Svandís vonar að tillögurnar komi umræðunni upp úr skotgröfum

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra seg­ist vona að nú sé komið að því að Alþingi auðn­ist að gera breyt­ingar sem kom­ist næst því að skapa sátt um sjáv­ar­út­veg­inn. Hún segir aug­ljóst á við­horfi almenn­ings að of mikil sam­þjöppun hafi fengið að eiga sér stað í ljósi sér­reglna. Breyt­ingar í þá átt muni hafa áhrif á kvóta­stöðu stærstu fyr­ir­tækja lands­ins.

Stýri­hópur Auð­lind­ar­innar okkar skil­aði loka­skýrslu sinni í dag. Mark­miðið er að skapa sem víð­tæk­asta sátt um fyr­ir­komu­lag sjáv­ar­út­vegs­mála á Íslandi. Slíkt hefur verið gert áður og oftar en ekki steytt á vilja Alþingis til að leiða til­lög­urnar í lög. 

Svandís Svav­ars­dóttir sagð­ist í við­tali við Heim­ild­ina að lok­inni kynn­ingu á skýrslu hóps­ins, vona að slíkt hendi ekki núna. Það að full­trúar stjón­mála­flokk­ana hafi setið við borðið í gegnum allt ferlið sem afstaðið er, hafi verið lyk­il­at­riði, í þá átt að koma mál­inu inn í og í gegnum þingið. 

Ein þeirra tilllagna sem mest áhrif gæti haft er sú að skýra loks ald­ar­fjórð­ungs gam­alt laga­á­kvæði gegn sam­þjöppun afla­heim­ilda. Þegar alþingi setti þau lög árið 1998 var það sagt til að forða því að ein­hver gæti kom­ist yfir of mik­inn kvóta …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár