Ætla að vísa vallarstjóranum úr landi 16. október

Lög­reglu­maður til­kynnti Þrótti á dög­unum að vall­ar­stjóra liðs­ins verði vikið úr landi eftir tvær vikur. Vall­ar­stjór­inn hefur búið hér á landi í tæp sex ár og á hverju ári fengið sím­tal frá Útlend­inga­stofnun um að vísa eigi honum burt. Vikurnar eftir hvert sím­tal á hann erfitt með svefn, svo mik­ill er ótt­inn við að lög­reglan komi að sækja hann og flytji hann burt úr landi sem er orðið hans heim­ili.

Ætla að vísa vallarstjóranum úr landi 16. október
Isaac Kwateng Kom hingað til lands í jan­ú­ar­mán­uði árið 2018 og hefur verið hér síðan. Hann hefur sótt um rík­is­borg­ara­rétt sem verður vænt­an­lega tek­inn fyrir á Alþingi í des­em­ber­mán­uði. Þá verður Isaac far­inn, ef marka má skila­boðin frá Útlend­inga­stofnun. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Isaac Kwateng, vall­ar­stjóri Þróttar, var rétt rúm­lega tví­tugur þegar hann kom til Íslands í jan­ú­ar­mán­uði 2018. Það var kalt. Hann var ekki vanur svona kulda í heima­land­inu Gana. 

Fyrstu mán­uð­irnir voru honum erf­iðir. Hann hafði stuttu áður misst móður sína, sinn síð­asta aðstand­anda á lífi, og vissi ekki hvað fram­tíðin bæri í skauti sér. Hann var reglu­lega fluttur á milli hús­næða á vegum Útlend­inga­stofn­unar. 

Seinna þetta sama ár var umsókn hans um vernd hér á landi hafnað. Hann fékk sím­tal frá Útlend­inga­stofnun: „Það á að vísa þér úr landi.“ 

En svo gerð­ist ekk­ert. Isaac segir að mann­eskjan sem aðstoð­aði hann við að kom­ast frá Gana hafi tekið af honum pass­ann. Hann gat því ekki yfir­gefið Ísland. Enginn kom til þess að færa hann úr landi.

Eftir þetta fékk Isaac sama sím­talið árlega: „Það á að vísa þér úr landi,“ en aftur og aftur end­ur­tók sama atburða­rásin sig. Enginn kom og færði hann með valdi úr landi. Samt var hann til að byrja með í hús­næði á vegum Útlend­inga­stofn­unar og síðar, þegar hann var kom­inn í sitt eigið hús­næði segir lög­maður Isaacs að lög­reglan hafi verið með­vituð um það hvar hann bjó.

„Á hverju ári hringir lög­reglan og vill að ég fari aftur til Gana. Ég sef ekki. Mér verður illt í hjart­anu og ég hugsa mikið,“ segir Isaac. 

Símtöl„Árlega hefur lög­reglan hringt í mig,“ segir Isaac.Heim­ildin / Davíð Þór

Mun koma sér mjög illa fyrir Þrótt

Það hjálp­aði honum að byrja að æfa fót­bolta en hann hefur síðan 2018 spilað fót­bolta með SR, vara­liði Þróttar. Isaac er einn af þeim sem missir ekki úr æfingu, segir þjálf­ar­inn Jón Haf­steinn Jóhanns­son. 

„Maður sá strax hvað þetta skipti hann miklu máli,“ segir Jón Haf­steinn. 

„Hann er bara orð­inn partur af þess­ari fjöl­skyldu sem Þróttur er,“
Jón Haf­steinn
þjálf­ari hjá Þrótti

Hægt og rólega fór Isaac að taka meiri þátt í starf­semi félags­ins, meðal ann­ars með því að sinna sjálf­boða­liða­störfum og aðstoða við þjálfun. Fólkinu í félag­inu fór að þykja vænt um unga mann­inn og skrif­uðu á sjö­unda tug Þróttara undir með­mæla­bréf fyrir Isaac þegar umsókn hans um alþjóð­lega vernd var tekin fyrir hjá Útlend­inga­stofnun. 

Þegar starf vall­ar­stjóra opn­að­ist fyrir tæpum tveimur árum síðan sótti Þróttur um tíma­bundið atvinnu- og dval­ar­leyfi fyrir Isaac sem þarf að end­ur­nýja á um hálfs árs fresti. 

„Hann er bara orð­inn partur af þess­ari fjöl­skyldu sem Þróttur er,“ segir Jón Haf­steinn. 

María Edwardsdóttir, fram­kvæmda­stjóri Þróttar, tekur undir það. 

„Við verðum bara hand­lama hérna án hans,“ segir María. „Fyr­ir­var­inn er stuttur og þetta mun koma sér mjög illa fyrir okkur.“

ÞróttariIsaac segir Þrótt­ar­ana fjöl­skyldu sína.Heim­ildin / Davíð Þór

Þróttur er fjölskyldan

Hundruð manna úr Þrótt­ar­fjöl­skyld­unni mættu til þess að sýna Isaac stuðn­ing á sam­komu á velli félags­ins í Laug­ar­dal í lok júlí.

„Þau eru fjöl­skyldan mín, þau eru eina sam­fé­lagið sem ég á,“ segir Isaac sem er einka­barn for­eldra sinna. Þau eru bæði látin. 

„Ef ég fer til Gana þá er ég ókunn­ugur núna í mínu eigin landi. Ég veit ekki hvert ég ætti að fara og hvar ég ætti að vera,“ segir Isaac. 

„Mig langar að vera þjálf­ari í fram­tíð­inni og byrja með fyr­ir­tæki. Mig langar að gefa aftur til sam­fé­lags­ins það sem sam­fé­lagið hefur gefið mér,“
Isaac Kwateng
vall­ar­stjóri Þróttar

En útlit er fyrir að honum verði vísað úr landi núna. Lög­reglu­maður gekk inn á skrif­stofu Þróttar fyrir nokkrum dögum síðan og til­kynnti fram­kvæmda­stjóra félags­ins, Maríu Edwardsdóttur, að flug­miði hafi verið keyptur fyrir Isaac þann 16. októ­ber næst­kom­andi. Hvert fylgdi ekki sög­unni en aðstand­endur Isaacs hér á landi telja lík­legt að senda eigi hann til Gana með milli­lend­ingu ann­ars staðar í Evrópu og lög­reglu­fylgd. 

Hafa sótt um ríkisborgararétt

Það er miður, segir Helgi Þor­steins­son Silva lög­maður Isaacs, sér­stak­lega í ljósi þess að umsókn Isaacs um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt bíður nú Alþingis. Þá er sömu­leiðis beiðni um end­ur­nýjun tíma­bund­ins atvinnu- og dval­ar­leyfis í kerf­inu. Þessar umsóknir hafa þó ekki áhrif á heim­ild lög­reglu til þess að vísa Isaac úr landi. 

„Mér finnst mjög leið­in­legt ef hann er búinn að vera hérna í ein­hverju lim­bói í fimm, sex ár og svo þegar er bara svona mán­uður í svar við temmi­lega góðri umsókn fyrir Alþingi þá [eigi að senda hann burt],“ segir Helgi um rík­is­borg­ar­aum­sókn­ina.

Jón Haf­steinn tekur undir þetta og segir það skjóta skökku við að maður sem er í vinnu, greiðir skatta á Íslandi og er að bíða þess að umsókn um rík­is­borg­ara­rétt verði tekin fyrir verði sendur úr landi áður en fyr­ir­takan er haldin, sem verður lík­leg­ast í des­em­ber. 

„Af hverju er ekki hægt að geyma [brott­vís­un­ina] fram í jan­úar?“ spyr Jón Haf­steinn. 

LögmaðurHelgi Þor­steins­son Silva.

Býr fyrir opnum tjöldum á Íslandi

Óljóst er hvers vegna Isaac er enn hér á landi, fimm árum eftir að lög­reglan ætl­aði fyrst að vísa honum úr landi. Helgi tekur fram að Isaac hafi sann­ar­lega ekki verið í felum.

„Hann er búinn að vera hérna fyrir opnum tjöldum í sex ár og er orð­inn hluti af ung­liða­starf­inu og er þjálf­ari og vall­ar­stjóri og hvað eina hjá Þrótti.“

Hjálpar það honum ekk­ert að hann sé búinn að vera hérna svona lengi? 

„Það ætti að gera það,“ segir Helgi. „Það er eitt sér­stakt leyfi sem er dval­ar­leyfi á grund­velli sér­stakra tengsla sem ætti mjög við um þennan mann. En það hefur verið afstaða Útlend­inga­stofn­unar hingað til að tengsl sem eru mynduð í ólög­legri dvöl – sem dvöl hans flokk­ast sem þó það sé ekk­ert honum að kenna, hann getur ekk­ert farið sjálfur – að þau telji bara ekki.“ 

Vill vera hér„Ég veit ekki hvert ég myndi fara í Gana,“ segir Isaac sem á enga fjöl­skyldu í land­inu lengur.Heim­ildin / Davíð Þór

Helgi telur sögu Isaacs sýni fram á að gera þurfi breyt­ingar á útlend­inga­lög­unum.

„51. grein útlend­inga­laga segir að þú megir ekki sækja um neins konar leyfi ef þú ert þegar hérna í land­inu. Það er það sem lokar á allt þetta fólk. Þú kemur hérna og sækir um í góðri trú því þú heldur að þú eigir rétt á vernd og heldur að umsóknin muni leiða til þess en ef þér er hafnað máttu ekki bara sækja um atvinnu­leyfi,“ segir Helgi. 

„Ég skil alveg að það sé verið að stýra fólki í að sækja um áður en það kemur til lands­ins en eins og í þessu til­viki þar sem það er ekk­ert honum að kenna að hann sé búinn að vera hérna svona lengi – mér finnst að það mætti skoða hvort hann mætti ekki bara fara að vinna hjá Þrótti og fara á atvinnu­leyfi.“

Fram­tíðinIsaac, sem er 28 ára gam­all, á erfitt með að sjá fram­tíð­ina fyrir sér ann­ars staðar en hér á Íslandi.

Klukkunni kippt úr sambandi

Þá telur Helgi einnig að saga Isaacs sýni að fjölga þurfi tíma­mörkum í ferl­inu. Sem stendur þarf hæl­is­leit­andi að fá svar við umsókn sinni um vernd innan 18 mán­aða. Ef hann fær ekki slíkt svar innan tímara­mmans getur hann sótt um mann­úð­ar­leyfi. En klukkan hættir að slá þegar kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur úrskurðað í máli hæl­is­leit­anda. Isaac fékk sína nið­ur­stöðu innan 18 mán­aða. 

„Þarna er klukk­unni bara kippt úr sam­bandi,“ segir Helgi. „Fræði­lega séð gæti hann verið hérna í 30 ár án þess að það sé nokkur pressa á stjórn­völd að gera neitt.“

Isaac er ánægður á Íslandi en landið er orðið hans heim­ili og fólkið í Þrótti hans fjöl­skylda. Hann er að læra íslensku og er far­inn að æfa sig að keyra. Spurður um fram­tíð­ina ef hann fengi að vera áfram á Íslandi segir hann: 

„Mig langar að vera þjálf­ari í fram­tíð­inni og byrja með fyr­ir­tæki. Mig langar að gefa aftur til sam­fé­lags­ins það sem sam­fé­lagið hefur gefið mér.“

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Þetta er fyrir neðan ALLAR hellur. Mannvonska íhaldsins á sér engin takmörk
    3
  • Lena Hákonardóttir skrifaði
    Dæmigerð vinnubrögð Útlendingastofnunar eru til skammar eins og þetta og fleiri dæmi sanna
    5
  • ESG
    Erna Sigurveig Guðmundsdóttir skrifaði
    Þetta er ekki gott fyrir ríkisstjórnina sem við vonandi losnum við á næsta ári, virkar allavega heimskulegt
    3
  • Ingvar Árnason skrifaði
    Mér sýnist þessi frétt vera vel unnin. En á móti sýnist mér að Útlendingastofnun sé með allt niður um sig. Ætli þetta séu dæmigerð vinnubrögð þar á bæ?
    5
  • Húðlits-hreinsanir rasistasvínanna í stjórnsýslunni.
    4
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvað er Sjálfstæðisflokkurinn hræddur við ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár