Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Umdeild kaup VÍS á Fossum samþykkt þrátt fyrir áhyggjur lífeyrissjóða

Trygg­inga­fé­lag­ið VÍS kom­ið í fjár­fest­inga­banka­starf­semi. Kaup þess á Foss­um voru sam­þykkt á hlut­hafa­fundi á mið­viku­dag. Verð­mið­inn er um 4,2 millj­arð­ar króna, sem sum­um líf­eyr­is­sjóð­um í hlut­hafa­hópi VÍS þótt allt of hár. Velta Fossa dróst veru­lega sam­an í fyrra og tap varð á rekstr­in­um. VÍS mun lána Foss­um 400 millj­ón­ir króna í kjöl­far þess að kaup­in voru af­greidd.

Umdeild kaup VÍS á Fossum samþykkt þrátt fyrir áhyggjur lífeyrissjóða
Umdeild kaup Kaup Fossa á VÍS voru umdeild í aðdraganda þeirra og greindi lífeyrissjóðurinn Gildi meðal annars frá því að hann myndi ekki samþykkja þau. Viðskiptin voru hins vegar samþykkt með 83 prósent greiddra atkvæða. VÍS er í meirihlutaeigu lífeyrissjóða en stærstu einkafjárfestarnir eru félög tengd Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Bjarna Ármannssyni. Haraldur Þórðarson verður forstjóri samstæðunnar.

„Kaupin og umbreyting á starfseminni eru ekki áhættulaus viðskipti en stjórn væntir þess að fjármálastarfsemin muni skila viðunandi arðsemi og opna dyr að tækifærum sem annars væru fjarlægari.“ Þetta er meðal þess sem kom fram í uppfærðri kynningu stjórnar Vátryggingafélags Íslands (VÍS) á þá fyrirhuguðum kaupum tryggingafélagsins á fjárfestingabankanum Fossum á 4,2 milljarða króna, miðað við gengi á hlutum í VÍS í dagslok á miðvikudag. Sú upphæð verður greidd með því að hluthafar Fossa fá 12,6 prósent í sameinuðu félagi með útgáfu á nýju hlutafé.

Uppfærða kynningin, sem innihélt þrjár nýjar glærur með rökstuðningi fyrir kaupunum, var birt vegna þess að hluthafar í VÍS höfðu spurst fyrir um kaupin. Þær fyrirspurnir snerust fyrst og fremst um að hluthafar, sérstaklega sumir þeirra lífeyrissjóða sem eiga saman yfir helming hlutafjár í VÍS, töldu að það verð sem verið er að greiða fyrir Fossa væri allt of hátt og í engu samræmi við …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár