Nú er ekkert eftir hjá vatninu annað en það að kólna

Guð­bergur Bergsson hrærði upp í staðn­aðri fag­ur­fræði lands­manna, gekk ítrekað fram af sið­ferð­is­kennd þeirra og hirti þá fyrir afdala­mennsku. Um leið opn­aði hann augu margra fyrir því að það væri hægt að hugsa öðru­vísi, skrifa öðru­vísi, lifa öðru­vísi.

Nú er ekkert eftir hjá vatninu annað en það að kólna

Því hefur verið haldið fram að vart sé hægt að hugsa sér betra start á rit­höf­und­ar­ferli en að vera hafnað af bók­mennta­stofn­un­inni. Þetta sanna dæmin. Hér á landi er Guð­bergur Bergsson eitt af þeim skýr­ustu. Þegar fyrstu stóru skáld­sögu hans, Tómasi Jónssyni: Met­sölu­bók, var hafnað á stjórn­ar­fundi Máls og menn­ingar í apríl 1965 varð til einn fram­sækn­asti og jafn­framt ófor­skammað­asti rit­höf­undur ald­ar­innar. Upp frá því átti Guð­bergur eftir að hræra upp í staðn­aðri fag­ur­fræði lands­manna, ganga ítrekað fram af sið­ferð­is­kennd þeirra, hirta þá fyrir afdala­mennsku og afhjúpa lamað og lúið til­finn­inga­líf ein­angr­un­ar­innar, en um leið opna augu margra fyrir því að það væri hægt að hugsa öðru­vísi, skrifa öðru­vísi, lifa öðru­vísi.

Og þessu hélt hann áfram alveg fram á síð­ustu ár. Um Guðberg ríkti aldrei nein sátt. Og raunar leit aldrei út fyrir að Guðbergi þætti það eft­ir­sótt að um hann ríkti sátt. Kannski var ásókn hans í …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðbergur Bergsson

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár