Hinsegin brúðkaupsvefsíðan sem enginn bað um en fór fyrir hæstarétt

Sann­krist­inn vef­hönn­uður fór í mál við Colorado-ríki þar sem hún sagð­ist hafa fengið verk­beiðni frá hinsegin pari sem gekk gegn hennar kristnu skoð­unum. Málið end­aði fyrir Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna. En mað­ur­inn sem átti að hafa óskað eftir þjón­ust­unni kann­ast hins vegar ekki við það. Og er giftur konu.

Hinsegin brúðkaupsvefsíðan sem enginn bað um en fór fyrir hæstarétt
Vill heiðra Guð Grafíski hönn­uð­ur­inn Lorie Smith vill að verk hennar heiðri og lof­syngi Guð, því geti hún ekki hannað boðskort eða heima­síðu fyrir sam­kynja pör. Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna komst að þeirri nið­ur­stöðu að það brýtur gegn tján­inga­frelsi hennar að neyða hana til að gera slíkt. Mynd: AFP

Lorie Smith, sann­krist­inn graf­ískur hönn­uður og vef­hönn­uður, lét reyna á það fyrir dóm­stólum að það bryti gegn tján­ing­ar­frelsi hennar að þurfa að hanna vef­síðu og boðskort fyrir sam­kyn­hneigð verð­andi brúð­hjón.  

Málið fór alla leið í Hæstirétt Banda­ríkj­anna sem í síð­ustu viku sneri nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í Colorado við og komst að þeirri nið­ur­stöðu að Colorado-ríki er óheim­ilt að neyða Lorie til að hanna heima­síðu og brúð­kaups­boðskort fyrir hinsegin par. 

Dómurinn var með þeim síð­ustu sem hæsti­réttur kvað upp á þessu starfs­ári og flokk­ast því með öðrum umdeildum málum þar sem nið­ur­stöðu hefur verið beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu. Rúpúblikanar eru með meiri­hluta í hæsta­rétti og því kom ekki á óvart að sex dóm­arar dæmdu vef­hönn­uð­inum í vil á grund­velli tján­ing­ar­frelsis. 

En málið snýst um annað og meira en rétt fyr­ir­tækja­eig­enda til að mis­muna við­skipta­vinum eftir kyn­hneigð. Áreið­an­leiki dóm­skjals sem gegnir lyk­il­hlut­verki í mál­inu er óljós og útlit er fyrir að upp­lýs­ing­arnar sem koma fram í skjal­inu eigi sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum og séu hrein­lega fals­aðar. 

Lorie rekur sína eigin hönn­un­ar­stofu, 303 Creative, í Litt­leton í Colorado. Hún kemur úr fjöl­skyldu frum­kvöðla, að eigin sögn, og lang­aði alltaf að reka eigið fyr­ir­tæki. „Ég hef alltaf verið skap­andi,“ segir hún í sam­tali við New York Times. „Þegar ég byrj­aði að skapa tók ég með­vit­aða ákvörðun um að það sem ég hanna og skapa verði að heiðra og lof­syngja Guð.“ 

Fetar í fótspor bakarans

Málinu svipar til máls bak­ar­ans Jack Phillips. Rétt eins og Lorie er Jack frá Colorado og sann­krist­inn, og Lorie þekkir hann meira að segja. Jack á bak­aríið Masterpiece Cakeshop og neit­aði að baka brúð­kaup­stertu fyrir les­bískt par en dóm­stóll í Colorado komst að þeirri nið­ur­stöðu að honum var ekki heim­ilt að mis­muna par­inu. Málið fór fyrir hæsta­rétt sem sneri dómnum við. Dómurinn var hins vegar ekki tal­inn for­dæm­is­gef­andi þar sem ekki var kveðið á um í hvaða til­fellum er heim­ilt að mis­muna dólki á grund­velli trú­frelsis og ójóst var hvort köku­bakstur flokk­ist sem tján­inga­frelsi. Mál Lorie fór hins vegar sömu leið og mál bak­ar­ans. 

Dómi hæsta­réttar mót­mæltFólk safn­að­ist saman við hæsta­rétt þegar dómur féll í máli Lorie Smith.

Í dóm­skjal­inu kemur fram að fyrir sjö árum hafi sam­kyn­hneigður maður að nafni Stewart óskað eftir þjón­ustu hennar í tengslum við brúð­kaup sem hann og verð­andi eig­in­maður hans væru að skipu­leggja. „Við erum að fara að gifta okkur snemma á næsta ári og viljum gjarnan að þú hannir boðskort, merk­ingar o.s.frv. Við gætum einnig haft áhuga á heima­síðu,“ segir í skila­boðum sem Stewart á að hafa sent í gegnum heima­síðu Lorie. 

Stewart kann­ast hins vegar ekk­ert við að hafa sent þessi skila­boð. „Ég er giftur, ég á barn,“ segir hann í sam­tali við The New Republic. Blaða­maður fjöl­mið­ils­ins hafði upp á Stewart viku áður en hæsti­réttur kvað upp dóm sinn. Síma­númer, net­fang og heima­síðu Stewarts var að finna í dóm­skjal­inu.  

Blaða­mað­ur­inn hringdi í Stewart, sem svar­aði. „Ég skil ekki alveg hvaðan þetta kemur. En ein­hver er að nota falskar upp­lýs­ingar í dóm­skjali fyrir hæsta­rétt.“ 

Hinn raunverulegi Stewart mjög ósammála Lorie

Ekkert var minnst á Stewart í mál­inu til að byrja með og svo virð­ist vera sem Lorie og lög­fræð­ingar hennar fundið upp sam­kyn­hneigt par í leit að brúð­kaups­heima­síðu til að nota sem gögn til að rök­styðja and­stöðu sína við sam­kynja hjóna­bönd. Dómstóll í Colorado taldi frá­sögn Lorie af Stewart óná­kvæma og ekki nægj­an­legt sönn­un­ar­gagn „til að meta lík­urnar á því að sam­kynja par myndi sækj­ast eftir þjón­ustu stefn­anda“.   

Málið fór því fyrir hæsta­rétt þar sem Lorie hafði betur. Þrátt fyrir van­kant­ana sem kunna að vera á dóm­skjal­inu þá breytir það því ekki að Stewart sem óskaði eftir þjón­ustu vef­hönn­uð­ar­ins sem er á móti sam­kynja hjóna­böndum er ekki til. 

Hinn raun­veru­legi Stewart er mjög mót­fall­inn skoð­unum Lorie. „Ég er mjög ósam­mála því sem hún stendur fyrir,“ segir Stewart, sem vill samt forð­ast sviðs­ljósið sem honum var óvænt gefið í þessu máli. En hann bað ekki um heima­síðu, hvað þá atburð­ar­rás­ina sem falska óskin hrinti af stað. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár