Fréttamál

Reitur 13

Greinar

ViðtalReitur 13

Hafnar því að Vina­byggð hafi fengið að vera í bíl­stjóra­sæt­inu

Annar eig­enda Vina­byggðar ræðir skipu­lags­ferlið á reit 13 í sam­tali við Heim­ild­ina. Þórir Kjart­ans­son segir alrangt að skipu­lags­yf­ir­völd í Kópavogi hafi legið flöt fyrir vilja fjár­festa, í and­stöðu við hags­muni íbúa. Þvert á móti hafi sam­ráð verið meira en gengur og ger­ist. Þórir segir að þrjá­tíu ára vin­átta hans við Ármann Kr. Ólafsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra, hafi ekki haft áhrif á fram­gang máls­ins.

10 mín. lestur

ViðtalReitur 13

Skortur á heild­ar­sýn galli á Kárs­nesmód­el­inu

Fyrr­ver­andi for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar telur að Kópa­vogs­bær hafi ekki unnið nægi­lega grunn­vinnu í aðdrag­anda þess að reitir á Kársnesi fóru á deiliskipu­lags­stig. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir, aðjunkt í skipu­lags­fræði við HÍ, segir að bær­inn hafi ekki verið í stöðu til að setja skýra umgjörð um þær for­sendur sem gilt hafi á hverjum og einum upp­bygg­ing­ar­reit. „Við viljum ekki að bygg­inga­geir­inn bara valsi frjáls,“ segir hún við Heim­ild­ina.
VettvangurReitur 13

„Mark­að­ur­inn getur ekki skipu­lagt sam­fé­lag“

Reitur 13 á Kárs­nes­inu hefur verið umdeildur árum saman. Íbúar í grennd­inni telja gengið á hags­muni sína og hið sama telja sumir bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans í Kópavogi. Fjár­festar eru sagðir hafa verið við stýrið í deiliskipu­lags­gerð þrátt fyrir að eiga ein­ungis hluta reits­ins. Í fyrra seldi félagið Vina­byggð reit­inn og fyr­ir­hug­aðar upp­bygg­ing­ar­heim­ildir á honum á 1,5 millj­arða króna, til félags í eigu Mata-systk­in­anna, sem hafa nú fengið bygg­ing­ar­rétt á allri lóð­inni án aug­lýs­ingar með sam­komu­lagi við Kópa­vogsbæ.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár