Synir Eddu Bjarkar á leið til Noregs

Drengir Eddu Bjarkar eru komnir í leit­irnar og eru á leið­inni til Kefla­víkur. Þar tekur faðir drengj­anna á móti þeim og fer með þá til Noregs.

Synir Eddu Bjarkar á leið til Noregs
Edda Björk Arn­ar­dóttir Situr í gæslu­varð­haldi í Noregi fyrir að hafa numið þrjá syni sína á brott.

Allir þrír drengir Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur eru komnir í leit­irnar. Þeirra hefur verið leitað frá því að móðir þeirra var hand­tekin í lok nóv­em­ber. Drengirnir eru nú á leið til Kefla­víkur þar sem faðir drengj­anna bíður þeirra, þar sem för­inni er heitið til Noregs. Þetta kemur fram á Nútím­anum.

Fyrr í dag sáust tví­bura­synir Eddu Bjarkar og barns­föður hennar á kaffi­húsi í Garða­bænum með systur Eddu Bjarkar, Ragn­heiði Arn­ar­dóttir. Óein­kenn­is­klæddur lög­reglu­maður stöðv­aði bíl Ragn­heiðar um tíu­leytið í morgun og hand­tók hana. Drengirnir hafa verið færðir í umsjá barna­verndar ásamt dóttur Ragn­heiðar sem var með í för. 

Sagði Ragn­heiður í við­tali við Heim­ild­ina í byrjun mán­að­ar­ins að hún vissi ekki hvar drengirnir væru nið­ur­komnir. 

Ragn­heiður Arn­ar­dóttir, systir Eddu ásamt systur dætrumRagn­heiður var hand­tekin í morgun þar sem sást til hennar með tví­bura­strákum Eddu Bjarkar á kaffi­húsi í Garða­bænum

Edda er með tvo íslenska lög­menn. Nútíminn greinir frá því að annar þeirra, Hildur Sólveig Pét­urs­dóttur, lög­maður Eddu Bjarkar í for­sjá­mál­inu hér á landi, hafi verið hand­tekin vegna máls­ins. Hinn lög­mað­ur­inn, Jóhannes Karl Sveins­son, verj­andi Eddu í saka­mál­inu hér á landi, segir í sam­tali við Vísi að hann hafi ekki verið hand­tekin.

Edda verður áfram í gæslu­varð­haldi í Noregi fram yfir ára­mót, þegar mál hennar verður tekið fyrir í byrjun jan­úar. Aðal­með­ferð í mál­inu lauk í vik­unni.

Málið var rakið í þaula í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár