Allt sem þú þarft að vita um eldgosið morguninn eftir

Eldgos hófst á ell­efta tím­anum í gær norð­austur af Grinda­vík. Það er stórt í sam­an­burði við önnur sem orðið hafa á svæð­inu en stað­setn­ing þess virð­ist heppi­leg þar sem hraun flæði hrauns í átt að Grinda­vík er ekki orðið „neitt að ráði“. Veð­ur­skil­yrði voru enn fremur hag­stæð í nótt og verða það áfram í dag.

Allt sem þú þarft að vita um eldgosið morguninn eftir
Varn­ar­garðar Á mynd­inni, sem ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar tók í nótt, sést hversu nálægt varn­ar­görð­unum sem unnið hefur verið við að reisa á und­an­förnum vikum gosið er. Mynd: Golli

Eldgosið norðan við Sundhnúk á Sund­hnúka­röð­inni, um fjórum kíló­metrum norð­austur af Grinda­vík og í námunda við Svarts­engi, hófst klukkan 22:17 í gær­kvöldi. Í aðdrag­anda þess varð kröftug jarð­skjálfta­hrina sem hófst rétt um hálf níu í gær­kvöldi en frá þeim tíma hafa mælst um 500 jarð­skjálftar við kviku­gang­inn. Sá stærsti varð um 23:25 í gær og mæld­ist um 4,1 að stærð.

Gos við Sund­hnúka­gígaGossprungan náði í nótt fjög­urra kíló­metra lengd.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Veð­ur­stofa Íslands er gossprungan um fjórir kíló­metrar að lengd og er norð­ur­endi sprung­unnar rétt austan við Stóra-Skógfell og syðri end­inn rétt austan við Sundhnúk.  Fjar­lægðin frá syðri end­anum að jaðri Grinda­víkur er tæpir þrír kíló­metrar. „Áfram gýs á allri gossprung­unni, mestur er kraft­ur­inn um miðja sprung­una.“

Um miklu stærra gos er að ræða, og miklu kraft­meira, en þau eld­gos sem orðið hafa á svæð­inu á und­an­förnum árum. Bæði er sprungan mun lengri og magnið af kviku sem streymir úr henni mun meira en í síð­ustu gosum.

Heldur virt­ist draga úr krafti eld­goss­ins þegar leið á nótt­ina og í upp­færslu sem Veð­ur­stofan birti um fjórum klukku­tímum eftir upp­haf þess sagði að slíkt sæist bæði á skjálfta­mælum og GPS mælum. „Það að þegar sé að draga úr virkn­inni er ekki vís­bend­ing um hversu lengi eld­gosið mun vara, heldur frekar að gosið sé að ná jafn­vægi. Þessi þróun hefur sést í upp­hafi allra gos­anna á Reykja­nesskag­anum síð­ustu ár.“

Veð­ur­stofan mun halda áfram að vakta þróun virkn­innar og er í beinu sam­bandi við almanna­varnir og við­bragðs­að­ila á svæð­inu. Vaktin mun birta upp­lýs­ingar um þróun atburða­rás­ar­innar undir „Athuga­semdir sér­fræð­ings“ eftir því sem þurfa þykir. Sam­ráðs­fundur vís­inda­manna verður hald­inn í fyrra­málið.

Hagstæð veðurskilyrði

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur sagði í færslu á Facebook í nótt að það mætti telj­ast heppni að vindur stóð ekki af suð­austri í kvöld, þegar eld­gosið hófst. Ef svo hefði farið hefði gosmökk­inn „lagt bein­ustu leið yfir Reykja­nesbæ og Garð­skaga“ og Kefla­vík­ur­flug­völlur jafn­framt að öllum lík­indum lok­ast. 

Í stað­inn blés vindur úr vestri og vind­áttin hélst nokkuð stöðug til morg­uns. Næsta þétt­býli til aust­urs, sem gosmóðan leggur þá yfir, er Þor­láks­höfn. „V-átt er fremur heppi­leg vind­átt, en þó gæti slegið niður gasi í Þor­láks­höfn og neðan til í Ölfusinu. Eins á Eyr­ar­bakka og Stokks­eyri og e.t.v. víðar í lágsveitum Suð­ur­lands.„ Í dag á vind­áttin svo að vera enn heppi­legri, eða norð­vest­an­átt með strekk­ings­vindi, sem þýðir að gosmökk­inn leggur yfir Krísu­vík­ur­bjarg og þaðan beint á haf út.

Neyðarstig og öllum leiðum inn í Grindavík lokað

Tveir lög­reglu­bílar voru staddir í Grinda­vík þegar gosið hófst og þeir gengu úr skugga um að bær­inn væri tómur. Bláa lónið, sem opn­aði aftur á sunnu­dag, hafði ein­ungis heim­ild til að vera opið til klukkan átta í gær­kvöldi þannig að allir gestir þess voru farnir. Fyr­ir­tækið bauð gesti vel­komna á ný í lónið í færslu á Facebook-færslu á sunnu­dag en hefur nú fjar­lægt þá færslu, enda fyr­ir­séð að Bláa lónið muni ekki bjóða neinn vel­kom­inn í bráð.

StórtÁ þessu mynd­broti frá Almanna­vörnum sést vel hversu löng sprungan er.Almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra

Rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum, ákvað strax skömmu eftir klukkan ell­efu í gær­kvöldi að fara neyð­ar­stig Almanna­varna vegna eld­goss­ins. Sam­hæf­inga­stöð Almanna­varna var sam­hliða virkjuð og almenn­ingur var beð­inn um að fara ekki á stað­inn á meðan við­bragðs­að­ilar voru að meta stöð­una. Ekki urðu allir við því og mikil bíla­röð mynd­að­ist á Reykja­nes­braut þrátt fyrir að öllum leiðum inn í Grinda­vík hafi verið lokað í kjöl­far þess að gosið hófst.

Í dag, þriðju­dag, og næstu daga verður öllum leiðum inn til Grinda­víkur áfram lokað nema fyrir við­bragðs­að­ila og verk­taka sem eiga erindi inn á hættu­svæðið við Grinda­vík, en vinna við gerð varn­ar­garða við Svarts­engi stendur enn yfir. Í sam­tali við RÚV í nótt sagði Jóhann Haukur Stein­gríms­son, sér­fræð­ingur í varn­ar­görðum hjá Eflu verk­fræði­stofu, að gerð varn­ar­garð­anna sem staðið hefur yfir í rúman mánuð hafi verið algjör­lega á síð­ustu metr­unum þegar gosið hófst. „Það var bara sára­lítið eftir í kringum Bláa lónið.“ 

Á „kórréttum stað“ en mögulega „búið fyrir áramót“

Jóhann sagði enn­fremur að stað­setn­ing goss­ins væri heppi­leg. Flæði í átt að Grinda­vík væri ekki orðið neitt að ráði og að „lítið potast í átt að Sýl­inga­felli.“ Aðal­þung­inn lægi niður í lægð­ina í átt að Fagra­dals­fjalli og Jóhann sagði það „ eig­in­lega eins heppi­legt og þetta gat orðið við þessar aðstæður.“

Ármann Hösk­ulds­son, pró­fessor í eld­fjalla­fræði við Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands,  var staddur á Sýl­inga­felli að mæla sprung­una í nótt. Þar sagði hann við RÚV að hún væri rétt rúm­lega fjórir kíló­metrar að lengd en að hún næði ekki yfir vatna­skil í átt að Grinda­vík. „Hún hefur verið að stjaka sér norður úr og það er kom­inn straumur í norð­austur í átt að Grinda­vík­ur­veg­inum en að öðru leyti fer hraunið í átt til aust­urs í átt að Fagra­dals­fjalli. Þetta er versta sprunga sem gat gosið á.“ Þrátt fyrir það kæmi gosið upp „á kór­réttum stað“.

Ármann bjóst við því í nótt að hraun myndi renna áfram til aust­urs og „bunkast upp“ við Fagra­dals­fjall, en að lokum, haldi gosið áfram, leita í átt­ina að Þór­kötlu­staða­hverfi sem liggur aust­ast í Grinda­vík. „Um miðjan dag á morgun [í dag] verða þetta örfáir gígar sem eru eftir,“ sagði hann. „Þetta verður búið fyrir ára­mót.“ 

Hvað eru eiginlega vatnaskil?

Samkvæmt Vís­inda­vef Háskóla Íslands eru vatna­skil hæsta lína fjalls­hryggs tveggja dala. Ef hraun, eða eftir atvikum annað efni sem getur runnið, rennur frá efsta punkti þeirra þá rennur það niður beggja vegna og niður í báða dali. 

Á meðan að gossprungan nær ekki yfir vatna­skil í átt að Grinda­vík, og hraun rennur norðan við þau, þá rennur hraunið úr eld­gos­inu frá Grinda­vík. 

Sem stendur streymir hraun bæði norður og vestur frá gossprung­unni auk þess sem það virð­ist líka vera straumur í aust­urátt. Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur sagði í sam­tali við RÚV í nótt að ef „þetta fer í austur er mögu­leiki að flæðið fari sunnan við vatna­skilin og þannig farið suður til Grinda­víkur.“

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Það vekur furðu hvert stuðningur vegna náttúruhamfara virðast fara.
    Hvað einstaklinga varðar, þá hefur komið í ljós að fjöldi húsa er ekki bjargandi, þá er fyrsta tilkynning frá Viðlagasjóði að einungis verði greitt fyrir ætlað brunabótamat, að slepptu einhverjum prósentum og ætluðum förgunarkostnaði!
    Með öðrum orðum, brot af raunverulegu tjóni er bætt.
    Ef hins vegar drullupollur, afurð frá virkjun sem notað er sem ferðamannastaður, þarf að loka, þá eru strax tillögur um að gefa viðkomandi lokunarstyrk – óafturkræfan.
    Það mætti geta þess að þessi drullupollur hefur gefið sínum eigendum milljarða arð á hverju ári.
    Þann sama drullupoll ásamt virkjuninni þótti rétt að verja með framkvæmd, varnargarð er hefur þegar kostað ótrúlega milljarða úr vösum skattborgaranna
    Getur verið að ráðamenn geri ekki grein á milli þess er verið er að vernda innviði samfélagsins og einkahagsmuni einhverra einstaklinga?
    Virkjun er án vafa, hluti af innviðum samfélagsins, en afleiddur drullupollur vegna þessa????
    Spurði einhver hverjir hafi notið afreksturs af drullupollnum??
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið undanfarið ár