ar­inn hefur látið sér þetta um munn fara eða ekki er hitt stað­reynd, Kína er löngu vaknað. Á síð­ustu ára­tugum hefur Kína orðið sífellt umsvifa­meira í alþjóða­við­skiptum og er í dag eitt stærsta efna­hags­kerfi heims. Eftir að Kína varð aðili að Alþjóða­við­skipta­stofn­un­inni í lok árs 2001 jókst erlend fjár­fest­ing í land­inu veru­lega og upp­gang­ur­inn mik­ill.

Banka­hrunið og efna­hag­skreppan haustið 2008 hafði umtals­verð áhrif í  Kína sem þá var orðið þriðja stærsta efna­hags­kerfi heims, aðeins Banda­ríkin og Japan voru stærri. Kín­verska efna­hags­kerfið byggði á þessum tíma að veru­legu leyti á fram­leiðslu og útflutn­ingi neyslu­varn­ings fyrir Vest­ur­lönd. Minnk­andi eft­ir­spurn í kjöl­far krepp­unnar olli umtals­verðu atvinnu­leysi í Kína og árið 2009 voru um 40 millj­ónir atvinnu­lausra í land­inu.

Hag­kerfið náði sér fljót­lega á strik og „kín­verska ævin­týrið“ eins og það var kallað hélt áfram. Það var ekki síst bygg­inga­iðn­að­ur­inn sem keyrði hjól atvinnu­lífs­ins áfram, og þar var ekki slegið af.

Byggt og byggt

Það kvað vera fal­legt í Kína.

Keis­ar­ans hallir skína

hvítar við safírsænum.

Línurnar hér að ofan eru upp­haf ljóðs eftir Tómas Guð­munds­son. Margir geta tekið undir með skáld­inu að víða er fal­legt í þessu stóra landi og vissu­lega eru þar skín­andi keis­ara­hallir. Þótt keis­ar­arnir hafi á sínum tíma haft rúmt um sig í glæstum sal­ar­kynn­unum þætti þeim lík­lega nóg um allan þann ara­grúa bygg­inga sem sprottið hafa upp í land­inu á síð­asta ára­tug eða svo. Í við­tali banda­ríska hag­fræð­ings­ins Mark Williams við sjón­varps­stöð­ina CNN árið 2021 kom fram að þá væru um það bil 30 millj­ónir óseldra fast­eigna í Kína og til við­bótar væru um 100 millj­ónir fast­eigna sem þegar hefðu verið seldar en eng­inn byggi í. 

„Í Kína eru ekki bara fast­eigna­fyr­ir­tæki í vand­ræðum. Um síð­ustu ára­mót voru 8,5 millj­ónir Kínverja á svo­nefndum svarta lista yfir­valda“

Í áður­nefndu við­tali sagð­ist Mark Williams telja að fram undan væri sam­dráttur á hús­næð­is­mark­aðnum í Kína og því myndu fylgja erf­ið­leikar, bog­inn hefði verið spenntur of hátt. Hann reynd­ist sann­spár. Þegar áður­nefnt við­tal fór fram 2021 var farið að braka í und­ir­stöðum fast­eignaris­ans Evergrande, eins stærsta fyr­ir­tækis Kína. Til­raunir til að bjarga fyr­ir­tæk­inu stóðu lengi yfir en báru ekki árangur. Í lok jan­úar á þessu ári var til­kynnt að Evergrande yrði tekið til skipta­með­ferðar, skuldir fyr­ir­tæk­is­ins jafn­giltu þá 40 þús­und millj­örðum íslenskra króna (hvað eru mörg núll í þeirri tölu?). Mörg önnur kín­versk fast­eigna­fyr­ir­tæki hafa einnig átt í erf­ið­leikum og kom­ist í þrot.

8,5 milljónir á svarta listanum

Í Kína eru ekki bara fast­eigna­fyr­ir­tæki í vand­ræðum. Um síð­ustu ára­mót voru 8,5 millj­ónir Kínverja á svo­nefndum svarta lista yfir­valda, langstærsti hlut­inn er fólk á aldr­inum 18–59 ára. Ástæða þess að ein­stak­lingur lendir á þessum svarta lista er sú að við­kom­andi hefur ekki getað staðið í skilum með afborg­anir af hús­næð­is­láni eða svo­nefndu rekstr­ar­láni, vegna fyr­ir­tækis.

Og það er ekk­ert grín að lenda á svarta list­anum, sá sem þar er getur ekki keypt flug­miða og ekki notað greiðslu­kort í versl­unum. Sá skuldugi getur ekki fengið vinnu hjá rík­inu, sama gildir um fjöl­skyldu hans. 8,5 millj­ónir eru um það bil 1 pró­sent fólks á vinnu­aldri í land­inu, og þeim sem eiga í greiðslu­erf­ið­leikum hefur fjölgað mikið að und­an­förnu, það helst í hendur við aukið atvinnu­leysi.

Útflutningurinn jókst til muna

Minni útflutn­ingur og sam­dráttur í bygg­ing­ar­iðn­aði hefur valdið kín­verskum stjórn­völdum áhyggjum. Þau hafa gripið til aðgerða, meira um það síðar í pistl­inum. Og þær aðgerðir hafa skilað árangri, sem hafa vakið athygli og komið á óvart. Spá hag­fræð­inga víða um heim, sem Reuters-frétta­stofan birti fyrir skömmu, gerði ráð fyrir að útflutn­ingur frá Kína myndi aukast um 1,9 pró­sent á fyrstu tveim mán­uðum árs­ins. Útflutn­ing­ur­inn jókst hins vegar um 7,1 pró­sent.

Það eru einkum Rússland og Indland ásamt löndum í Afríku og Suður-Ameríku sem eiga þar stærstan hlut. Aukn­ingin kemur sér vel fyrir Kínverja en bitnar að sama skapi á mörgum öðrum löndum þar sem fram­leið­endur geta ekki keppt við inn­flutn­ing­inn frá Kína. Á fundi leið­toga margra Evr­ópu­ríkja, með kín­verskum ráða­mönnum, í Peking í des­em­ber sl., lýstu evr­ópsku leið­tog­arnir áhyggjum vegna fjölda verk­smiðja sem verið væri að reisa í Kína, kannski marg­falt fleiri en þörf er fyrir. Kín­verjar fram­leiða nú um það bil þriðj­ung alls iðn­varn­ings í heim­inum. Það er meira en Banda­ríkin, Þýska­land, Japan og Suður-Kórea fram­leiða til sam­ans, sam­kvæmt tölum frá Iðn­þró­un­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Framleiða allt milli himins og jarðar

Kín­verjar fram­leiða allt milli him­ins og jarðar: stál, bíla, bíla­vara­hluti, sól­ar­sellur, vind­myllur, vinnu­palla, alls kyns raf­tæki, verk­færi, hús­gögn, skart­gripi, fatnað, síma, tölvur og leik­föng, svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrir örfáum árum voru kín­verskir bílar mjög sjald­séð sjón utan heima­lands­ins en nú sjást þeir þar æ oftar, teg­und­irnar orðnar fjöl­margar og gæðin sögð jafn­ast á við það sem best ger­ist í heimi bif­reið­anna. Bílarnir eru ein­ungis eitt dæmi um sókn Kínverja inn á mark­aði þar sem þeir létu áður lítið að sér kveða.

Lægra verð vekur grunsemdir

Austan hafs og vestan finnst mörgum Kín­verjar orðnir nokkuð frekir til fjörs­ins, ef svo má að orði kom­ast. Stór­auk­inn inn­flutn­ingur á alls kyns varn­ingi frá Kína, á hag­stæðu verði, bitnar á fram­leið­endum í öðrum löndum, einkum og sér­ílagi ef verðið frá þeim kín­versku er hag­stæð­ara. Stundum er sagt að kaup­endur kaupi með vesk­inu, velji ódýr­ari kost­inn ef tveir eru í boði.

Upp á síðkastið hafa komið fram efa­semdir varð­andi verð­lagn­ingu á útflutn­ings­varn­ingi Kínverja. Talsmenn Evr­ópu­sam­bands­ins segj­ast hafa sann­anir fyrir því að Kín­verjar hafi nið­ur­greitt bíla sem fluttir eru úr landi og í und­ir­bún­ingi sé að leggja sér­stakan toll á raf­magns­bíla sem fluttir eru til Evrópu frá Kína. Hve háir toll­arnir verða liggur ekki fyrir á þess­ari stundu. Kín­verjar neita því að bílar sem fluttir eru úr landi séu með ein­hverjum hætti nið­ur­greiddir. Sama gildi um aðrar vörur sem fram­leiddar eru í land­inu.

Mikill inn­flutn­ingur kín­verskra vara hefur lengi verið þyrnir í augum banda­rískra ráða­manna. Donald Trump lagði í for­seta­tíð sinni refsi­tolla á fjöl­marga kín­verska vöru­flokka, þeir eru enn í gildi og stjórn Joe Biden setti enn fremur hömlur á útflutn­ing margs konar tækni­varn­ings til Kína.

Krókur á móti bragði

Til að kom­ast hjá tolla­hindr­unum senda Kín­verjar nú í auknum mæli margs kyns vörur, næstum full­unnar, til landa sem ekki sæta tolla­hindr­unum, til dæmis Víetnam, Malasíu og Mexíkó. Þar er lögð loka­hönd á varn­ing­inn og hann síðan seldur til Banda­ríkj­anna og Evrópu, sem fram­leiðsla við­kom­andi lands, en Kína hvergi getið.

Hagstætt verð á kín­verskum vörum hefur líka aukið við­skipti þjóða Suður-Ameríku og Afríku við Kína,  og dregur að sama skapi úr við­skiptum þess­ara þjóða við Banda­ríkin og Evrópu.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár