Fyrstu terroristarnir

Hryðju­verk á alla bóga hafa lengi tíðkast í Palest­ínu. Og mun lengur en flestir halda. Fyrsta eig­in­lega ter­r­orista­hreyf­ing sög­unnar er upp­runnin þar.

Fyrstu terroristarnir
Ter­r­oristar Síkara stýrðu um tíma vörn­inni í Jer­úsalem árið 70. Allt end­aði þeð með hrylli­legu blóð­baði og eyði­legg­ingu. Mynd: Didier Descouens

Við Dauða­hafið eru lands­hættir einna hrjóstrug­astir á jörð­inni. Vatnið er 427 metra undir sjáv­ar­máli, brim­salt og ódrekk­andi og með öllu ónot­hæft í áveitur fyrir gróður jarðar. Enda er nálega eng­inn gróður kringum vatnið. Hitinn þar mælist iðu­lega nærri 50 gráðum þegar sólin skín harð­ast. Jarð­vegur og grjót verða svo heit undir slíkri sól að fólk skað­brennur á fótum.

En þó er á einum stað vin þar sem allt öðru­vísi er um að lit­ast. Kiðalind heitir þar skammt upp af vest­ur­strönd Dauða­hafs­ins, Ein Gedi á hebr­esku. Úr klettóttri fjalls­hlíð sprettur svo mikið og tært vatn að þar festir gras á jörð, pálmar vaxa keikir og lesa má döðlur og fíkjur af trjánum, pistasíu­hnetur og möndlur. Kiðling­arnir, sem lindin í fjalls­hlíð­inni er kennd við, skoppa um grund.

Og þar er þorp. Ilmur af balsam lið­ast um götur.

Einu sinni var það að íbú­arnir í Ein Gedi voru að sínum …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár