Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti

Sig­urð­ur Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn um­svifa­mesti fiskút­flytj­andi lands­ins, er sak­að­ur um að hafa stung­ið rúm­lega millj­arði króna und­an skött­um og fært í gegn­um falska reiknn­inga og af­l­ands­fé­lög í eig­in vasa. Hann er ákærð­ur fyr­ir stó­felld brot á skatta­lög­um, bók­halds­lög­um og pen­inga­þvætti. Ís­lensk­ur lög­mað­ur sem einnig er ákærð­ur seg­ist sak­laus.

Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Ákærðir fyrir skattsvik í fiskútflutningi Sigurður Gísli Björnsson, eigandi Sæmarks, er ákærður fyrir að svikja undan tekjuskatt, útsvar, virðisaukaskatt, tekjuskatt fyrirtækis síns og tryggingagjald á margra ára tímabili í viðskiptum með íslenskan fisk. Magnús Jónsson lögmaður er ákærður fyrir að hafa aðstoðað við þau brot og peningaþvætti, í gegnum svissneskt félag sem hann var skráður fyrir. Mynd: Heimildin / JIS

Í grunninn snýst málið um það hvernig einn umfangsmesti fisksali landsins, náði með ólögmætum hætti að koma hundruðum milljóna króna ólöglega og framhjá sköttum, út úr rekstri sínum og á leynilega bankareikninga erlendis, til þess að geta síðan nýtt sér ávinninginn í eigin þágu. Upp komst um Sigurð Gísla og umfangsmikil undanskot hans og fyrirtækis hans Sæmarks í kjölfar uppljóstrunar Panama-skjalanna árið 2016. 

Sæmark var í fjölda ára gríðarlega umsvifamikið í fisksölu fyrir fjölda íslenskra útgerða og velti hátt í tíu milljörðum króna þegar best lét.

Fyrirtækið Sæmark var tekið til gjaldþrotaskipta eftir að rannsókn á málinu hófst og eignir Sigurðar voru kyrrsettar í kjölfar húsleitar og rannsóknar árið 2017. Eins og Heimildin greindi frá í febrúar síðastliðnum hafa skattayfirvöld þegar gert hálfs milljarðs króna kröfu á hendur Sigurði vegna skattaundanskota hans.

Tvö önnur dómsmál …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaupþings og maka þeirra ligg­ur til Tor­tólu

Notk­un eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaupþings­banka á fé­lög­um á af­l­ands­svæð­inu Kyp­ur er enn eitt dæm­ið um það að þess­ir að­il­ar hafi not­ast við slík fé­lög í við­skipt­um sín­um eft­ir efna­hags­hrun­ið 2008. Hreið­ar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaupþings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæm­is fé­lög­um í Pana­maskjöl­un­um og ár­ið 2019 var sagt frá Tor­tóla­fé­lagi sem not­að var til að halda ut­an um eign­ir á Ís­landi sem tengd­ust þeim.
Panamaskjölin: Seldi húsið sitt mánuði fyrir kyrrsetningu í skattamáli
FréttirPanamaskjölin

Pana­maskjöl­in: Seldi hús­ið sitt mán­uði fyr­ir kyrr­setn­ingu í skatta­máli

Sig­urð­ur Gísli Björns­son, at­hafna­mað­ur og fyrr­ver­andi eig­andi fisk­sölu­fy­ir­tæk­is­ins Sæ­marks, seldi hús­ið fyr­ir 185 millj­ón­ir mán­uði áð­ur en eign­ir hans voru kyrr­sett­ar. Rann­sókn­in hef­ur und­ið upp á sig og eru upp­hæð­irn­ar sem tengj­ast meint­um skatta­laga­brot­um í gegn­um Panama hærri en tal­ið var.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urn­ar eft­ir um­fjöll­un Stund­ar­inn­ar

Skosk­ar mæðg­ur sem komu til Ís­lands í byrj­un árs í leit að svör­um við spurn­ing­um sem leit­að hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­lát­ar Ís­lend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og lang­ömmu á Ís­landi. Gunn­ar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyld­an fengi mál­verk­ið þar sem þau fengu lít­ið sem ekk­ert úr búi Áslaug­ar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu