„Markaðurinn getur ekki skipulagt samfélag“

Reitur 13 á Kárs­nes­inu hefur verið umdeildur árum saman. Íbúar í grennd­inni telja gengið á hags­muni sína og hið sama telja sumir bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans í Kópavogi. Fjár­festar eru sagðir hafa verið við stýrið í deiliskipu­lags­gerð þrátt fyrir að eiga ein­ungis hluta reits­ins. Í fyrra seldi félagið Vina­byggð reit­inn og fyr­ir­hug­aðar upp­bygg­ing­ar­heim­ildir á honum á 1,5 millj­arða króna, til félags í eigu Mata-systk­in­anna, sem hafa nú fengið bygg­ing­ar­rétt á allri lóð­inni án aug­lýs­ingar með sam­komu­lagi við Kópa­vogsbæ.

„Markaðurinn getur ekki skipulagt samfélag“
Bæj­ar­full­trúar Helga Jóns­dóttir og Theodóra Þor­steins­dóttir bæj­ar­full­trúar í Kópavogi eru báðar óhressar með gang mála á Reit 13 og telja fjár­festa hafa fengið í gegn alla sína draum­óra um upp­bygg­ing­ar­reit­inn með offorsi í gegnum skipu­lags­svið Kópa­vogs­bæjar. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mér líður eins og bær­inn sé að gæta hags­muna fjár­festa, en ekki okkar íbúa,“ segir Eggert Matth­í­as­son, íbúi við Þing­hóls­braut á Kársnesi. 

Síðdegis í nóv­em­ber 2020 sett­ist hann við tölv­una sína til að taka þátt í fjar­fundi á vegum Kópa­vogs­bæjar um skipu­lags­mál á svoköll­uðum reit 13, sem er stað­settur örfáum metrum fyrir neðan heim­ili hans. Árið 2016 hafði hann séð Kópa­vogsbæ stæra sig af fram­tíð­ar­sýn fyrir Kárs­nesið, Spot on Kársnes, sem virt­ist sýna afar lágreista byggð á svæð­inu, en það var verð­launa­til­laga í sam­keppni um fram­tíð­ar­sýn fyrir Kárs­nesið. Eggert var því óvið­bú­inn þeirri til­lögu sem hann segir að hafi verið skellt framan í íbúa á fund­inum. 

„Við fengum bara boð á fund þar sem átti að kynna þennan reit. Þessi fundur varð að vera á net­inu út af Covid,“ segir Eggert, „og svo mæta allir hérna í kring á fund­inn, hver heima hjá sér, og við komumst …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mammon sér um sína, en hversu lengi er óvíst. Þarna er bara enn eitt dæmið um einræði sömu skoðana og vina / frænd hygli sem þrífst hérna. Það hefur engin ismi lukkast hingað til í allri veraldarsögunni.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reitur 13

ViðtalReitur 13

Hafnar því að Vina­byggð hafi fengið að vera í bíl­stjóra­sæt­inu

Annar eig­enda Vina­byggðar ræðir skipu­lags­ferlið á reit 13 í sam­tali við Heim­ild­ina. Þórir Kjart­ans­son segir alrangt að skipu­lags­yf­ir­völd í Kópavogi hafi legið flöt fyrir vilja fjár­festa, í and­stöðu við hags­muni íbúa. Þvert á móti hafi sam­ráð verið meira en gengur og ger­ist. Þórir segir að þrjá­tíu ára vin­átta hans við Ármann Kr. Ólafsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra, hafi ekki haft áhrif á fram­gang máls­ins.

10 mín. lestur

ViðtalReitur 13

Skortur á heild­ar­sýn galli á Kárs­nesmód­el­inu

Fyrr­ver­andi for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar telur að Kópa­vogs­bær hafi ekki unnið nægi­lega grunn­vinnu í aðdrag­anda þess að reitir á Kársnesi fóru á deiliskipu­lags­stig. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir, aðjunkt í skipu­lags­fræði við HÍ, segir að bær­inn hafi ekki verið í stöðu til að setja skýra umgjörð um þær for­sendur sem gilt hafi á hverjum og einum upp­bygg­ing­ar­reit. „Við viljum ekki að bygg­inga­geir­inn bara valsi frjáls,“ segir hún við Heim­ild­ina.

Mest lesið undanfarið ár