Linda Linda var oft með áverka sem aðrir krakkar og kenn­arar sáu. Til­kynn­ing til yfir­valda var í fyrstu afgreidd sem „árekstur menn­ing­ar­heima“ og vandi sam­settrar fjöl­skyldu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bera ör barnæskunnar ævilangt: „Við vorum með sár úti um allt“

Linda ólst upp á heim­ili með dæmdum barn­a­níð­ingi og konu sem var síðar dæmd fyrir mis­þyrm­ingar gagn­vart börn­unum. Frá því að alsystir hennar leit­aði til lög­reglu leið eitt og hálft ár þar til Linda komst í fóstur. Á þeim tíma versnuðu aðstæður á heim­il­inu. Enn lengri tími leið þar til yngri systk­ini þeirra voru fjar­lægð þaðan.

Súkkulaði­kaka beið á borðum þegar hún kom heim af æfingu. Hún átti tólf ára afmæli og fjöl­skyldan var sam­an­komin til að fagna því. En henni var illt í mag­anum og var búið að líða illa allan dag­inn. Í morg­un­mat hafði stjúp­móðir hennar pínt ofan í hana heilum lauk, hráum. Og chili-pipar. Þótt það væri ekk­ert óvana­legt að vakna upp við ofbeldi, var aðeins verra en vana­lega að vera vakin upp við það á afmæl­is­dag­inn, og nú átti hún að gleðj­ast yfir tíma­mót­unum. 

Daglegt líf í Taílandi 

Linda Biu Kjart­ans­dóttir fædd­ist á Íslandi árið 2002 og bjó hér fyrstu tvö ævi­árin áður en for­eldrar hennar fluttu aftur til Taílands. Hún er dóttir Kjartans Adolfs­sonar, sem hlaut árið 1991 tíu mán­aða fang­els­is­dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gagn­vart elstu dóttur sinni, Guðrúnu. Yngri börn Kjartans ólust engu að síður upp á heim­ili hans, dæmds barn­a­níð­ings, án þess að nokk­urt eft­ir­lit væri með fram­göngu …

Kjósa
144
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Þú ert sigurvegari 💪♥️💯 Takk fyrir að treysta okkur fyrir sögu þinni.
    Nú vil ég sjá að verklagsreglum verði breytt hjá barnayfirvöldum og á börnin verði alltaf hlustað og þau tekin út úr aðstæðum sem þarf að kanna. Þau eiga alltaf að njóta vafans og þeirra öruggi alltaf að vera það fyrsta sem er tryggt.
    8
  • Hugrún Jósepsdóttir skrifaði
    ❤️❤️❤️
    0
  • Þröstur Þórhallsson skrifaði
    Áfram Systur
    1
  • Fridur Pétursdóttir skrifaði
    Ömurleg saga þessar glæsilegu ungu hetju 😪 vonandi nær hún að byggja upp bjarta framtíð og vinna í sinni fortíð. Gangi ykkur systrum vel ❤️
    6
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Barnaverndarnefnd ætii að heita mistakanefnd. hvað er að þessu fólki sem starfar við nefndina, er það blint? Ég finn til með þeim systrum og þakka fyrir að þær komust í burtu og vildi óska að þær gætu trúað og skilið að Jesú elskar þær og Guð sér þær sem sigurvegara og myndi Sound og Freedom ætti að sýna þeim að veröldin á sér fullt af vondu fólki, en einnig fólki sem vinnur góð verk og trúir á Guð og kærleikann.
    3
  • TT
    Týr Thorarinsson skrifaði
    Sorglegt að lesa þessa sögu en getuleysi barnaverndar er enn og aftur umhugsunarefni.
    6
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Gangi þér vel að byggja þig upp sterka flotta unga kona
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brot Kjartans Adolfssonar

Anna segir frá ólýsanlegu ofbeldi pabba síns og stjúpmóður
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

Anna segir frá ólýs­an­legu ofbeldi pabba síns og stjúp­móður

Anna Kjart­ans­dóttir ólst upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og ofbeld­is­fullri stjúpu, meðal ann­ars á Höfn í Horna­firði. Faðir hennar situr nú í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni og stjúpa hennar var dæmd fyrir ofbeldið. Engin heim­ild er í lögum til að grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða til að vernda börn í þessum aðstæðum. Anna segir frá mis­þyrm­ingum sem hún mátti þola á heim­il­inu.
„Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verðskuldar“
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

„Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verð­skuldar“

Guðrún Kjart­ans­dóttir var barn að aldri þegar faðir hennar mis­not­aði hana. Nýlega var hann færður í gæslu­varð­hald vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni. Guðrún hefur alltaf haft áhyggjur af systk­inum sínum, reynt að fylgj­ast með og höfða til sam­visku föður síns, en furðar sig á því af hverju dæmdir barn­a­níð­ingar fái að halda heim­ili með börnum. Hún stígur fram með móður sinni, Katrínu Magn­ús­dóttur, í von um að stjórn­völd end­ur­skoði mis­bresti í kerf­inu svo betur sé hægt að vernda börn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár