Heimilisfriður mikilvægt úrræði: „Þau komu mér á rétta braut og hérna hjálpuðu mér rosalega mikið“

Gerendur heim­il­is­of­beldis sem hafa leitað sér aðstoðar hjá Heim­il­is­friði, sem er úrræði fyrir ein­stak­linga sem beita ofbeldi í nánum sam­böndum, von­ast til þess að mið­stöðin fái að vaxa og dafna. „Þau komu mér á rétta braut,“ sagði einn ger­and­inn.

Heimilisfriður mikilvægt úrræði: „Þau komu mér á rétta braut og hérna hjálpuðu mér rosalega mikið“
Í skýrsl­unni lýsir faðir hvernig hann fann að ofbeldið sem hann beitti var farið að hafa áhrif á börnin á heim­il­inu. Mynd: Sviðsett / Pexels

Heim­il­is­friður er með­ferðar- og þekk­ing­ar­mið­stöð um ofbeldi í nánum sam­böndum. Um 150 manns koma á hverju ári í fyrsta við­tal til Heim­il­is­friðar til að leita sér aðstoðar eftir að hafa beitt heim­il­is­of­beldi. Á síð­asta ári gerði Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands úttekt á með­ferð­ar­úr­ræð­inu, að beiðni félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Með­ferð­ar­að­ilar hjá Heim­il­is­friði telja úrræðið mik­il­vægt í sínu bata­ferli og finna mun eftir að með­ferð hófst. 

Úttektin var gerð á skjól­stæð­ingum Heim­il­is­friðar á árunum 2017 til 2023. 

Í skýrsl­unni lýsir einn faðir hvernig hann fann að ofbeldið sem hann beitti var farið að hafa áhrif á börnin á heim­il­inu. Var það hvat­inn sem fékk hann til að leita sér hjálpar. Börnin forð­uð­ust föður sinn þar sem þau vissu sjaldan í hvernig skapi hann var í þann dag­inn. 

„Þegar ég kom heim úr vinn­unni og svona þá forð­uðu börnin sér inn í her­bergi, vildu voða lítið við mig tala og þetta var alltaf spurn­ing um það hvort að pabbi verði reiður eða ekki þannig að ég bara ákvað að reyna að gera eitt­hvað í mínum málum.“

Í hverri viku leita að jafn­aði þrír ger­end­ur í heim­il­isof­beld­is­mál­um sér að­stoð­ar hjá Heim­il­is­friði í fyrsta skipti. Markmið með­ferð­ar er að ger­end­ur hætti að beita of­beldi og taki ábyrgð. Sál­fræð­ing­ar hjá Heim­il­is­friði segja það mik­ið tabú að gang­ast við því að hafa beitt of­beldi. Skömm­in er enn meiri hjá kon­um sem eru ger­end­ur.

Varnarviðbrögð við ofbeldi

Mörkin milli ger­anda og þol­anda sem leita sér hjálpar hjá Heim­il­is­friði eru ekki alltaf ljós. Tvær konur, sem töldu sig vera ger­endur, leit­uðu til Heim­il­is­friðar að eigin frum­kvæði. Höfðu makar þeirra sann­fært þær um að þær væru ofbeld­is­fullar og „hræði­legar mann­eskjur.“ Önnur kvenn­anna sagði mann­inn sinn saka sig um að beita hann lík­am­legu, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. „Ég nátt­úru­lega kem þangað inn með það hug­ar­far sko, mitt hug­ar­far er nátt­úru­lega þannig að ég er ofbeld­is­mann­eskja sko, og bara hvernig laga ég það.“

Þær gerðu sér báðar grein fyrir því í með­ferð hjá Heim­il­is­friði að þær væru með varn­ar­við­brögð við ofbeldi sem var verið að beita þær eða „reactive abuse.“ Er það eitt­hvað sem ger­ist þegar ein­stak­lingur hefur verið í langan tíma í óheil­brigðum aðstæðum. 

Í sam­böndum þar sem báðir ein­stak­lingar beittu ofbeldi leit­aði annar aðil­inn til Heim­il­is­friðar, í þeirri von um að maki þeirra myndi fylgja á eftir. „Ég held hann hafi kannski bara ekki verið opinn fyrir þessu,“ sagði þol­andi og ger­andi. Sagði við­kom­andi að honum þætti maki sinn beita sig meira ofbeldi en hún hann. „En ég ákvað bara að byrja á sjálfri mér og vona að hann mundi fylgja mér eftir. En svo var það ekki þannig.“

Ólíkar birtingamyndir ofbeldishegðunar

Ein birt­ing­ar­mynd ofbeldis er stöðug eft­ir­fylgni í gegnum síma og tölvu. „Ég sá það, ég fór bara inn á sett­ings og sá að það var ein­hver annar skráður sími inná mína reikn­inga.“ 

Skjól­stæð­ingar Heim­il­is­friðar voru í sumum til­vikum ekki jafn lík­legir og mak­arnir til að við­ur­kenna ofbeld­is­brot.

Í skýrsl­unni stendur að það komi „ekki á óvart þar sem algengt er að svar­endur hafa til­hneig­ingu til að fegra svör sín þegar spurt er um við­kvæm og alvar­leg mál­efni á borð við að beita lík­am­legu ofbeldi.“ 47% þolenda sögðu að í hefð­bundnum mán­uði hefði þeim verið hrint, það hefði verið hrifsað í þá eða snúið upp á hand­legg þeirra.

Aðeins 19% ger­enda við­ur­kenndu að þeir hefðu sýnt af sér slíka hegðun. 31% þolenda lentu í því að ein­hverju var hent á eftir þeim eða þeir barnir með ein­hverju en 16% ger­enda geng­ust við slíkri hegðun. Í þeim til­vikum sem fórn­ar­lamb seg­ist hafa orðið fyrir hót­unum um lík­am­legt mein við­ur­kenna nán­ast allir ger­endur að hafa hótað slíku. 

Eftir að með­ferð var hafin hjá Heim­il­is­friði lækk­uðu hlut­föllin veru­lega hjá þeim sem hefðu upp­lifað ofbeldi. Ofbeldið hvarf ekki að öllu leyti. „Þannig lækk­aði hlut­fall þeirra sem sagði maka hafa hrint sér eða þrifið í sig um meira en helm­ing (úr 47% í 20%).“ 

Í skýrsl­unni kemur fram að 20% þolenda hefðu verið þving­aðir eða reynt að þvinga til þá sam­fara með ofbeldi og hót­unum. Enginn ger­end­anna sagð­ist hafa beitt slíku ofbeldi. Eftir að með­ferð hófst lækk­aði hlut­fallið um helm­ing eða niður í 10%. „Þetta sýnir að þótt lík­am­legt ofbeldi hafi ekki horfið að öllu þá dró veru­lega úr því, sem gefur til kynna að með­ferð­ar­úr­ræðið hafi jákvæð áhrif,“ segir í skýrsl­unni.

Talsvert algeng­ara var að skjól­stæð­ingar beittu and­legu ofbeldi en lík­am­legu. Fyrir með­ferð hjá Heim­il­is­friði hafði meiri­hluti ger­enda eða 61% nið­ur­lægt eða móðgað maka sinn þannig að hann varð miður sín. Þegar makar þeirra voru spurðir svör­uðu 73% þeirra að þeir hefðu upp­lifað slíka fram­komu.

Um 27% skjól­stæð­inga Heim­il­is­friðar höfðu skemmt eða eyði­lagt per­sónu­legar eigur maka og 18% hót­uðu að vinna sér mein ef maki yfir­gæfi sig. Hegðunin eftir með­ferð hófst minnk­aði hjá hópnum og í flestum til­vikum hafði hegð­unin ekki átt sér stað í ein­hvern tíma. 

Bati eftir meðferð hjá Heimilisfrið

80% skjól­stæð­ing­anna töldu „að þeir ættu auð­veld­ara með að halda ró sinni við ögrandi aðstæður en fyrir með­ferð.“ 92% þeirra sem voru í sam­bandi eða giftir töldu að eftir með­ferð­ina sýndu þeir maka sínum meiri skiln­ing.

84% þeirra sem áttu börn eða stjúp­börn „töldu sig vera betra for­eldri/stjúp­for­eldri eftir að með­ferð hófst.“ Svör maka voru ekki jafn afger­andi en 73% maka sögðu að maki þeirra ætti auð­veld­ara með að halda ró sinni við ögrandi aðstæður. 

„Ég var nátt­úru­lega rosa­lega ein­angruð og mátti ekk­ert tala við neinn“ segir maki ein­stak­lings í með­ferð hjá Heim­il­is­friði. „En eftir [að maki hóf með­ferð] hef ég alveg farið út með vin­konum og svona. Sem ég gat ekki áður […]. Ég tala meira í síma við mömmu mína og svona út af því að ég gat það ekki. Ég fékk bara minn tíma sem ég mátti gera það.“

Nefndu makar að mörgum þeirra þætti óþægi­legt „að vera í sam­skiptum við ætt­ingja og vini sem vissu af ofbeld­inu, því þau voru dæmd fyrir að vera áfram með ger­anda ofbeld­is­ins.“

„Þetta er svo ótrú­lega snúin staða, þú veist, það er svo auð­velt að dæma utan frá og maður vill ekki að fólk sé að dæma. […] Eins og vin­konur mínar, þær eru ekk­ert búnar að fyr­ir­gefa allt sem hefur gengið á. Þannig að það er mjög svona stirt þarna á milli og ég reyni að tala ekk­ert um mann­inn minn við vin­konur mínar af því það er eng­inn skiln­ingur. Þær vilja bara losna við hann. Þannig að þá bara segi ég frekar ekki neitt og það er líka ekki gott.“

Í skýrsl­unni lýsir einn þol­andi því að sam­skiptin við börn hennar hafi orðið verri. „Við skilnað höfðu börnin snúið baki við móður og tekið alfarið afstöðu með föður: „Ég er að missa börnin frá mér, […] Hann er enn þá í skemmd­ar­hug­leið­ingum […], [eldri dóttir mín] hún varla talar við mig eftir þennan skilnað.“

Viðmælendur sáttir með meðferð Heimilisfriðar

Við­mæl­endur voru sam­mála um að með­ferð Heim­il­is­friðar „væri bæði nauð­syn­leg og gott úrræði fyrir þá sem beita ofbeldi í nánum sam­böndum.“

„Mér finnst þetta bara frá­bært úrræði að þetta sé í boði og ein­hver sé að taka þetta að sér,“ er haft eftir einum þeirra. Hjá öðrum þol­anda ofbeldis kom fram að erfitt væri að ræða heim­il­is­of­beldi án þess verða dæmdur, en hjá Heim­il­is­friði upp­lifðu hún og maki hennar hið gagn­stæða: „En mér fannst eins og þarna hafi hann ekki verið dæmdur og hafi bara svo­lítið fengið svona […] spark í rass­inn en það var samt gert vel.“

Gerendur ofbeld­is­ins von­ast til þess að Heim­il­is­friður fái að vaxa og dafna. „Þau komu mér á rétta braut og hérna hjálp­uðu mér rosa­lega mikið og bara ein­hverju leyti björg­uðu minni geð­heilsu og ég bara vil að þau viti það.“

„Ég var far­inn að geta stigið út úr aðstæð­unum áður en að breyt­ing­arnar urðu það alvar­legar að ég væri búinn að missa tökin,“ sagði einn ger­and­inn. „Ég bara leyfi ekki fólki að koma mér í þær aðstæður að ég missi tökin ef að ég finn fyrir því að blóðið er farið að sjóða svo­lítið þá stend ég bara upp og labba út. […] þessi tól sem að ég fékk hjá þeim til þess að stíga út úr aðstæð­unum og horfa á sjálfan mig og aðstæð­urnar hlut­laust að það svona hjálpar mér hvað mest.“


Ert þú ger­andi? Hægt er að setja sig í sam­band við Heim­il­is­frið í síma 555-3020 eða á heim­il­is­fri­dur.is.
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár