Beið í 15 ár með forhúðaraðgerð

Það var í miðjum kvöld­verði á veit­inga­stað í miðbæ Reykja­víkur sem Hafliði Pét­urs­son byrj­aði að segja sína upp­á­halds­sögu. Söguna af því þegar hann lagð­ist undir hníf­inn á bekk læknis í Laug­ar­dal og fór í aðgerð­ina sem hann hafði hugsað um í 15 ár. Við­staddir sperrtu eyrun. Það var ekki á hverjum degi sem karl­maður sagði frá aðgerð á getn­að­ar­limi.

Beið í 15 ár með forhúðaraðgerð
Léttur Aðgerðin er ekk­ert feimn­is­mál fyrir Hafliða sem segir sög­una af henni með inn­lifun. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Hafliði Pét­urs­son var 16 ára þegar hann fór að velta því fyrir sér hvort hægt væri að laga for­húð­ina hans. Hún var þröng og olli honum óþæg­indum í kyn­lífi og þegar hann piss­aði. Hann hafði aldrei heyrt talað um aðgerðir á for­húð en opn­aði far­tölv­una sína og sló upp á Google: „Þröng for­húð“ og komst að því að hann væri ekki eini mað­ur­inn í heim­inum í þessum vand­ræðum. 

En jafn­vel þó að for­húðin trufl­aði hann dró hann það lengi að láta kíkja á typpið á sér. Hann hafði enda aldrei gert það áður og fannst til­hugs­unin um að læknir færi að grand­skoða það skrýtin.

Næstu fimmtán árin spáði hann því í þetta við og við. „En svo bara hringdi ég ekki,“ segir Hafliði. „Ég veit ekki af hverju.“

Betra að kíkja til læknis fyrr en seinna

Það getur skipt sköpum fyrir fólk að leita sér lækn­is­að­stoðar snemma ef áhyggjur vakna …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Ja þetta er þa eins og það a að vera, þetta getur kallað a eitrun og sykingu, en þetta endaði bara vel með Læknisaðgerð.
    Norðmen sega Goðir Bellir Vaska sig sjalfir.-- Þa er att við að menn með Gott Tol, Njota meiri Kvennhili.
    0
  • Oddur Sigmundsson skrifaði
    Hetja!
    0
  • SRÓ
    Sigurður Rúnar Ólafsson skrifaði
    Mjög flott frásögn, takk fyrir.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár