Þegar Norðurlöndin runnu saman: Margrét drottning og slagurinn í Åsle

Þann 24. febr­úar 1389 mætt­ust herir tveir gráir fyrir járnum skammt utan við smá­þorpið Åsle í suð­ur­hluta Sví­þjóðar, þetta var á mýr­lendu svæði milli stóru vatn­anna Vättern og Vänern, ekki langt frá Jönk­öp­ing. Um það bil þús­und dátar voru í hvorum her og fór sjálfur kon­ung­ur­inn yfir Svíaríki fyrir öðrum þeirra, hans tign Albrekt af Mek­len­búrg. Hann var fyrst og fremst þýskur her­toga­sonur en hafði verið val­inn kon­ungur Svía þegar hásætið var um stund laust þar í landi 1364.

Þegar Norðurlöndin runnu saman: Margrét drottning og slagurinn í Åsle
Albrekt frá Mek­len­búrg Svía­kon­ungur Eftir að hann tap­aði orr­ust­unni við Åsle var hann í haldi Mar­grétar drottn­ingar í sex ár. Á þeim tíma héldu hans menn Stokk­hólmi en að lokum var samið um lausn Albrekts gegn því að Mek­len­búrg­arar yfir­gæfu Stokk­hólm. Sonur Albrekts og krón­prins var þá lát­inn og Albrekt afsal­aði sér öllum kröfum til sænsku krún­unnar og bjó í Mek­len­búrg þar sem hann lést rétt á undan Margréti 1412.

Ástæðan fyrir því að þessi Mek­len­búrg­ari hafði verið val­inn Svía­kóngur var sú að móðir hans var systir Magnúsar nokk­urs sem var um hríð kóngur bæði í Noregi og Svíþjóð þar til um miðja 14. öld. Það leið hins vegar ekki á löngu þar til sænskir bar­ónar fengu nóg af Albrekt þegar hann flutti með sér til lands­ins gíruga þýska aðals- og emb­ætt­is­menn sem sátu um að maka krók­inn á vin­áttu við kóng­inn.

Einkum hreiðr­uðu þessir ribb­aldar Albrekts um sig í þeim Stokk­hólmi sem mátti heita þýskur bær um þær mundir.

Af and­spyrnu Svía gegn Albrekt er flókin saga en hér dugar að taka fram að bar­ónar gripu margir tæki­færið þegar til valda var komin bæði í Noregi og Danmörku dug­mikil kona sem Margrét hét Valdi­mars­dóttir og ákváðu að binda trúss sitt við hana fremur en Albrekt frá Mek­len­búrg.

Margrét húsbóndi

Þau tengd­ust reyndar á vissan hátt …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár