Íslenskar bókmenntir urðu aldrei samar

Guð­bergur Bergsson var maður hug­myndarýni en líka ímynd­un­araflsins.

Íslenskar bókmenntir urðu aldrei samar

Við vorum nokkrir strákar í mennta­skóla sem ákváðum að skrópa í skyldu­ferð­inni á Njálu­slóðir og tróðum okkur frekar inn í gamlan fólks­bíl til að fara á sögu­slóðir Guðbergs í Grinda­vík. Ekki segi ég að við höfum verið miklu nær enda ferðin öðru fremur tákn­ræn: Guð­bergur var í huga okkar full­trúi hins nýja, rót­tæka, afhjúp­andi og óþekka í íslenskum sagna­bók­menntum, mað­ur­inn sem hafði skrifað Leikföng leið­ans, Önnu og Tómas Jónsson Met­sölu­bók, svo dæmi séu nefnd. Rausið í Tómasi, gömlum ein­setu­kalli, á hund­ruðum blað­síðna, var ein­stök úttekt á íslenskum hug­mynda­heimi, sjálf­um­gleði og hefð­ar­skreyt­ingu.

Eins og Guð­bergur sagði sjálfur í for­mála að annarri útgáfu verks­ins: „hugur minn [stefndi] að því að skapa tákn­mynd hinna trén­uðu afla í þjóð­fé­lags­garð­inum, skapa mann af hinni títt umræddu „alda­mó­ta­kyn­slóð“. Hún hafði áður verið hreyfi­afl, einkum íslensks sjálf­stæðis, en var nú orðin, í hinum þjóð­fé­lags­lega raun­veru­leika Íslands, voða­legur drag­bítur á öllum fram­förum.“ Eftir þetta ein­tal Tómasar Jóns­sonar …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðbergur Bergsson

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár