Flestir landsmenn með næstum allt eigið fé sitt bundið í steypu

Átta af hverjum tíu nýjum krónum sem íslensk heim­ili hafa eign­ast umfram skuldir á síð­ustu tólf árum komu til vegna þess að eigið fé þeirra í hús­næði jókst. Eini hóp­ur­inn sem á umtals­vert eigið fé í öðrum eignum en þeim sem búið er í er tekju­hæsta tíund lands­ins.

Flestir landsmenn með næstum allt eigið fé sitt bundið í steypu
Eft­ir­spurn Það er vöntun á íbúðum á Íslandi. Svo mikil að stjórn­völd áætla að það þurfi að byggja að minnsta kosti á fjórða tug þús­unda íbúða á næsta ára­tug til að mæta fólks­fjölgun og öðrum ástæðum sem skapa stór­aukna eft­ir­spurn. Þessi mikla eft­ir­spurn umfram fram­boð leiðir af sér miklar hækk­anir. Mynd: Bára Huld Beck

Auður íslenskra heim­ila hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Árið 2022 var engin und­an­tekn­ing þar á. Alls áttu íslensk heim­ili 7.748 millj­arða króna í eigið fé, sem eru eignir eftir að búið er að draga skuldir frá, um síð­ustu ára­mót. Fyrir tólf árum var þessi auður 1.565 millj­arðar króna. Frá þeim tíma hefur hann því vaxið um rúm­lega sex þús­und millj­arða króna. Inni í þeirri tölu eru ekki eignir lands­manna í líf­eyr­is­sjóðum, sem halda á sam­tals 6.876 millj­örðum krónum. 

Hjá flestum heim­ilum er þessi auður að mestu bund­inn í einni teg­und eigna, steypu. Af heildar eigin fé íslenskra heim­ila voru 6.132 millj­arðar króna í fast­eign um síð­ustu ára­mót. Það eigið fé end­ur­speglar mun­inn á gild­andi fast­eigna­mati hús­næðis ann­ars vegar og þeirra skulda sem stofnað hefur verið til vegna kaupa á því hús­næði hins vegar. Því er 79 pró­sent af öllu eigin fé ein­stak­linga í land­inu bundið í steypu. 

Af þeim …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár