Systk­inin Margrét og Páll eru elst sex systk­ina sem áttu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Vísi. Þau eiga ekki fyr­ir­tækið lengur heldur hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Rúmt pró­sent á mann. Mynd: Heiða Helgadóttir

Af köldu steingólfi verbúðar í efstu sæti tekjulista

Elstu systk­inin í sex systk­ina hópi sem seldi Síld­ar­vinnsl­unni útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísi í fyrra fyrir 31 millj­arð segja gott að geta gefið aftur til sam­fé­lags­ins með þeim mörg hund­ruð millj­ónum sem þau greiddu í skatt af söl­unni. Fólk úr fjöl­skyld­unni, fjögur systk­in­anna og makar tveggja systra, eru í sex efstu sætum hátekju­lista Heim­ild­ar­innar. Þau greiddu sam­an­lagt á fimmta millj­arð í skatt á síð­asta ári.

Margrét Páls­dóttir var 10 ára gömul þegar hún flutti út úr venju­legu tví­býl­is­húsi inn í ver­búð í Grinda­vík ásamt for­eldrum sínum og fjórum systk­inum rétt fyrir jólin árið 1965. Faðir hennar, Páll Hreinn Pálsson, hafði þá keypt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Sævík í Grinda­vík og vél­bát­inn Vísi KE 70 með tveimur öðrum. Fisk­verkun fyr­ir­tæk­is­ins var á neðri hæð húss­ins sem fjöl­skyldan bjó í í um tvö ár með verka­fólki, mest frá Græn­landi og Færeyjum. 

„Magga, hvernig læt­urðu bjóða þér þetta?“ spurðu kyn­systur Mar­grétar Sig­hvats­dóttur, eig­in­konu Páls, hana. Eig­in­mað­ur­inn skipti ekki yfir í jakka­föt og stresstösku við það að eign­ast fyr­ir­tæki, heldur hélt sig í slorgall­anum.

Þetta var á fyrstu árum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Vísis, þegar oft var tví­sýnt um fram­tíð þess, svo tví­sýnt að Margrét yngri man eftir því að jafn­vel fjöl­skyldu­sjón­varpið hafi verið í hættu …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár