Við skrifum tónlist saman í myrkrinu

Bassa­leik­ari Vampíru var svo ákveð­inn í að hljóm­sveitin fengi við­tal í Heim­ild­inni að það var ekk­ert annað í stöð­unni en að vinna Mús­íktil­raunir 2024. Hljóm­sveitin vann og Heiða Eiríks fór á flug með Vampíru sem bla­staði út í kosmósið: „Ekki leyfa blackmetal að deyja, það er bara rétt að byrja.”

Við skrifum tónlist saman í myrkrinu
Sig­ur­veg­arar Vampíra sýndi hvað blackmetal getur verið – og vann!

Ég sit fyrir framan Norð­ur­ljós áður en fjórða und­an­úr­slita­kvöldið hefst. Inn skokkar bassa­leik­ari Vampíru sem komst í úrslitin á þriðja und­an­úr­slita­kvöld­inu í gær. Hann sest hjá mér og spyr mig fyrst hvað ég sé að lesa og svo fyrir hvern ég sé að skrifa. Ég segi honum það og sýni honum það sem ég hafði sagt um hljóm­sveit­ina hans kvöldið áður. Hann er mjög sáttur og lofar að sýna félögum sínum grein­ina.

Svo fer hann að tala um blackmetal og hvað þeir í Vampíru væru að hugsa um margt og hvort ég gæti ekki tekið við­tal við þá? „Ja, ég á að taka við­tal við sig­ur­sveit­ina fyrir Heim­ild­ina, en ég hef víst ekki pláss fyrir meira,“ segi ég afsak­andi. „Þá verðum við bara að vinna,“ segir Reynir Bergmann Guð­munds­son mjög ein­beittur, og það hljómar næstum því eins og það sé bara forms­at­riði, svo þeir kom­ist nú í við­tal. …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár