MAST kærir bændur

Tveir sauð­fjár­bændur í Vestur-Húna­vatns­sýslu hafa verið kærðir til lög­reglu af Mat­væla­stofnun. Eru þeir sagðir hafa hunsað fyr­ir­mæli um að afhenda fé til slátr­unar í því skyni að hægt væri að rann­saka hvort féð væri riðu­veikt. Mikill styrr hefur staðið um fram­göngu stofn­un­ar­innar í mál­inu.

MAST kærir bændur
Kærðir Bænd­urnir eru kærðir fyrir brot gegn dýra­sjúk­dóma­lögum. Mynd: Pixabay

Mat­væla­stofnun hefur kært tvo bændur í Vestur-Húna­vatns­sýslu til lög­reglu, fyrir að hafa neitað að afhenda fé sem þeim hafði verið gert að afhenda til nið­ur­skurðar. Féð fengu bænd­urnir frá bænum Syðri-Urriðaá en þar greind­ist í vor ein aðkeypt kind með riðu. Fjár­stofn­inn á Syðri-Urriðaá var skor­inn niður en engin riða greind­ist í öðrum gripum en þeim eina sem um ræddi.

Í apríl á þessu ári var stað­fest riða á bænum Bergs­stöðum í Vestur-Húna­vatns­sýslu. Bærinn er í Mið­fjarð­ar­hólfi og var það í fyrsta skipti sem riða greind­ist í hólf­inu. Allur stofn­inn var skor­inn niður, 690 kindur. Í fram­hald­inu voru kindur sem keyptar höfðu verið frá Berg­stöðum skornar og rann­sak­aðar. Kom þá í ljós að ein kind á Syðri-Urriðaá, sem kom frá Bergs­stöðum, var riðu­veik. Í fram­hald­inu var allt fé á bænum skorði, alls um 720 kindur. Sem fyrr segir greind­ist ekki frek­ari riða á bænum.

Bændum sem fengið höfðu fé frá Syðri-Urriðaá var í fram­hald­inu gert að afhenda umrætt fé til slátr­unar svo unnt yrði að taka úr því sýni, en riðusmit verður ekki stað­fest nema með því að aflífa féð og rann­saka það að því loknu. Fyr­ir­skip­anir um þetta bár­ust bændum 9. maí og var þeim skipað að afhenda fé sitt vik­una á eftir.

Vakti krafa Mat­væla­stofn­unar veru­lega úlfúð meðal bænda þar eð sauð­burður var þá haf­inn og flestir bændur bæði mjög upp­teknir við þau störf og jafn­vel búnir að setja fé út. Þá hafði Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir áður gefið það út að ekki yrði fleira fé skorið á meðan á sauð­burði stæði. Í ofaná­lag var bændum gert að svara kröfu Mat­væla­stofn­unar innan tveggja daga og þótti það ekki góð stjórn­sýsla.

Um var að ræða níu bæi og alls voru grip­irnir 35 sem átti að afhenda. Því virð­ist vera að bændur á tveimur af þessum bæjum hafi ekki orðið við kröfu Mat­væla­stofn­unar um að afhenda féð. Í til­kynn­ingu á síðu Mat­væla­stofn­un­ar­innar segir að sam­kvæmt dýra­sjúk­dóma­lögum sé refsi­vert að brjóta gegn fyr­ir­mælum sem þessum.

„Það er álit stofn­un­ar­innar að með synjun sinni stofni bænd­urnir ekki aðeins heilsu dýra sinna í hættu heldur einnig heilsu sauð­fjár í eigu ann­arra, þ.e. fjár sem hefur sam­gang við þeirra fé,“ segir á vef stofn­un­ar­innar.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár