Katrín Jakobsdóttir: „Ég hef verið kölluð barnamorðingi“

Forsætis­ráðherra segist hafa talað víða um heim um það skref sem íslenska þingið tók með því að heimila þungunarrof til loka 22. viku meðgöngu á meðan að þessi réttindi hafi verið skert annars staðar. „Það sem ég upplifði á þessum degi var bara mikið stolt yfir Íslandi.“

Hugsar um árangur
Hugsar um árangur Katrín Jak­obs­dóttir segir að póli­tík snú­ist ekki um hvernig henni eða öðrum þing­mönnum líði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir að umræða um þungunarrof sé dæmi um orðræðu þar sem „ótrúlegt bakslag hefur orðið víða um heim“. Orðræðan einkennist af vantrausti á konur. Þar með séu tekin af þeim þau grundvallar­réttindi að ráða yfir eigin líkama.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við hana í nýjasta tölublaði Heimildarinnar. 

Lög um þungunarrof til loka 22. viku meðgöngu voru samþykkt á Alþingi í maí 2019. Fjörutíu þingmenn samþykktu frum­varpið en 18 sögðu nei, þar af 16 karlar. „Ég hef sagt það víða um heim þar sem ég tala, að þetta var skref sem íslenska þingið tók á sama tíma og við vorum að sjá þessi réttindi skert annars staðar. En ég hef líka fengið á mig gusur frá alls konar fólki. Ég hef verið kölluð barna­morðingi. Og það er ekki eins og gusurnar komi úr einni átt, þær koma úr öllum áttum.“ 

…
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár