Móðir Marks heitins: „Þetta er í raun og veru léttir“

Mark Gunnar Roberts lést á Þor­láks­messu. Nokkrum dögum áður hafði hann fund­ist með­vit­und­ar­laus í fanga­klefa sínum á Hólms­heiði. Mark ólst upp við drykkju og ofbeldi föður síns og ára­tugum saman reyndi móðir hans að fá hjálp fyrir son sinn, sagði hann „hættu­legan án lyfja­gjafar“, en án árang­urs. Síðustu ár átti Mark ekki í nein hús að venda önnur en neyð­ar­skýli fyrir heim­il­is­lausa eða fang­elsi.

<span>Móðir Marks heitins:</span> „Þetta er í raun og veru léttir“

Mark Gunnar Roberts fannst með­vit­und­ar­laus í fanga­klefa sínum á Hólms­heiði nokkrum dögum fyrir jól. Hann var end­ur­lífg­aður og fluttur á sjúkra­hús þar sem hann lést nokkru síðar. „Ég get stað­fest að vist­maður á Hólms­heiði hafi veikst alvar­lega fyrir jól og í kjöl­farið verið fluttur á sjúkra­hús,“ segir Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri. Mark varð 42 ára þann 18. des­em­ber en lést þann 23. des­em­ber, á Þor­láks­messu. 

„Lífið var orðið allt of erfitt fyrir hann“
móðir Marks

„Þetta er í raun og veru léttir, að hann fái hvíld frá þessum heimi. Lífið var orðið allt of erfitt fyrir hann,“ segir móðir hans. Hún ræðir stutt­lega við blaða­mann en biðst undan stærra við­tali. Segist vera orðin of gömul, og orðin afskap­lega þreytt. „Ég gerði svo mikið til að berj­ast á sínum tíma,“ segir hún. 

Móðir Marks reyndi allt sem hún gat til að fá …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björg Sverrisdóttir skrifaði
    Þetta er hræðilegt! Við erum langt á eftir öðrum þjóðum í þessu sem öðru. Hér er ekkert gert til að byggja gott samfélag. Ráðamenn eru bara í stólunum sínum til að græða sjálfir og sölsa undir sig náttúruauðlindir. Þeir vita varla um hvað þessi mál snúast. Flýta sér í einkavæðingunni áður en þeim verður kastað á haugana.
    2
  • Rakel Egilsdóttir skrifaði
    Sorgleg saga😂😂
    0
  • Þórdís Þorvaldsdóttir skrifaði
    Sorgleg saga og því miður fjölgar í þessum hópi
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár