Brýr og þver­anir Milli Geld­inga­ness og yfir að Gunnu­nesi, yst á Álfsnesi, kæmi Sunda­braut á brúm. Það myndi hafa áhrif á útsýni íbúa, m.a. þeirra sem búa í Staða­hverfi. Útsýni yfir sundin blá og alla leið til Snæ­fells­jök­uls. Mynd: Golli

Vilja ekki „fjögurra akreina þjóðveg“ í bakgarðinn

Er nokk­urra mín­útna sparn­aður á ferða­tíma þess virði að raska nátt­úru, úti­vist­ar­svæðum og spilla útsýni þús­unda? „Það að leggja umferð­ar­mann­virki þvers og kruss um sundin blá er ekki smá­mál,“ segir íbúi í Graf­ar­vogi um áform­aða Sunda­braut. Margir vilja göng í stað brúa um við­kvæm­ustu svæðin en það hefur Vega­gerðin slegið út af borð­inu.

„Ég legg til að það verði fundin önnur leið fyrir þessa vega­gerð eða sleppa henni alveg,” segir Anna Kristín Björns­dóttir sem er meðal þeirra tuga höf­uð­borg­ar­búa sem tjáð hafa skoðun sína á Sunda­braut í tengslum við útgáfu mats­á­ætl­unar fram­kvæmd­ar­innar. Sú ætlun er fyrsta skrefið í umhverf­is­mati sem á að ljúka á næsta ári.

Og Anna Kristín er ekki ein um þessa skoðun. „Göng alla leið eða ekki neitt“ er álit margra og núll-kostur, það að byggja ein­fald­lega ekki Sunda­braut, sömu­leiðis. Eða eins og Dagur Páll Amm­endrup orðar það: „Þessi fram­kvæmd mun skemma úti­vist­ar­svæðið í Gufunesi. Notum pen­ing­inn í annað.”

Sunda­braut hefur verið á teikni­borð­inu í fleiri ára­tugi í einni eða annarri mynd. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún er tekin til mats á umhverf­is­á­hrifum, hin áform­aða þjóð­braut sem myndi …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár