Snáka­temj­ar­inn Við fyrstu sýn virð­ist Snáka­temj­ar­inn, mál­verk franska lista­manns­ins Jean-Léon Gérôme, vera ein­kenn­andi fyrir Mið-Aust­ur­lönd en þegar betur er að gáð er ekk­ert á mynd­inni nákvæmt. Mynd: Jean-Léon Gérôme

„Við erum Evrópumiðuð í þýðingum“

Gauti Krist­manns­son, pró­fessor í þýð­ing­ar­fræði við Háskóla Íslands, segir að lít­ill mark­aður sé fyrir þýdd ljóð og þau eigi undir högg að sækja. Það sem þó er þýtt, og á það raunar líka við almennt um þýddar bók­menntir, eru að mati Gauta Evr­ópu­mið­aðar.

Gauti Krist­manns­son, pró­fessor í þýð­ing­ar­fræðum við Háskóla Íslands, segir lítið hafa farið fyrir þýð­ingum á bók­menntum frá Mið-Aust­ur­löndum á Íslandi. Almennt sé lítið þýtt af ljóðum yfir á íslensku. 

„Það er svo sem ekki mik­ill mark­aður fyrir ljóð yfir­leitt. Oft hefur verið spáð dauða ljóðs­ins en það ger­ist hvað eftir annað að ungt fólk byrjar að skrifa ljóð og kemur þeim út og það hefur skilað sér í því að það er enn mik­ill áhugi á ljóðum og það selst meira að segja eitt­hvað af þeim,“ segir hann og bætir við: 

„Þýdd ljóð­list á undir högg að sækja.“ Hefð­bundin ljóð­list sé meira þýdd en módernísk ljóð­list að sögn Gauta, óbundin og módernísk ljóð séu yfir­höfuð lítið þýdd. Búið sé að þýða mikið af Shakespe­are til að mynda, sem til­heyrir hefð­bundnu ljóð­list­inni, og það af mörgum, og árið 2017 kom út Gleði­leik­ur­inn guð­dóm­legi eftir Dante í þýð­ingu Erlings E. Hall­dórs­sonar …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár