Einkavæðing elliheimilanna: 3,8 milljarðar fóru út úr Sóltúni

Árs­reikn­ingar einka­rek­inna hjúkr­un­ar­heim­ila sem eru starf­andi á Íslandi sýna hversu arð­bær slíkur rekstur, sem byggður er á samn­ingum við íslenska ríkið, getur verið. Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra vill auka aðkomu einka­að­ila að hjúkr­un­ar­heim­ilum en Alþýðu­sam­band Íslands segir sporin hræða og að einka­væð­ing komi niður á þjón­ust­unni við fólk.

Einkavæðing elliheimilanna: 3,8 milljarðar fóru út úr Sóltúni
Nýr en gam­al­kunnur einka­væð­ing­ar­tónn Teitur Guð­munds­son, Þórir Kjart­ans­son og Arnar Þórisson eru í for­svari fyrir tvö fyr­ir­tæki sem reka einka­rekin hjúkr­un­ar­heim­ili hér á landi. Heil­brigð­is­ráðu­neytið vill aukna aðkomu einka­fyr­ir­tækja að bygg­ingu hjúkr­un­ar­heim­ila.

Tvö einka­rekin hjúkr­un­ar­heim­ili á Akureyri, Hlíð og Lög­manns­hlíð, voru með rúm­lega 3,2 millj­arða króna tekjur árið 2022 og skil­uðu tæp­lega 54 millj­óna króna hagn­aði á árinu. Fyr­ir­tækin eru í eigu sömu aðila og eiga einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Heilsu­vernd sem einnig hyggur á opnun heilsu­gæslu­stöðvar á Akureyri og hefur tryggt sér starfs­krafta að minnsta kosti fjög­urra lækna í bænum. Athygli vekur að tekjur félags­ins juk­ust um rúm­lega 1 millj­arð króna á milli ára, frá 2021 til 2022.

„Í grunn­inn snýst þetta um að það er búið að búa til skort á hjúkr­un­ar­rýmum sem einka­væð­ing­unni er ætlað að laga“
Steinunn Braga­dóttir,
hag­fræð­ingur hjá ASÍ

Teitur Guð­munds­son læknir er fram­kvæmda­stjóri Heilsu­verndar og tengdra félaga og and­lit þess út á við. Eig­in­kona hans, Lilja Þórey …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Hreinræktaðir bofar og ættu að skammast sin og lata sig hverfa ur politik og einkaumsvifum.
    Willum er natturulega KR INGUR OG ÆTTI AÐ ÞEKKJA MJÖG VAFASAMAN REKSTUR ÞESS
    FELAGS I TUGI ARA.

    BURT BURT MEÐ YKKUR .
    0
  • Agnes Agnarsdóttir skrifaði
    Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með einkavæðingu heilbrigðiskerfisins
    1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Willum Þór og Bjarni Ben og co hafa troðið eyrnatöppum í eyrun og heyra ekki viðvörunarorð, hvað þá að læra af reynslu annarra þjóða um að einkareksturinn skerðir þjónustu til að draga meiri arð út úr þessum rekstrafélögum, sem note bene almenningur borgar að fullu, hvað réttlætir þessa aðferðarfræði annað en GRÆÐGI eiganda rekstrafélaganna, afhverju er þetta ekki stoppað ? Kannski verða Willum og Bjarni ráðnir forstjórar þessara fyrirtækja eftir næstu kosningar eða eru umslög með peningum sett á borðið ? Hvorugur þessara drengja Willum Þór eða Bjarni eru svo vitskertir að þeir sjái ekki brjálið sem felst í því að nota sameiginlega sjóði landsmanna í þessa blóðmjólkun á sameiginlegum sjóðum, það er ekki af ástæðulausu að nýjustu heilsugæslustöðvunum (rekstrafélögunum) er bannað að greiða út arðgreiðslur. Að sjálfsögðu eiga hjúkrunarheimilin að vera rekin af ríki og bæ og eldriborgurum tryggð 100% þjónusta fyrir framlag sitt til samfélagsinns í 50-60ár.
    1
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    EINKAVÆÐA ALLAN ARÐ OG RÍKISVÆÐA TÖP. ÞAÐ vilja íslenskir kjósendur, fara svo að grenja þegar þeir fatta hvað þeir eru heimskir
    7
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Svo er eftir spurningin hvert útgreiddi arðurinn fer. Verður hann eftir hér á landi og hjálpar að knýja efnahagshjólið - eða fer hann út úr okkar hagkerfi til útlanda? Í síðara tilviki skerðir það skatttekjurnar hins opinbera.
    2
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    xB og xD mafíurnar með sín framtíðarplön, nú á að græða á aumingjunum og mjólka ríkið.
    5
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hryggileg framkoma ríkisins að heilbrigðismálum.
    6
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Árs­reikn­ing­ar einka­rek­inna hjúkr­un­ar­heim­ila sem eru starf­andi á Ís­landi sýna hversu arð­bær slík­ur rekst­ur, sem byggð­ur er á samn­ing­um við ís­lenska rík­ið, get­ur ver­ið. Will­um Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra vill auka að­komu einka­að­ila að hjúkr­un­ar­heim­il­um "

    Hvers vegna fer framsóknarflokkurinn ekki fram með einkavinavæðingu heilbrigðiskerfisins í næstu kosningum ?

    Við hvað er framsóknarflokkurinn svona hræddur ?
    Jú, að þurrkast út ?
    5
  • KB
    Kristinn Björnsson skrifaði
    Nýleg umræða frá Bretlandi sýnir að dánartíðni á einkareknum hjúkrunarheimilum er hærri en hjá ríki eða sveitafélögum. Ástæðan er niðurskurður á þjónustu t.d. minni lyfjagjöf.
    Þessi þreskivél einkavæðingar virðist óstöðvandi, enda knúin áfram af græðgi.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár