Hvað gerðist í Grindavík 10. nóvember?

Raun­veru­leg atburða­rás örlaga­dag­inn 10. nóv­em­ber í Grinda­vík hefur verið á reiki. Hvað flokk­ast undir hættu­á­stand og hvers vegna var Grinda­vík ekki rýmd um leið og skjálfta­virkni tengd kviku­hreyf­ingum færð­ist undir byggð­ina? Heim­ildin greinir atburða­rás­ina og leitar svara hjá almanna­vörnum.

Hvað gerðist í Grindavík 10. nóvember?

Rýming Grinda­vík­ur­bæjar 10. nóv­em­ber 2023 verður vafa­laust lengi í manna minnum mark­aður sem sögu­legur atburður, ekki ólíkt gos­inu í Heimaey árið 1973. Nátt­úru­öflin sem hrundu rým­ing­unni af stað eru gjarnan óút­reikn­an­leg og ægi­leg, en þrátt fyrir það er margt enn óljóst varð­andi atburða­rás­ina þann 10. nóv­em­ber. Til að mynda hvenær upp­lýs­ingar Veð­ur­stof­unnar lágu fyrir og hvenær þeim var miðlað til Almanna­varna og hvers vegna rým­ingin var fram­kvæmd klukkan ell­efu um kvöldið en ekki fyrr, en valdið yfir þeirri ákvörðun var þó í manna­höndum. Sér­fræð­ingar voru ekki sam­mála um hættur og sviðs­myndir og yfir­lýs­ingar og við­var­anir þeirra stöng­uð­ust gjarnan á í fjöl­miðlum.

Þá sýnir ný rann­sókn fræða­fólks, meðal ann­ars frá Veð­ur­stofu Íslands, sem birt var í vís­inda­rit­inu Science, að áhyggjur af kviku­gangi undir Grinda­vík­urbæ virð­ast hafa legið fyrir nokkrum klukku­stundum áður en rým­ingin var til­kynnt. Heim­ildin kafar ofan í atburða­rás­ina og kort­leggur hvað gerð­ist.

Dagur mikilla hræringa

Það var um ell­efu …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.
Ríkið kaupir íbúðarhúsnæði Grindvíkinga á 61 milljarð króna
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Ríkið kaupir íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga á 61 millj­arð króna

Rík­is­stjórnin hefur komið sér saman um frum­varp sem kveður á um að rík­is­sjóður muni bjóð­ast til þess að kaupa íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga og taka yfir íbúð­ar­lán sem á þeim hvíla. Tilkynnt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að frum­varpið hafi verið sam­þykkt á rík­is­stjórnar fundi í dag og birt í sam­ráðs­gátt. Kostn­aður aðgerð­ar­innar er met­inn á 61 millj­arð króna. Sérstakt félag verður stofnað til að ann­ast fram­kvæmd­ina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár