Kjartan dæmdur í annað sinn fyrir kynferðisbrot gegn dætrum sínum

Kjartan Adolfs­son hefur verið dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn dætrum sínum og brot á nálg­un­ar­banni. Þetta er í annað sinn sem hann er dæmdur fyrir að brjóta gegn börnum sínum. Stundin hefur birt við­töl þar sem dæt­urnar lýsa ofbeld­inu.

Kjartan dæmdur í annað sinn fyrir kynferðisbrot gegn dætrum sínum
Kjartan Adolfs­son Kjartan hefur verið dæmdur til fjög­urra ára fang­els­is­vistar. Mynd: thaiiceland.is

Maður á sex­tugs­aldri, Kjartan Adolfs­son, hefur nú í annað sinn verið dæmdur fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn börnum sínum.

Kjartan var dæmdur fyrir Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands í byrjun mán­að­ar­ins í fjög­urra ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn dætrum sínum og brot á nálg­un­ar­banni. Sak­ar­efnið var ítrekuð brot gegn dætrum hans þegar þær voru barn­ungar auk þess að virða ekki nálg­un­ar­bann gagn­vart annarri þeirra.

Kjartan var ákærður í sjö liðum og var hann sýkn­aður af þremur þeirra. Kjartan var í dómnum sagður hafa sýnt af sér ein­beittan brota­vilja og var gert að greiða dætrum sínum miska­bætur vegna veru­legrar til­finn­inga­rösk­unar og and­legra þján­inga, þar með talið áfallastreituröskun. Þeirri eldri greiðir hann 1,5 millj­ónir króna, en þeirri yngri greiðir hann 3 millj­ónir króna.

Hlaut áður dóm fyrir brot gegn elstu dótturinni

Áður var Kjartan dæmdur í tíu mán­aða fang­elsi árið 1991 fyrir ítrekuð kyn­ferð­is­brot gegn elstu dóttur sinni, Guðrúnu Kjart­ans­dóttur, sem árang­urs­laust reyndi að vernda yngri systur sínar fyrir föður sínum. Dætur hans voru allar á aldr­inum fimm til sjö ára þegar þær segja föður sinn hafa byrjað að brjóta gegn sér.

Guðrún sagði sögu sína í við­tali við Stundina þann 25. nóv­em­ber 2017, en jafn­framt var greint frá því að systir Kjartans hefði til­kynnt hann til barna­vernd­ar­yf­ir­valda án árang­urs. „Ég hef alltaf haft áhyggjur af systrum mínum og reynt að gera það sem í mínu valdi stendur til að vernda þær,“ sagði Guðrún. „Svo ég varð ekki hissa þegar systir mín kærði pabba, en missti allan þrótt. Þú ert svo van­máttug. Eftir allt sem ég hef gert til þess að reyna að stöðva hann, kemur þetta samt upp. Ég vil ekki kalla mig fórn­ar­lamb, en ég var fórn­ar­lamb hans í æsku, og það er engu að síður ég sem sit uppi með ábyrgð­ina gagn­vart yngri systk­inum mínum. Af því að eng­inn annar axlar þá ábyrgð. Af hverju sáu stjórn­völd ekki til þess að hann gæti ekki gert þetta aftur?“

„Af hverju sáu stjórn­völd ekki til þess að hann gæti ekki gert þetta aftur?“

Þá sagði systir Kjartans, Kolbrún Jóns­dóttir, frá því í sam­tali við Stundina að hún hefði greint barna­vernd frá því að ástæða væri til að ætla að hann bryti gegn börnum sínum að nýju. „Við hringdum í barna­vernd vegna þess að við vorum hræddar um að bróðir okkar myndi end­ur­taka fyrri hegðun,“ sagði Kolbrún, sem fékk þau við­brögð að ekk­ert væri hægt að gera. „Hins vegar væru lögin þannig að það væri ekk­ert hægt að gera fyrr en eftir að hann hefði gert það. Engar for­varnir væru til og engar eft­ir­lits­heim­ildir í lög­unum. Eftir það hefur þetta verið eins og að bíða eftir stór­slysi. Þú vonar að ekk­ert ger­ist, en ert alltaf við­búin því. Þú ert svo ofboðs­lega hjálp­ar­vana, alltaf að bíða og lesa á milli lín­anna, leita að ein­hverjum merkjum. En það leit alltaf út fyrir að það væri bara ham­ingja á heim­il­inu og ég von­aði inni­lega að það væri raun­veru­lega þannig. Þetta er mjög skrítin staða að vera í.“

27. jan­úar 2018 birt­ist svo við­tal við Önnu Kjart­ans­dóttur þar sem hún sagði frá mis­þyrm­ing­unum sem hún mátti þola í æsku, bæði af hendi föður síns og ofbeld­is­fullrar stjúpu. Loks stað­festir dóm­ur­inn brot gegn þriðju dótt­ur­inni, Lindu Bíu Kjart­ans­dóttur.

„Ég vil líka að barna­vernd geri meira til þess að hjálpa börnum. Barna­vernd á að hjálpa börnum en ekki for­eldrum,“ sagði Anna í sam­tali við Stundina. „Ég var alltaf með falskt bros, sem náði ekki til augn­anna. Oft brosti ég vegna þess að ég var við það að bresta í grát.“

Stjúpmóðirin hlaut einnig dóm

Þá var stjúp­móðir þeirra Önnu og Lindu, Tipvipa Arunvongwan, sem fædd er árið 1980, ákærð fyrir að hafa „í refs­ing­ar­skyni, margend­ur­tekið og á alvar­legan hátt, veist að og ógnað heilsu og vel­ferð“ dóttur sinnar og stjúp­dætra, með ofbeldi „sem var til þess fallið að ógna, mis­þyrma og mis­bjóða börn­unum and­lega og lík­am­lega“.

Dómur féll í hér­aði í mars 2016 þar sem hún var dæmd í tíu mán­aða fang­elsi, þar af sjö mán­aða skil­orðs­bundið, fyrir lík­am­legar refs­ingar og mis­þyrm­ingar gagn­vart börn­unum, auk þess sem fram­koma hennar þótti van­virð­andi og ógna heilsu þeirra og vel­ferð. Þó var talið að yngsta stelpan, dóttir hennar, hefði fengið betri með­ferð en stjúp­dæt­urnar. Sjálf sagð­ist hún í skýrslu­töku hjá lög­reglu hafa slegið dóttur sína til mála­mynda, eða til að gæta jafn­ræðis gagn­vart börn­unum og sýna stjúp­dætr­unum að hún elskaði börnin jafnt.

Anna lýsti því í við­tali við Stundina að hún hefði verið neydd, af stjúp­móður sinni, til að borða skemmdan mat. 

Var sýknaður af hluta

Kjartan var sýkn­aður af þremur ákæru­liðum, meðal ann­ars af ítrek­uðum alvar­legum kyn­ferð­is­brotum gegn dóttur sinni á aldr­inum 5 eða 6 ára til tólf ára ald­urs, og svo að hafa þuklað á henni þar sem hún var við störf í frysti­húsi 15 ára að aldri. Atriðin þóttu ekki sönnuð, en þrátt fyrir það var hann dæmdur fyrir að brjóta alvar­lega gegn henni þegar hún var níu til ell­efu ára gömul.

Hins vegar var hann sak­felldur fyrir að brjóta gegn annarri dóttur sinni sjö til níu ára gam­alli, með því að nauðga henni, meðal ann­ars á gisti­heim­ili.

Síðustu brotin framdi Kjartan árið 2016, þegar hann rauf nálg­un­ar­bann með því að fara til móts við dóttur sína í versl­un­ar­mið­stöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Brot Kjartans Adolfssonar

Bera ör barnæskunnar ævilangt: „Við vorum með sár úti um allt“
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

Bera ör barn­æsk­unnar ævi­langt: „Við vorum með sár úti um allt“

Linda ólst upp á heim­ili með dæmdum barn­a­níð­ingi og konu sem var síðar dæmd fyrir mis­þyrm­ingar gagn­vart börn­unum. Frá því að alsystir hennar leit­aði til lög­reglu leið eitt og hálft ár þar til Linda komst í fóstur. Á þeim tíma versnuðu aðstæður á heim­il­inu. Enn lengri tími leið þar til yngri systk­ini þeirra voru fjar­lægð þaðan.
Anna segir frá ólýsanlegu ofbeldi pabba síns og stjúpmóður
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

Anna segir frá ólýs­an­legu ofbeldi pabba síns og stjúp­móður

Anna Kjart­ans­dóttir ólst upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og ofbeld­is­fullri stjúpu, meðal ann­ars á Höfn í Horna­firði. Faðir hennar situr nú í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni og stjúpa hennar var dæmd fyrir ofbeldið. Engin heim­ild er í lögum til að grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða til að vernda börn í þessum aðstæðum. Anna segir frá mis­þyrm­ingum sem hún mátti þola á heim­il­inu.
„Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verðskuldar“
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

„Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verð­skuldar“

Guðrún Kjart­ans­dóttir var barn að aldri þegar faðir hennar mis­not­aði hana. Nýlega var hann færður í gæslu­varð­hald vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni. Guðrún hefur alltaf haft áhyggjur af systk­inum sínum, reynt að fylgj­ast með og höfða til sam­visku föður síns, en furðar sig á því af hverju dæmdir barn­a­níð­ingar fái að halda heim­ili með börnum. Hún stígur fram með móður sinni, Katrínu Magn­ús­dóttur, í von um að stjórn­völd end­ur­skoði mis­bresti í kerf­inu svo betur sé hægt að vernda börn.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár