Er „draugurinn“ fundinn? – Áður óþekkt tegund manna leyndist í helli í Kína

Sú var tíð að for­saga manns­ins virt­ist ein­föld. Frá suð­ur­öpum þró­að­ist homo habilis og síðan kom fram homo erectus og þegar hann hafði gengið sitt skeið birt­ist homo sapi­ens með hlið­ar­grein Neand­er­dals­manna. En vís­inda­menn hafa nú fyrir all­nokkru afskrifað þessa ein­földu mynd eftir að hafa kom­ist á snoðir um að mann­teg­und­irnar voru í raun mun fleiri. Og nú er „ný“ teg­und fundin í Kína sem ekki er gott að segja hvar passar inn í mynd­ina.

Árið 2005 var fólk á ferð í hæð­ar­drögum fyrir ofan þorpið Pangwang aust­ar­lega í Anhúí-hér­aði í Kína. Þorpið er um tíu kíló­metra frá syðri bakka Yangtze-fljóts, spotta­korn inni í landi, það eru 500 kíló­metrar í beinni loft­línu til Sjanghæ við sjáv­ar­strönd­ina. Þetta er þétt­býlt land­bún­að­ar­svæði en í þorp­unum við rætur hæð­anna ríkir þó kyrrð og ró. Þegar fólkið fann hell­is­munna neð­ar­lega í suð­ur­hlíð Meiyuan-hlíðar vakti það í fyrstu ekki mikla athygli því hæð­irnar þarna eru úr kalk­steini og víða heldur gljúpum svo hellar eru nokkuð víða.

Samt var fundur hell­is­ins til­kynntur sam­visku­sam­lega til yfir­valda og ári síðar voru vís­inda­menn mættir á stað­inn til að vita hvort nokkuð hnýsi­legt kynni að leyn­ast þarna í iðrum Meiyuan-hæðar.

Mannleifar í helli

Og viti menn. Það fund­ust manna­leifar. Og var þá hell­inum umsvifa­laust lokað og ákveðið að hefja nákvæm­ari rann­sókn síðar. Að henni stóðu vís­inda­menn við kín­versku vís­inda­aka­dem­í­una og Xi’an Jiaotong-háskóla í sam­vinnu við kollega sína á Bret­landi og Spáni. Þessi rann­sókn hófst árið 2014 og stóð í fimm ár og nýlega birt­ust nið­ur­stöð­urnar í nýju hefti af vís­inda­rit­inu Journal of Human Evolution.

Óhætt er að segja að þær hafi vakið mikla athygli, enda tíð­indin óvænt sem bár­ust úr hell­inum.

Fyrst er frá því að segja að í hell­inum, sem nefn­ist nú Hualong, hafa til þessa fund­ist rúm­lega 30 stein­gerv­ingar af mönnum og þeir elstu rúm­lega 300 þús­und ára gamlir. Einnig fannst tölu­vert af frum­stæðum verk­færum úr steini og tals­vert af beinum ýmissa spen­dýra, fyrst og fremst klauf­dýra en einnig nokk­urra nag­dýra.

Bein af táningspilti

Alls er um 40 teg­undir að ræða og engin stór rán­dýr virð­ast hafa haldið til í hell­inum. Þau hafa þó greini­lega lagt stundum leið sína í hell­inn, vænt­an­lega í leit að bráð eða hræjum, því bit- og tanna­för rán­dýra má sjá á sumum klauf­dýra­leif­unum.

Ekki er talið að um sam­fellda búsetu manna hafi verið að ræða í þessum helli. Til þess var hann of óör­uggur, enda ljóst að margoft hefur hrunið úr hell­inum, því Meiyuan-hæðin er gljúp og vara­söm, ekki síst í mik­illi rign­ing­ar­tíð. Vís­inda­menn­irnir hafa því ályktað að fólk hafi ann­að­hvort búið í hell­inum um skamma hríð, gjarnan með löngu milli­bili, eða hrein­lega farið inn í hann öðru hvoru til að sækja sér hræ af dýrum sem þar höfð­ust við.

Manna­leif­arnar voru frá ýmsum tíma en óhætt er að segja að þær elstu – sem fund­ust síð­astar – veki lang­mesta athygli. Þar er um að ræða stóran hluta af höf­uð­kúpu og kjálka um það bil 12 ára gam­als ung­lings; reyndar fannst fót­ar­bein af þeim sama pilti líka.

Af hvaða tegund er unglingurinn?

Ung­ling­ur­inn var uppi fyrir um 300 þús­und árum, það er nokkuð ljóst. En af hvaða teg­und var hann?

Lang­lífasta mann­teg­undin sem enn þá hefur komið fram var homo erectus, sem kom fram á sjón­ar­sviðið fyrir um tveim millj­ónum ára. Hann dreifð­ist um Afríku, Evrópu og Asíu og hélt velli allt þar til fyrir „aðeins“ 100 þús­und árum en þá frétt­ist síð­ast af honum þar sem nú heitir Indónesía.

Þá höfðu fyrir löngu komið fram nýjar mann­teg­undir sem vænt­an­lega hafa þró­ast frá erectusi – teg­undir eins og homo heidel­berg­ensis og Neand­er­dals­mað­ur­inn. Báðar voru komnar fyrir að minnsta kosti 400 þús­und árum. Örlitlu síðar birt­ist svo homo den­isova. Neand­er­dals­mað­ur­inn hélt fyrst og fremst til í Evrópu og Vestur-Asíu en Den­isovarnir í Austur-Asíu, þar á meðal í Kína.

Báðar teg­und­irnar dóu út fyrir um 15–30 þús­und árum.

Margar tegundir manna uppi samtímis

Hinn gamli homo heidel­berg­ensis bjó hins vegar fyrst og fremst í Afríku en skaut einnig upp koll­inum í Evrópu og hugs­an­lega í Suður-Asíu.

Talið hefur verið að homo sapi­ens – okkar eigin mann­teg­und – sé komin af homo heidel­berg­ensis og þó það sé ef til vill ekki rétt, þá hafa menn þó verið sam­mála um að teg­undin okkar hafi verið komin fram í dags­ljósið fyrir um 200 þús­und árum í Afríku.

Homo sapi­ens fór svo ekki að breið­ast fyrir alvöru út um Evrópu og Asíu fyrr en fyrir 60–80 þús­und árum.

Sapiens, Neand­er­dals­menn og Den­isovar lifðu því sam­tímis í ver­öld­inni í 150–180 þús­und ár. Þetta voru aðskildar teg­undir en þó svo skyldar að þær gátu eign­ast afkvæmi saman, og gerðu það ber­sýni­lega stundum. Erfða­rann­sóknir nútím­ans hafa leitt það ræki­lega í ljós.

Leifar af genum á kreiki

Nútíma­fólk geymir margt djúpt í frumum sínum gen bæði frá Neand­er­dals­mönnum og Den­isovum þótt „magn“ sé mis­mun­andi eftir svæðum.

Eftir því sem erfða­rann­sóknum fleygir fram kemur fleira í ljós og fyrir ekki löngu átt­uðu vís­inda­menn sig á því að í erfða­mengi manns­ins virt­ust á kreiki leifar af genum enn einnar teg­und­ar­innar, sem sé hvorki Denisova né Neand­er­dals­manna. Ég kann ekki að skýra hvernig þeir töldu sig koma auga á þetta – það er alltof tækni­legt – en síðan hefur gjarnan verið talað um „draug“ í gena­mengi okkar.

Enginn vissi hver þessi teg­und var eða hvar og hvenær hún hefði verið á dögum.

En nú víkur sög­unni aftur að unga pilt­inum í Hualong-helli.

Þegar vís­inda­menn­irnir fóru að setja saman stein­gerð brotin úr höf­uð­kúpu hans rak þá í rogastans. Mestur efri hluti haus­kúp­unnar virt­ist gefa til kynna að þarna hefði homo sapi­ens verið á ferð­inni. 

Lítil haka segir sína sögu

Það var samt eig­in­lega ómögu­legt að trúa því. Homo sapi­ens var jú ekki kom­inn til sög­unnar fyrir 300 þús­und árum þegar tán­ings­pilt­ur­inn dó drottni sínum í þessum helli – hvað svo sem hann hafði verið að gera þar, kannski að leita sér að beinum til að naga.

Og allra síst gat átt sér stað að snemm­bor­inn homo sapi­ens hefði verið kom­inn alla leið til Austur-Kína fyrir svo löngu síðan. Þótt kín­verskir fræði­menn hafi oft gefið til kynna að þeir vildu gjarnan finna vís­bend­ingar þess að homo sapi­ens hafi þró­ast í Kína en ekki Afríku, þá hafa þær vís­bend­ingar ein­fald­lega ekki fund­ist enn þá.

En var þarna komin sú vís­bend­ing sem þurfti?

Nei, ekki var svo, því þegar afgangur haus­kúp­unnar var skoð­aður, þá kom á dag­inn að piltur hafði hel­stil litla og fáfengi­lega höku, miðað við homo sapi­ens. Lögun og stæð hök­unnar minnti helst á homo erectus eða þá Denisova sem munu ekki hafa státað af hörku­legri höku.

Fjórða tegundin?

Um tíma héldu vís­inda­menn­irnir að höku­leysi pilts­ins hefði stafað af æsku hans og þroska­leysi en eftir að hafa rann­sakað málið oní ræmur, þá varð nið­ur­staðan sú að svo væri ekki. Pilt­ur­inn (sem vís­inda­menn­irnir kalla því hljóm­fagra nafni HLD 6) hefði ein­fald­lega verið frá nátt­úr­unnar hendi og í genum sínum eins og sam­bland af homo sapi­ens (sem var EKKI kom­inn til sög­unnar) og þá lík­lega Denisova sem var reyndar lík­lega orð­inn til, en þó til­tölu­lega nýlega.

Og hvað þýðir það? Er „draug­ur­inn“ fund­inn? Hin óþekkta „fjórða teg­und“ sem er á sveimi í genum okkar í við­bót við gen frá Neand­er­dals­manni og Den­isovum, auk okkar eigin?

Það er altso spurn­ingin. Vís­inda­menn héldu reyndar að „draug­ur­inn“ hefði ekki komið fram fyrr en nokkru síðar, en hver veit hvað hefur gerst í Kína?

Leist Sapiens vel á drauginn?

Athugið að þessi piltur (eða fólkið hans) getur ekki hafa getið af sér homo sapi­ens. Kenn­ingin um upp­runa Sapiens í Afríku stendur enn óhögguð. En það er vel hugs­an­legt að hafi teg­undin sem HLD 6 til­heyrði verið enn á dögum austur í Kína þegar homo sapi­ens birt­ist þar 250 þús­und árum síðar, þá hafi Sapiens lit­ist vel á, þrátt fyrir veim­il­títu­lega hök­una, og eign­ast með teg­und­inni nógu mörg afkvæmi og nógu oft til að „draugur“ teg­und­ar­innar sé enn í genum okkar.

Þetta er skemmti­leg upp­götvun, þó enn eigi eftir að draga loka­á­lykt­anir af því sem fannst í hell­inum í Hualong. Og þetta sýnir líka hvað lífs­nauð­syn­legur fróð­leikur um for­tíð­ina hvílir stundum á veikum grunni. Því hvað ef hellir­inn hefði alveg hrunið saman, eins og vel hefði getað gerst?

Þá hefðum við aldrei staðið frammi fyrir draugnum.

Og svo er önnur spurn­ing: Hvað leyn­ist inni í hellum sem við höfum ekki enn fundið og munum kannski aldrei finna?

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár